Síða 1 af 1

Vesen með þráðlaust net á Ubuntu

Sent: Sun 12. Okt 2008 17:52
af coldcut
Sælir

Heyriði ég var að setja upp Ubuntu 8.04 á tölvuna mína og á í veseni með að tengjast netinu.
Ég sé netið mitt og einhver net hérna í kring en málið er að þegar ég vel það og skrifa WEP lykilinn (og já hann er réttur) og ýti á connect, þá snýst eitthvað uppi í hægra horninu í smá tíma og svo kemur aftur upp glugginn þar sem ég á að skrifa WEP lykilinn =/

Einhver sem getur aðstoðað mig við þetta? Get nefnilega ekkert gert eiginlega án netsins því ég þarf að downloada endalaust ad codecum og einhverju!

EDIT: er með Ralink RT61 netkort

Re: Vesen með þráðlaust net á Ubuntu

Sent: Sun 12. Okt 2008 18:03
af ManiO
Á OSX þarf að setja $ fyrir framan WEP lykilinn, gætir prófað það.

Re: Vesen með þráðlaust net á Ubuntu

Sent: Sun 12. Okt 2008 18:10
af coldcut
nei heyrðu mér sýnist ég vera búinn að redda þessu ;)

takk samt

Re: Vesen með þráðlaust net á Ubuntu

Sent: Sun 12. Okt 2008 18:12
af ManiO
coldcut skrifaði:nei heyrðu mér sýnist ég vera búinn að redda þessu ;)

takk samt


Mátt endilega deila því með okkur hvað var að og hver var lausnin ;)

Re: Vesen með þráðlaust net á Ubuntu

Sent: Sun 12. Okt 2008 18:18
af coldcut
heyrðu ég ýtti nú bara á netið mitt og þegar ég átti að skrifa WEP þá þurfti að hafa valið SEP64/128 Hex en ekki WEP128 Passphrase ;D

það voru nú öll ósköpin ;)