Aðal málið er að hafa ekki of marga codec-a fyrir sömu gerð video skráa. Ef þú ert búinn að ná í einhvern codec pakka eins og K-lite eða CCCP skalltu uninstalla því ásamt þeirri útgáfu af Media player classic sem þú ert núna með.
Náðu síðan í eftirfarandi:
Media Player Classic: Home CinemaHaali Media SplitterNýjustu gerð FFdshowAC3 FilterÞegar þú ert búinn að setja allt þetta upp, opnaðu þá MPC:HC og farðu í view-->options
Veldur þar External Filters. Þú ættir að sjá tóman glugga og takka sem segir "Add Filter..." Smelltu á hann og bættu inn FFDshow og AC3 Filter.
Þegar þau eru kominn í gluggan smellirðu á þau þar og hakar við Prefer, fyrir neðan Add Filter takkann.
Þegar þú ert búinn að þessu skalltu spila einhverja HD mynd. Meðan myndin er í gangi skalltu hægri smella á hana og fara í Filters, þaðan í FFDshow video decoder. Þú ættir að fá upp glugga. Vinstra megin í honum skalltu finna Decoder Options. Þar skalltu sjá til þess að í Number of decoding threads sé skrifað 2, þar sem þú ert með tveggja kjarna örgjörva.
Mæli einnig með því að þú prófir mismunandi gerðir video render-a. Þú gerir það með því að fara í options á MPC og velja output undir playback hakinu. Undir Direct Show video geturðu valið milli margra tegunda render-a. Ef þú ert með windows vista mæli ég með EVR custom pres. en VMR7 og VMR9 eru líka að koma vel út. Prófaðu bara að skipta og gáðu hver gefur þér bestu gæðin og besta performance (ath. ef þú breytir um render verðuru að loka MPC og opna hann aftur til þess að breytingin eigi sér stað).