Síða 1 af 1

Windows hrunið

Sent: Mið 15. Okt 2008 22:57
af Snorrmund
Jæja, þegar ég reyni að starta windowsinu núna þá kemur bara error sem segjir mér að mér vanti WINDOWS/System32/hal.dll vandamálið er að ég er búinn að reyna nokkra mismunandi windows diska og alltaf þegar ég reyni að fara í recovery console þá restartar tölvan sér bara.. einhver sem gæti bennt mér á einhverja aðra lausn en að formatta?

Re: Windows hrunið

Sent: Mið 15. Okt 2008 23:15
af Orri
Hal.dll er skrá sem er búin til og er gerð eftir vélbúnaði tölvunnar þinnar, svo formatt virðist vera eina leiðin.
Þetta gerðist við mig, en ég fann síðu sem var með leiðbeiningar um hvernig maður ætti að redda þessu, og það var með því að installa aftur, inná sama partition, en skýra windowsið eitthvað annað en WINDOWS, eitthvað eins og WINXP, svo þegar þú ert búinn að ræsa nýja WINXP þá ættirðu að sjá allar gömlu skrárnar og nýja möppu sem heitir WINXP, þá ættirðu að geta kópíað hal.dll yfir í gamla WINDOWS og breytt boot.ini þannig að þú ræsir þig inní WINDOWS möppuna í staðin fyrir WINXP.

Vona að þú skiljir, og ef það er eitthvað vitlaust hjá mér, endilega leiðréttið.

Re: Windows hrunið

Sent: Mið 15. Okt 2008 23:24
af GuðjónR
Fyrst hrynja bankarnir og svo hrynur windows. Súrt.

Re: Windows hrunið

Sent: Mið 15. Okt 2008 23:38
af beatmaster
Fylgdu þessum leiðbeiningum og þú verður í góðum málum :)

Re: Windows hrunið

Sent: Mið 15. Okt 2008 23:49
af Snorrmund
beatmaster skrifaði:Fylgdu þessum leiðbeiningum og þú verður í góðum málum :)
nei, planið var að gera þetta svona, en ég kemst ekki inní recovery console af einhverjum ástæðum :? búinn að prufa fleiri en einn winxp disk... Held ég verði bara að gera það sem Orri mældi með, takk samt :) Ég kem hingað aftur ef það verður eitthvað frekara vesen :)

Re: Windows hrunið

Sent: Mið 15. Okt 2008 23:50
af Gúrú
GuðjónR skrifaði:Fyrst hrynja bankarnir og svo hrynur windows. Súrt.


Ég bjóst akkúrat líka við stærri fréttum þegar ég opnaði þennan þráð.

Re: Windows hrunið

Sent: Fim 16. Okt 2008 00:04
af supergravity
Snorrmund skrifaði:
beatmaster skrifaði:Fylgdu þessum leiðbeiningum og þú verður í góðum málum :)
nei, planið var að gera þetta svona, en ég kemst ekki inní recovery console af einhverjum ástæðum :? búinn að prufa fleiri en einn winxp disk... Held ég verði bara að gera það sem Orri mældi með, takk samt :) Ég kem hingað aftur ef það verður eitthvað frekara vesen :)


Ef þú splæsir í Vista þá geymir hún allt sem var inni á harðadisknum fyrir í windows.old folder sem þú getur svo hirt úr það sem þú villt eiga. En já, það þýðir reyndar að skipta um stýrikerfi í leiðinni...

Re: Windows hrunið

Sent: Fim 16. Okt 2008 07:29
af benregn
Það sem ég gerði þegar ég lenti í þessu síðast var að installa XP aftur á sama disk án þess að formatta en í sér möppu á disknum.
Síðan þarftu að setja stýrikerfisdiskinní flakkara og hafa aðgang að annari tölvu. Síðan færiru bara hal.dll úr nýju uppsetningunni
yfir i gamla kerfið of vola.

Ef eitthvað er óskýrt í þessu svari, láttu bara vita. ;) (ný vaknaður *geisp*)

Re: Windows hrunið

Sent: Fim 16. Okt 2008 08:34
af TechHead
Repair Install á XP

Re: Windows hrunið

Sent: Fim 16. Okt 2008 18:09
af Snorrmund
TechHead skrifaði:Repair Install á XP

ég get ekki valið það á xp disknum mínum :? ætlaði að reyna það en þá fór ég bara útí það að installa windowsinu aftur.. Gæti verið að diskurinn minn sé eitthvað skrýtinn...

Re: Windows hrunið

Sent: Fim 16. Okt 2008 18:28
af TechHead
Snorrmund skrifaði:
TechHead skrifaði:Repair Install á XP

ég get ekki valið það á xp disknum mínum :? ætlaði að reyna það en þá fór ég bara útí það að installa windowsinu aftur.. Gæti verið að diskurinn minn sé eitthvað skrýtinn...


Ef þú ert með XP CD með SP1 integrated eða ekki og Tölvan var með SP2 eða SP3 uppsettum þá gengur það ekki.
Verða sér bara út um disk með SP2.

Re: Windows hrunið

Sent: Lau 18. Okt 2008 19:47
af Snorrmund
jæja, ég setti bara upp annað windows.. núna er ég með gamla C:\windows og C:\windows.0 og færði hal.dll a milli og þá spurði hún mig um windows/drivers/pci.sys þannig að ég fór í nýja windowsið og ætlaði að færa á milli, en tók svo eftir því að það vantar alla windows/drivers/ möppuna í gamla windowsið... Er eitthvað vit í því að vera að færa allt á milli? borgar það sig ekki bara að formatta núna? Og veit einhver hvaða ástæða er fyrir því að þetta hverfur svona? fyrst þegar þetta gerðist þá kom á login screeninu delayed write gluggi einhver.. Er harði diskurinn minn að klikka eða ?