Síða 1 af 1

Bein tenging í router virkar ekki

Sent: Sun 10. Ágú 2008 02:55
af Swooper
Sælinú,
ég er með frekar gamlan Linksys Wireless-G router sem virkar fínt fyrir þráðlaust net en það er eins og það hreinlega virki ekki að tengja tölvu beint hann (bara eins og það sé ekkert tengt, nema það blikkar appelsínugult ljós á ethernet portinu á tölvunni). Þetta hefur ekki verið vandamál hingað til (síðasta 1 og hálfa árið hafa bara verið fartölvur á heimilinu), en ég var að fá mér borðtölvu sem er ekki með þráðlausu netkorti svo ég þarf að koma þessu í lag (tek það fram að þetta er ekki það að það vanti einhvern driver eða svoleiðis á nýju tölvuna, þetta hefur ekki virkað með aðrar tölvur heldur). Ég er búinn að kíkja á stillingar á routernum og sé í fljótu bragði ekki að það sé hægt að disabla þetta svona, en áður en ég fer og kaupi mér nýjan router eða resetta þennan með tilheyrandi veseni (setja upp þráðlaust net upp á nýtt, ugh)... Einhverjar hugmyndir um hvað gæti verið að? Einhver stilling sem sem ég ætti að double-tékka?

Re: Bein tenging í router virkar ekki

Sent: Sun 10. Ágú 2008 04:17
af Gúrú
Veit ekki hvort að netið ætti bara alls ekki að virka ef þetta er í ólagi en já:

Í Local Area Connection/Wireless connection -properties>NWLink IPX/SPX/NetBIOS Compatible Transport Protocol Eru einhverjar 2 tölvur með sömu tölurununa þarna?

Veit ekkert hvort þetta hjálpar eða ekki :wink:

Re: Bein tenging í router virkar ekki

Sent: Sun 10. Ágú 2008 04:39
af Zorglub
Prófaðu að fara í Local Area Connection, Internet protocol, properties og setja inn IP, Subnet og gateway handvirkt. (það er að segja ef þú treystir þér í svoleiðis æfingar :D )

Re: Bein tenging í router virkar ekki

Sent: Sun 10. Ágú 2008 12:01
af mind
Zorglub skrifaði:Prófaðu að fara í Local Area Connection, Internet protocol, properties og setja inn IP, Subnet og gateway handvirkt. (það er að segja ef þú treystir þér í svoleiðis æfingar :D )


Hann ætti nú samt líklega kíkja þangað hvort sem er , þarf ekki meira en að það séu fyrir fyrri eða vitlausar stillingar þar inni til að þetta myndi ekki virka. Ætti að vera stillt á "automaticly obtain ip address and gateway" eða álíka.

Swooper þú getur komist að því hvort þetta er borðtölvan eða routerinn með því að taka eina fartölvuna, slökkva á þráðlausa netinu og tengja hana með vír.
Svo ef hún kemmst á netið þannig þá er þetta borðtölvan, ef hún virkar ekki þá er þetta stillingaratriðið í routernum.

Re: Bein tenging í router virkar ekki

Sent: Sun 10. Ágú 2008 12:05
af Swooper
Ég hef prófað þetta með aðrar tölvur og það virkar ekki heldur, þetta er pottþétt routerinn. Ætlaði að halda mini-lan party fyrir nokkrum vikum.. það fór ekki vel. #-o

Ætla að kíkja á þær router stillingar sem er búið að benda á... læt vita hvort það gengur.

Edit: Ákvað að hringja bara strax í Vodafone og gá hvað þeir segja um þetta, gaurinn í þjónustuverinu sagði strax að portin á routernum væru steikt, miðað við bilanalýsinguna.

Re: Bein tenging í router virkar ekki

Sent: Sun 10. Ágú 2008 12:19
af mind
Já maður þarf bara vera nokkuð handlaginn til að takast að eyðileggja port á routerum. Kemur ljós á þau á routernum þegar þú tengir ?

Ég myndi frekar giska á hluti eins og það sé slökkt á DHCP fyrir ethernet portin eða álíka.

Re: Bein tenging í router virkar ekki

Sent: Sun 10. Ágú 2008 13:28
af depill
Ef þetta séu gömlu WAG routerarnir frá Linksys ( fjólubláir að framan, dökkir að aftan ), þá bara finndu næstu ruslatunnu, þetta er ónýtt :(

Því miður framleiddi Linksys nokkrar seríur af þessum routerum sem bara ja eru drasl og jamm það hljómar akkurat svona Ethernet steikist, WiFið virkar fínt :(

Re: Bein tenging í router virkar ekki

Sent: Sun 10. Ágú 2008 14:04
af Swooper
mind: Nei, það kom nefninlega ekki ljós á portið á routernum né framan á honum, eina ljósið sem kom var appelsínugult á ethernet portinu á tölvunni.

depill.is: Jebb þetta er þessi með fjólubláa að framan. Búinn að fara upp í Vodafone og fá nýjan router, ekkert vandamál með hann og kominn með nýju í netsamband :)

Re: Bein tenging í router virkar ekki

Sent: Mán 11. Ágú 2008 21:02
af coldone
Ég er með ZyXEL Prestige 600 og er í nákvæmlega sömu vandamálum, þ.e. wifi virkar en það gengur ekkert með lan portin. Það koma ekki ljós þegar ég sting snúru í samband og hef ég prufað nokkrar. Hef einnig prufað nokkrar tölvur og ekkert gengur. Kannast einhver við þetta í þessum routerum?

Re: Bein tenging í router virkar ekki

Sent: Mán 11. Ágú 2008 21:08
af dezeGno
coldone skrifaði:Ég er með ZyXEL Prestige 600 og er í nákvæmlega sömu vandamálum, þ.e. wifi virkar en það gengur ekkert með lan portin. Það koma ekki ljós þegar ég sting snúru í samband og hef ég prufað nokkrar. Hef einnig prufað nokkrar tölvur og ekkert gengur. Kannast einhver við þetta í þessum routerum?


Ég kannast við þetta, er einmitt að lenda í þessu núna, er að spá í að fara með routerinn upp í vodafone í vikunni og fá nýjan, þó ég nenni því varla.

Re: Bein tenging í router virkar ekki

Sent: Þri 12. Ágú 2008 02:34
af DoofuZ
Ég lennti í svipuðu vandamáli um daginn. Var að færa routerinn og ákvað að tengja switch við hann sem allar tölvurnar tengjast svo við líka en það var ekki að virka, tengingin á milli router og switch var eitthvað svakalega óstöðug og til að útiloka switchinn þá tengdi ég eina af tölvunum við routerinn og sama vandamál kom þar :| Þetta var mjög skrítið því áður en ég fór að tengja switchinn þá voru allar tölvur tengdar við routerinn og allt í góðu lagi :-k En svo fór ég bara með routerinn til Tal og fékk annan sem virkar :D