Síða 1 af 1

ADSL hraðakönnun...

Sent: Fim 19. Des 2002 15:46
af Tinker
Eruð þið ADSL'arar til í að pósta inn hraðan sem þið eruð að fá á td.

http://traffic.atm.is/hradi/speed500.html
eða
http://www.vdsl.is/speed/VDSLspeedtest500.php

Ég er að fá að meðaltali (5x CTRL+F5): 58kbæti/sek
á þetta ekki að vera 64 fyrir 512 tengingu?
LS segir mig vera kominn með hana en ég veit ekki... :(
--
Tinker

Sent: Fim 19. Des 2002 18:38
af Atlinn
ég er með svona um 33.6 k/sec...256k adsl

Re: ADSL hraðakönnun...

Sent: Fim 19. Des 2002 19:15
af halanegri
Tinker skrifaði:Ég er að fá að meðaltali (5x CTRL+F5): 58kbæti/sek
á þetta ekki að vera 64 fyrir 512 tengingu?
LS segir mig vera kominn með hana en ég veit ekki... :(
--
Tinker


það er algengt að þeir sem eru með 512k tengingar séu með 58kB/sec(ætti samt að vera 64) og þeir sem eru med 256k séu að fá rétt yfir 32kB/sec. ég er með breiðband, ég fékk líka 58kB/sec(ætti líka að vera 64)

Hérna er smá ráð.

Sent: Fim 19. Des 2002 21:19
af GuðjónR
Fyrst var ég með 256 og þá var ég með 33kbs síðan stækkaði ég í 512 og fékk 62kbs að meðaltali og núna er ég með 1536 og með hraðann 182kbs.

Prófaðu að fara inn á :

http://www.hugi.is/hahradi/


Og DL einhverju einhverju leikjademói þar, (50 - 200mb fæl) ekki gera neitt á netinu á meðan, þegar þessu lýkur þá sérðu DL hraðann sem þú ert með.
Þetta er miklu nákvæmara en þessi hraðamælinga tæki sem þú hefur verið að nota.

Passaðu þig bara að hafa ekki hakað við "Close this dialog box when download completes" því þá sérðu ekki meðalhraðann þinn.

Re: ADSL hraðakönnun...

Sent: Fim 19. Des 2002 21:24
af Tinker
halanegri skrifaði:það er algengt að þeir sem eru með 512k tengingar séu með 58kB/sec(ætti samt að vera 64) og þeir sem eru med 256k séu að fá rétt yfir 32kB/sec. ég er með breiðband, ég fékk líka 58kB/sec(ætti líka að vera 64)


Kunna menn skýringu á þessu fyrirbæri eða er þetta bara
svona "náttúrulögmál" hjá LS?

en ok. ég get amk hætt að liggja í 8007000 :P
meðal svartíminn hjá þeim virðist vera 10mín þessa dagana...

þakka svörin!
--
Tinker

Sent: Fim 19. Des 2002 21:31
af Castrate
ég er með 256k og fékk 32kB/sec :)

Re: ADSL hraðakönnun...

Sent: Fim 19. Des 2002 21:39
af halanegri
Tinker skrifaði:Kunna menn skýringu á þessu fyrirbæri eða er þetta bara
svona "náttúrulögmál" hjá LS?


ég held það...

Re: Hérna er smá ráð.

Sent: Fim 19. Des 2002 22:02
af Tinker
Guðjón skrifaði:...DL einhverju einhverju leikjademói þar, (50 - 200mb fæl) ...

k. tók ca 70meg demó og fékk það inn á 55,5kB/s
ætli maður fari ekki bara að kanna inet um breiðbandið...arrrrgh!
--
Tinker

Sent: Fim 19. Des 2002 22:52
af kiddi
...eða færa sig yfir til Íslandssíma :) Ég er yfirleitt undantekningalaust með 100% af þeim hraða sem ég á skilið!

Sent: Mán 23. Des 2002 02:35
af arnorhs
ég er 100% ánægður með islandssima, stendur sig alltaf, alltaf í lagi með hraðann og alltaf uppi

Sent: Mán 23. Des 2002 13:17
af Voffinn
Ég er með 512 , og fæ svona 60-61 í prófinu, er hérna með svona hraðamæli (software) (DU-Meter) og hann sýnir oft eitthvað 64-65... bilað drasl! :twisted:

Sent: Mán 23. Des 2002 14:32
af Atlinn
Ég er með ADSL hjá Halló sem reyndar er íslandsími núna, ég hef ekki átt í miklum vandræðum með þetta hjá þeim nema að módemið sem ég fékk var bilað....fékk annað strax á spurninga (sem er gott), kanski vegna þess að ég gat sannað að þetta var módemið, svo líka disconnektast ég ekki oft, allavegana sjaldnar en þeir sem eru hjá örðum fyrirtækjum :)

Sent: Mán 23. Des 2002 19:49
af MezzUp
internet um breiðband er víst með rosalega flöktandi hraða

Sent: Þri 24. Des 2002 00:54
af Castrate
ég er með hjá simnet, dett oft út, stundum finnur módemið ekki Adslið eða serverinn eða hvað þetta kallast (þ.e. kassarnir sem eiga að vera svartir eru rauðir og þá get ég ekki connectast) Svo lagga ég á serverum, packet loss og fleira. Allt alveg eintóm leiðindi með þetta símnet drasl þeir eru engan vegin að standa sig í þessu helvíti :x

Sent: Sun 29. Des 2002 19:23
af MezzUp
Ég gerði nokkrar mælingar og fékk þetta út:

atm.is
KilaBitar/s - KílóBæti/s
225,3 - 27,6
241,6 - 29,6
224,3 - 27,5
227,2 - 27,8
221,2 - 27,1
229,8 - 28,2
218,3 - 26,8
240,5 - 29,5
232,1 - 28,4
233,6 - 28,6
-------------------
Meðaltal tíu mælinga(allar í röð)
229,39 - 28,11

vdsl.is
KilaBitar/s - KílóBæti/s
246,2 - 30,2
253,2 - 31
242,2 - 29,7
248 - 30,4
249,6 - 30,6
253,4 - 31,1
249,5 - 30,6
253,2 - 31
245,6 - 30,1
254,6 - 31,2
--------------
Meðaltal tíu mælinga(allar í röð)
249,55 - 30,59

Meðaltal atm.is og vdsl.is
239,47 - 29,4
og hlutfalslega af 256 kílóbita á sekúndu tengingu er 239,47 jafnt og 93,54%

Allar mælingar voru gerðar á milli 18:45 og 19:00

Ég dánlódaði w2ksp3.exe (124MB) af static.hugi.is og þar kom windows með 30,2 Kb á sek

ps. ég held að ég hafi slegið eitthvað vitlaust inn vegna þess að ég fæ ekki út sömu prósentu þegar ég reikna Kb og KB

MezzUp has spoken.

Sent: Sun 29. Des 2002 20:00
af GuðjónR
Þú ert greinilega með 30k til 31k hraða.
Sem er fínt miðað við að þú ert að prófa þetta á háanna tíma.
Gerðu þessa tilraun einhverntíman snemma morguns, þú gætir fengið meiri hraða.

Varðandi þessa prósentu útreikninga þína hafðu þá þetta hugfast.

1 Byte = 8 Bit
1 Kilobyte = 1024 Bytes
1 Megabyte = 1048576 Bytes
1 Gigabyte = 1073741824 Bytes

Klikkaðu hérna, þetta er sniðugur converter.

Sent: Mán 30. Des 2002 14:30
af MezzUp
amms, vissi þetta
256 / 8 = 32
þannig að 32 KB á sek er fræðilega það mesta sem að maður getur fengið með ADSL 256
239,47/256 = 0,9354296875 (93,5%)
29,4/32 = 0,91875 (91,8%)
Þar sem að þessar síður mæla bara Kb og deila svo með 8 til að fá út KB þá ættu þessar tölur að vera þær sömu, right?
þannig að ég held að ég hafi slegið þetta rangt inn. ég ætla að fara að prufa aftur núna

Sent: Mán 30. Des 2002 19:20
af GuðjónR
Þegar ég var með ADSL 256...þá náði ég oftast 32k hraða...
Varstu búinn að prófa hraðan á örðum tíma?

Sent: Mán 30. Des 2002 19:46
af MezzUp
andsk. ég ætli að gera það í dag en gleymdi því. geri það í fyrramálið........
það eru soldið gamlar símalínur í húsinu en það skiptir varla máli nema þegar maður er kominn með eitthvað hraðara

Sent: Fös 03. Jan 2003 16:52
af MezzUp
ég var að tengja nýju tölvuna(2000XP og win2k en gamla er 500Mhz með Xp) við ADSL og þá er ég að fá 32 - 34. ég kem með nánari mælingu seinna

Sent: Mán 13. Jan 2003 17:42
af natti
HM,

Kíkið á http://traffic.atm.is, það er hraðamælingardót þar, bæði 500kb og 1MB.

"Hraði minnar tengingar var (kl 18:00) 59KB/sec
Fræðilega séð ætti ég að fara í 64 (er með 512 adsl)