Síða 1 af 1

True Launch Bar v.2.2.0.8 + nýtt plug-in

Sent: Lau 01. Nóv 2003 19:26
af ICM
Nú er komin endurbætt útgáfa af þessu snilldar forriti og búið að bæta við einum plug-in sem auðveldar verulega að drepa á bakgrunns forritum eins og sjá má á mynd.

bbbb

Sent: Lau 01. Nóv 2003 19:47
af ICM
allskonar eiginleikar eins og þetta sem ég gleymdi að minnast á.

Sent: Lau 01. Nóv 2003 21:17
af Zaphod
áttu einhvern link handa mér :o

Sent: Lau 01. Nóv 2003 21:19
af ICM

Sent: Lau 01. Nóv 2003 21:49
af Roger_the_shrubber
Þetta er eitthvað fyrir mig :D

Sent: Lau 01. Nóv 2003 21:58
af ICM
tek það fram að þið skuluð ekki reyna að stunda piracy á þessu forriti, ef þið lendið í erfiðleikum með pirated útgáfu og farið í support þá verðið þið busted því pirated útgáfur framkvæma triggered bugs.

Sent: Lau 01. Nóv 2003 22:00
af MonkeyNinja
Ú eins og Gamli Maxinn með inv_normal_array :P

Sent: Lau 01. Nóv 2003 22:02
af ICM
MonkeyNinja skrifaði:Ú eins og Gamli Maxinn með inv_normal_array :P

ekki tala svona 1337 hérna. maxi með inv normal array hvað?

Sent: Lau 01. Nóv 2003 22:07
af MonkeyNinja
Í gamalli útgáfu af 3D studio Max þá kom oft upp þessi crashbug í forritinu ef það var crakkað og þeir sem lenntu í þessu fóru svo á forums að kvarta meðan þeir sem vissu hvað þetta var glottu bara útí annað.

Sent: Lau 01. Nóv 2003 22:16
af ICM
já þetta er bara snilldar leið og ættu fleiri forritarar að gera þetta.

Sent: Lau 01. Nóv 2003 22:34
af MonkeyNinja
nei

Sent: Lau 01. Nóv 2003 22:38
af ICM
nei? þetta er eina leiðin sem virkar, ég er búin að sjá 20 manns koma inná forums hjá true soft og allir voru þeir með pirated útgáfu og voru gripnir á staðnum. Fólk á að nota ókeypis útgáfur ef það hefur ekki efni á að kaupa seldar útgáfur, ekki að cracka bara.

Sent: Lau 01. Nóv 2003 22:43
af MonkeyNinja
nei as in: ég er á þeirri skoðun að flóknar piracy varnir eru gagnslausar því að á endanum verður þetta allt krakkað (þar á meðal farið framhjá svona kripplunum) þannig að tímanum og peningunum sem fara í að smíða þessar varnir væri betur varið í að búa til betri forrit.

Sent: Lau 01. Nóv 2003 22:58
af ICM
astalavista og deluxserials eru ekki með crack sem virka á þetta, flestir þora ekkert að leita á fleiri síðum og fáir geta búið til cracks sjálfir.
við hverja nýju útgáfu bætir yuri þjófa vörnina á forritinu og ekki hægt að sækja gömlu útgáfuna lengur. Svona lítil fyritæki eins og Yuri er með verða að eyða tímanum sínum í að stöðva piracy þar sem það er svo lítill markaður á forritinu hans að allir verða að kaupa það sem hafa áhuga á því annars endar þetta á hausnum, hann selur þetta líka bara á 1500kr. íslenskar hvaða níska er það að cracka það?