TP kapall eða Crossover


Höfundur
Selurinn
Kerfisstjóri
Póstar: 1228
Skráði sig: Fös 24. Feb 2006 15:51
Reputation: 2
Staðsetning: Mhz
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

TP kapall eða Crossover

Pósturaf Selurinn » Fim 15. Jan 2009 11:47

Sælir,

TP kapal eða Crossover, t.d. á milli Router og switch?
Hvort er öruggara og er betra uppá hraða, svosem ég viti að báðar gerðir virka.

Kveðja.........Selurinn



Skjámynd

ManiO
Besserwisser
Póstar: 3963
Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
Reputation: 0
Staðsetning: Seltjarnarnes
Staða: Ótengdur

Re: TP kapall eða Crossover

Pósturaf ManiO » Fim 15. Jan 2009 14:07

Skal taka það fram að ég er enginn sérfræðingur í þessu, best væri að fá staðfestingu frá einhverjum tölvumenntuðum eða rafvirkja.

Crossover er TP kapall ;) TP kapall er kapall þar sem vírar eru fléttaðir saman tveir og tveir oftast, wikipedia er með ágæta grein ef þú leitar að twisted pair cable.

Crossover var upphaflega fyrir þá notkun að tengja saman tvær tölvur beint án hub/switch en straight through kaplar notaðir þegar að hub/switch er milliliður. Flest netkort í dag (ef ég man rétt skal þetta lesast sem Gigabit netkort) skynja hvort þú sért að tengja við aðra tölvu eða hub/switch og því skiptir það engu máli, en ef þú vilt vera með einhverja sérvisku þá myndiru nota crossover til að tengja 2 tölvur saman án þess að hafa hub/switch og straight through ef þú ert með hub/switch.

Oftast eru straight through snúrur ekki merktar sem slíkar heldur bara sem TP eða Cat5 á meðan crossover eru alltaf merktar sem slíkar.

Milli tveggja hubs/switches þá myndi ég halda að straight through væri sniðugast, þ.e.a.s. ef að þú ert með sérvisku eða þá að hann skynjar ekki hvert hann tengist.


"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."

Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1573
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 254
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: TP kapall eða Crossover

Pósturaf depill » Fim 15. Jan 2009 16:31

Selurinn skrifaði:Sælir,

TP kapal eða Crossover, t.d. á milli Router og switch?
Hvort er öruggara og er betra uppá hraða, svosem ég viti að báðar gerðir virka.

Kveðja.........Selurinn


Átt í raun og veru að nota Crossover á milli routers og switch, en þar sem flest allir routerar og svissar eru komnir með auto-sense skiptir það engu máli. En ef þú værir að taka próf í þessu, þá myndirðu setja crossover þarna á milli :)

4x0n skrifaði:Crossover var upphaflega fyrir þá notkun að tengja saman tvær tölvur beint án hub/switch en straight through kaplar notaðir þegar að hub/switch er milliliður. Flest netkort í dag (ef ég man rétt skal þetta lesast sem Gigabit netkort) skynja hvort þú sért að tengja við aðra tölvu eða hub/switch og því skiptir það engu máli, en ef þú vilt vera með einhverja sérvisku þá myndiru nota crossover til að tengja 2 tölvur saman án þess að hafa hub/switch og straight through ef þú ert með hub/switch.


Crossover er reyndar upphaflega til að tengja saman tvö tæki af sömu "tegund" svo að recieve vírinn sé á móti send vírnum og öfugt. Þannig til að tengja saman til dæmis tvö svissa eða tvö routera, en router og sviss þá notaðiru crossover og líka þegar þú varst að tengja á milli tveggja tölva svo að tækið væri að senda á réttum vírum og móttaka á réttum vír.

En í dag er auto-sense á næstum öllu ( meiri segja tölvum ) þannig þetta skiptir akkurat engu máli þannig séð, nema bara fyrir legacy stuðning og próf kannski :P



Skjámynd

ManiO
Besserwisser
Póstar: 3963
Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
Reputation: 0
Staðsetning: Seltjarnarnes
Staða: Ótengdur

Re: TP kapall eða Crossover

Pósturaf ManiO » Fim 15. Jan 2009 19:04

depill.is skrifaði:
4x0n skrifaði:Crossover var upphaflega fyrir þá notkun að tengja saman tvær tölvur beint án hub/switch en straight through kaplar notaðir þegar að hub/switch er milliliður. Flest netkort í dag (ef ég man rétt skal þetta lesast sem Gigabit netkort) skynja hvort þú sért að tengja við aðra tölvu eða hub/switch og því skiptir það engu máli, en ef þú vilt vera með einhverja sérvisku þá myndiru nota crossover til að tengja 2 tölvur saman án þess að hafa hub/switch og straight through ef þú ert með hub/switch.


Crossover er reyndar upphaflega til að tengja saman tvö tæki af sömu "tegund" svo að recieve vírinn sé á móti send vírnum og öfugt. Þannig til að tengja saman til dæmis tvö svissa eða tvö routera, en router og sviss þá notaðiru crossover og líka þegar þú varst að tengja á milli tveggja tölva svo að tækið væri að senda á réttum vírum og móttaka á réttum vír.

En í dag er auto-sense á næstum öllu ( meiri segja tölvum ) þannig þetta skiptir akkurat engu máli þannig séð, nema bara fyrir legacy stuðning og próf kannski :P



Eins og ég tók fram þá er ég ekki sérfræðingur :) Takk fyrir að koma þessu á hreint samt :)


"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,

wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."

Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 5106
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 930
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: TP kapall eða Crossover

Pósturaf jonsig » Fim 15. Jan 2009 19:34

Ég lærði þetta nákvæmlega svona eins og Depill var að segja :) í Net og tölvukerfum í rafvirkja skólanum hérna í den

Crossover er málið klárlega




Xyron
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 389
Skráði sig: Sun 09. Okt 2005 23:36
Reputation: 0
Staðsetning: 127.0.0.1
Staða: Ótengdur

Re: TP kapall eða Crossover

Pósturaf Xyron » Fim 15. Jan 2009 20:28

depill.is skrifaði:Átt í raun og veru að nota Crossover á milli routers og switch, en þar sem flest allir routerar og svissar eru komnir með auto-sense skiptir það engu máli. En ef þú værir að taka próf í þessu, þá myndirðu setja crossover þarna á milli :)

Crossover var upphaflega fyrir þá notkun að tengja saman tvær tölvur beint án hub/switch en straight through kaplar notaðir þegar að hub/switch er milliliður. Flest netkort í dag (ef ég man rétt skal þetta lesast sem Gigabit netkort) skynja hvort þú sért að tengja við aðra tölvu eða hub/switch og því skiptir það engu máli, en ef þú vilt vera með einhverja sérvisku þá myndiru nota crossover til að tengja 2 tölvur saman án þess að hafa hub/switch og straight through ef þú ert með hub/switch.

En í dag er auto-sense á næstum öllu ( meiri segja tölvum ) þannig þetta skiptir akkurat engu máli þannig séð, nema bara fyrir legacy stuðning og próf kannski :P


Svona til að vera picky þá heitir þetta víst Auto MDI/MDIX en ekki autosense(veit að margir kalla þetta autosense) .. gallinn við það að kalla þetta autosens er að autosense er líka oft notað um Autonegotiation(half/full duplex)




Höfundur
Selurinn
Kerfisstjóri
Póstar: 1228
Skráði sig: Fös 24. Feb 2006 15:51
Reputation: 2
Staðsetning: Mhz
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: TP kapall eða Crossover

Pósturaf Selurinn » Fim 15. Jan 2009 22:14

Er þá Crossover líka málið frá Ethernet>Power gaur yfir í Router/Switch?
Hvað með þá frá Router/Switch í prentara?

Er það ekki þannig að Switch fær ekki IP tölu?
Þannig frá IP tölu í non-IP (switch) þá nota venjulegan TP kapal.
En router er t.d. með IP seinast þegar ég vissi, svo það meikar ekki alveg sense :S

My head is full of questions, and I need answerz :)



Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1573
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 254
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: TP kapall eða Crossover

Pósturaf depill » Fim 15. Jan 2009 23:13

Selurinn skrifaði:Er þá Crossover líka málið frá Ethernet>Power gaur yfir í Router/Switch?
Hvað með þá frá Router/Switch í prentara?

Er það ekki þannig að Switch fær ekki IP tölu?
Þannig frá IP tölu í non-IP (switch) þá nota venjulegan TP kapal.
En router er t.d. með IP seinast þegar ég vissi, svo það meikar ekki alveg sense :S

My head is full of questions, and I need answerz :)


Rétt hjá Xyron :)= og hefði kannski átt að segja Auto MDI/MDIX hitt er bara vani eftir að hafa droppað hitt úr speaking language :) Anyhow. ( Yes = á að vera, þar sem rakvélarblöð í Mach3 fást víst ekki á Íslandi í dag, bara þetta Fusion drasl og ég ætla ekki að kaupa mér bara rakvél vegna þess að þeir eru að reyna svæla mig út í þetta Fusion drasl, frekar kaupi ég mér svona eitursvalan rakarahníf og læri á það ).

Nú er ég bara ekki viss hvernig Ethernet-Power gaurar "taka" þetta uppí sig, en þar sem þeir eru bara medium converter myndi ég halda að það skipti helstu máli hvað tengist í Ethernet power gæjana sitt hvoru megin og ákveða kapalnotkunina út frá því. Annars einmitt vegna þess að þetta er medium converter að þá gæti verið eðlilegra að nota alltaf straight through, en ég er bara ekki nógu fær í uppbyggingunni á ethernet-power gæjunum til þess að geta sagt það

Switch getur alveg fengið ip tölu ef þetta er L3-capable sviss ( þarf ekki að vera L3 sviss samt ), flest allir svissar sem eru keyptir út í búð eru það ekki og ég hef bara séð það á L2 manageable svissum. En ég held að þú ert að ofhugsa IP tölur í þessu. IP er L3, þú ert basicly á L1 sem þú átt að vera hugsa þetta.

Þetta er basicly bara á milli sama tegunda af tækjum fer crossover ( router(sem er mjög oft með innbyggðum 4 porta sviss)->sviss, sviss->sviss, hub->sviss, sviss->hub, tölva->tölva og svo frv ) þá er betra ( mælt með, en samt like said before doesn't matter ) að nota Crossover og ef þú ert að tengja á milli mismunda tækja eins og frá Sviss/Hub/Router( sem oftast er með innbyggðum 4 porta sviss ) yfir í tölvu þá notarðu straight through.

Ekki ofhugsa vandamálið :)



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 5106
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 930
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: TP kapall eða Crossover

Pósturaf jonsig » Lau 24. Jan 2009 16:47

Er ekki hægt að fá swiss með L1, L2 og L3 ? þannig að hann sé þrífasa þannig að viftan inní honum snúist með jafnari snúning ? :shock:

Kommon ? hann var að spyrja TP kapall eða Crossover , ekki um einhverja nördatækni bakvið þetta :shock:



Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1573
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 254
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: TP kapall eða Crossover

Pósturaf depill » Lau 24. Jan 2009 19:52

jonsig skrifaði:Er ekki hægt að fá swiss með L1, L2 og L3 ? þannig að hann sé þrífasa þannig að viftan inní honum snúist með jafnari snúning ? :shock:

Kommon ? hann var að spyrja TP kapall eða Crossover , ekki um einhverja nördatækni bakvið þetta :shock:


L1 swiss væri fáranlegt dæmi og er þess vegna ekki til :)

En hann er að spurja um TP eða Crossover á milli svissa, og til þess að skilja ástæðuna fyrir því að þú þurfir TP eða Crossover er fínt að útskýra tæknina á bakvið hana. Ég er allavega þannig að ef mig langar að vita eftir, þarf ég líka að vita afhverju. Kannski er ég bara skrítinn :P




Höfundur
Selurinn
Kerfisstjóri
Póstar: 1228
Skráði sig: Fös 24. Feb 2006 15:51
Reputation: 2
Staðsetning: Mhz
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: TP kapall eða Crossover

Pósturaf Selurinn » Lau 24. Jan 2009 22:08

Þakkir.....



Skjámynd

zedro
Stjórnandi
Póstar: 2783
Skráði sig: Fös 29. Okt 2004 21:29
Reputation: 126
Staðsetning: FL410
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: TP kapall eða Crossover

Pósturaf zedro » Sun 25. Jan 2009 00:12

jonsig skrifaði:Er ekki hægt að fá swiss með L1, L2 og L3 ? þannig að hann sé þrífasa þannig að viftan inní honum snúist með jafnari snúning ? :shock:

Kommon ? hann var að spyrja TP kapall eða Crossover , ekki um einhverja nördatækni bakvið þetta :shock:

jonsig ef þú ert bara að leita af svörum og engri umræðu með auka upls. farðu þá bara á google, við nennum ekki að hlusta á þetta röfl í þér :x


Kísildalur.is þar sem nördin versla

Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3760
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: TP kapall eða Crossover

Pósturaf Pandemic » Sun 25. Jan 2009 13:50

held að þetta skipti samt engu máli, hef tengt allt milli himins og jarðar með TP og það hefur aldrei valdið vandræðum, þetta skipti máli í den þegar maður var með Hub með uplink porti og BNC snúrum, en ekki í dag.



Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1573
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 254
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: TP kapall eða Crossover

Pósturaf depill » Sun 25. Jan 2009 14:43

Pandemic skrifaði:held að þetta skipti samt engu máli, hef tengt allt milli himins og jarðar með TP og það hefur aldrei valdið vandræðum, þetta skipti máli í den þegar maður var með Hub með uplink porti og BNC snúrum, en ekki í dag.


Depill skrifaði: En í dag er auto-sense á næstum öllu ( meiri segja tölvum ) þannig þetta skiptir akkurat engu máli þannig séð, nema bara fyrir legacy stuðning og próf kannski :P


Xyron skrifaði:Svona til að vera picky þá heitir þetta víst Auto MDI/MDIX en ekki autosense(veit að margir kalla þetta autosense)


That's why :P



Skjámynd

beatmaster
Besserwisser
Póstar: 3077
Skráði sig: Fös 14. Jan 2005 15:46
Reputation: 45
Staðsetning: Við hliðina á nýju tölvunni minni
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: TP kapall eða Crossover

Pósturaf beatmaster » Mán 26. Jan 2009 00:01

Get ég tengt úr Speedtouch 585 Routernum mínum í PC með Crossover kapli og það virkar allt í gúddý?


Menn rugla saman tveimur orðum, víst og fyrst. Hið fyrrnefnda er komið af orðinu vissa en hitt er úr talmáli og haft í merkingunni: úr því að, þar sem (um orsök). Dæmi: Fyrst að ég get þetta þá getur þú þetta, þ.e.a.s: Þar eð ég get þetta þá getur þú þetta. En víst er notað um vissu: Það er nokkuð víst að ég geti gert þetta.