Síða 1 af 2

Red Hat - Ekki lengur ókeypis

Sent: Þri 04. Nóv 2003 18:12
af Gothiatek
Þá hefur Red Hat ákveðið að hætta með Red Hat Linux seríuna, hætta að supporta Red Hat 9 frá og með Apríl 2004. Menn verða því að kaupa Enterprise fyrir töluverðan pening.

Frétt: http://www.newsforge.com/software/03/11/03/1657205.shtml

Hlaut að koma að þessu, reyndar verður distró sem kallast Fedora (http://fedora.redhat.com/) eitthvað afsprengi af Red Hat Linux.....Held að Red Hat hljóti nokkra álitshnekki í open-source samfélaginu fyrir þessa stefnu sína og gaman að sjá hvernig þeir plumma sig. Kannski eru þeir að selja alveg nóg af þessari Enterprise útgáfu nú þegar!!

Sent: Þri 04. Nóv 2003 18:26
af MonkeyNinja
Og Novell í því að kaupa Suse, jæja sem betur fer höfum við Debian og Gentoo sem eru hvort er miklu betri ;)

Sent: Þri 04. Nóv 2003 18:27
af Voffinn
Ég er alveg viss um það að Redhat á eftir að fá á sig álitsnekki fyrir þetta, ég persónulega hef aldrei verið hrifinn af Redhat og á svo sannarlega ekki eftir að sakna þeirra =)

Ég ætlaði að fara búa til póst um hvort vaktin.is ætlaði ekki að fara hýsa iso myndirnar fyrir slackware 9.1 ? ftp.slackware.org er ekki með þetta vegna þess hversu mikið álag er á ftp hjá þeim þegar þeir gefa út nýjar útgáfur. Afleiðingin af því er að allir speglar á íslandi eru ekki heldur með þetta. Þess í stað settu þeir þetta á BitTorrent, ég fékk þetta nú samt sent innanlands í nótt, er að setja þetta upp akkurat núna.
Er einhver áhuga hjá vakta mönnum að hýsa þetta ef ég myndi senda þetta á þá ? Þið væruð náttúrlega að styðja open source samfélagið á íslandi mikið og mynduð fá á ykkur gott orð þannig ;) (ekki það að það sé ekki nógu gott fyrir).

Ég vill endilega fá að heyra hvað ykkur finnst! :D

Sent: Þri 04. Nóv 2003 18:37
af Theory
Humm, ég er með Slackware 9.1 ISO 3 og 4, og þú ert með 1 og 2, ég get svosem sett þetta á spegil hérna innanlands...

Sent: Þri 04. Nóv 2003 18:49
af Gothiatek
Ég hef mjög gaman að því að prófa mismunandi distró og væri alveg til í að prófa slackware...er einmitt að fara að setja upp vél fljótlega og var á höttunum eftir nýju distrói til að prófa. Endilega komdu með smá reynslusögu um uppsetningu á slackware....

Málið með Red Hat að þeir eru eitt af stærstu Linux útgáfunum og mjög mikið í fyrirtækjum og öðru sliku. Þess vegna hefur verið hægt að treysta nokkuð vel á að útgáfurnar frá þeim séu stabílar og góðar. Hins vegar hafa þeir verið svona smám saman að færa sig út í að rukka fyrir ýmis konar þjónustur, eins og t.d. up2date sem uppfærir kerfið fyrir mann.

Annað mál hvort að þeir séu að þessu vegna fjárhagslegrar kreppu eða bara gráðugir og vilja meira :shock: Hvað varð um United Linux??

Sent: Þri 04. Nóv 2003 19:09
af gumol
Ég mun allavega ekki sakna RedHat, fyrirtæki verða bara að fara yfir í debian eins og Raunvísindasttofnun :)

MonkeyNinja skrifaði:Og Novell í því að kaupa Suse, jæja sem betur fer höfum við Debian og Gentoo sem eru hvort er miklu betri

*hrollur*

Sent: Þri 04. Nóv 2003 19:40
af MonkeyNinja
Ætli þetta endi ekki á að allar RPM based útgáfur kosti pening og að DPKG muni síðan TAKA YFIR HEIMINN!!!!!

Sent: Þri 04. Nóv 2003 20:27
af Fletch
Kemur þetta mönnum á óvart ? það er varla endalaust hægt að gefa vinnuna sína, someone has to pay

Fletch

Sent: Mið 05. Nóv 2003 01:15
af gnarr
en afhverju á redhat að vera að græða á vinnu mörg þúsund manna. það er ekki eins og þeir hafi forritað linux einir. :p

Sent: Þri 11. Nóv 2003 13:30
af Fox
Einhverntíman sagði ég á Linux.is að redhat væri free til þess að dreyfa því sem mest og lokka til sín notendur, og að innan fárra ára yrði byrjað að selja það, og myndi ekki vera supportað lengur.

Það var hlegið að mér þá.

Lítið á stöðuna í dag.

Mjög mörg forrit sem verða svona.

Sent: Þri 11. Nóv 2003 13:49
af Voffinn
Held þú sért að misskilja þetta, þeir eru bara að hætta með RedHat í þeirri mynd sem þú ert að tala um og ætla ða leggja meiri áherslu á 'Enterprise' útgáfuna sína, sem er ekki frí.

Svo er fedora linux að koma núna, á að vera staðgengill fyrir RedHat sem desktop os. :P (fyrir þá sem ekki vita, þá er fedora nafn yfir hattinn sem er í RedHat merkinu ;) )

Sent: Þri 11. Nóv 2003 14:59
af elv
Fedora verðu ekki supportað af RedHat, EN hlutir sem er í Fedore geta farið í RedHat

Sent: Mið 12. Nóv 2003 16:44
af MonkeyNinja
"The Fedora Project is a Red-Hat-sponsored and community-supported open source project"

Rétt skal vera rétt :)

Ég held að þetta sé rétt hjá þeim að gera þetta, community based distro eru að mínu mati best þar sem þau eru ekki að eltast of mikið við þetta perfect desktop myth.

Sent: Mið 12. Nóv 2003 17:53
af Fox
Já..
Ég ætla mér að nota Windows
Þótt það kosti peninga.. þá er hægt að fá það tiltörulega ódýrt á eBay.

Sent: Lau 15. Nóv 2003 02:06
af MonkeyNinja
vei

fúlt

Sent: Lau 29. Nóv 2003 19:26
af Guffi
fúlt vildi bara koma þessu fram það er fúlt þetta var snilda kerfi :? :?

Sent: Lau 29. Nóv 2003 22:56
af halanegri
Guffi: Fedora er eiginlega sami hluturinn sko....

Sent: Mið 10. Des 2003 17:11
af diddis
Hafið þið heyrt að Microsoft sé búið að eignast stórann hluta í RedHat?
Hef heyrt þessu slegið fram en ekki fengið neina staðfestingu á því.

Sent: Mið 10. Des 2003 17:12
af gnarr
já, ég var að heyra að microsoft ætti 30% í fedora og svo ætti microsoft 70% eða eitthvað í lögfræðifyrirtæki sem að á redhat.. (ég er ekki alveg með % á hreinu)

Sent: Mið 10. Des 2003 17:37
af Voffinn
Þessu ætla ég nú ekki að trúa fyrr en þið komið með áreiðanlegar heimildir.

Sent: Mið 10. Des 2003 17:40
af ICM
bahaha omg komið með heimildir.

Sent: Mið 10. Des 2003 18:32
af gumol
Ef þetta er satt (sem ég trúi ekki) þá getur það verið mjög slæmt fyrir open source heiminn ef þeir fara að taka yfir hann.

Sent: Mið 10. Des 2003 18:35
af ICM
Gumol hvernig væri það slæmt fyrir hann? Það væri frekar jákvætt fyrir linux ef eitthvað er.

Sent: Mið 10. Des 2003 18:41
af gumol
Það hefur sýnt sig að það er ekki gott að vera í samkeppni við þá.

Sent: Mið 10. Des 2003 19:05
af ICM
gumol skrifaði:Það hefur sýnt sig að það er ekki gott að vera í samkeppni við þá.

Ekki helduru að þeir fari að láta forritarana sína vinna við ókeypis open source kerfi án þess að rukka fyrir það, það sem þeir myndu gera með þessu er að ýta undir það að distro fari að nota almennileg pakkakerfi osfv.