Síða 1 af 1

Eyða út Windows möppu

Sent: Sun 11. Maí 2008 14:57
af Heliowin
Ég er að velta því fyrir mér hvernig það er þegar maður vill eyða út einu Windows xp kerfi á tölvu með tveimur XP.
Ég er á því að maður þurfi að edita boot.ini og fjarlægja annað kerfið, endurræsa og síðan eyða út viðkomandi Windows möppu ef þær eru tvær.

Ég vil spyrja hvort þetta sé ekki leiðin að fara því það er einn sem vill meina að Windows möppu megi ekki eyða. Ég set stórt spurningarmerki við það og efast um að það megi ekki.

Re: Eyða út Windows möppu

Sent: Fim 15. Maí 2008 00:11
af Frammi
Það er í lagi að eyða þeirri Windows möppu sem ekki er í notkun, þ.e. ef það á vissulega ekki að nota hana aftur.

Til að sjá hvor mappan er í notkun finnst mér best að keyra skipanalínuglugga; Start > Run > Skrifa 'cmd' > OK

Skrifa svo skipunina set windir. Útkoman er yfirleitt eitthvað svona: windir=C:\Windows

Re: Eyða út Windows möppu

Sent: Fim 15. Maí 2008 06:18
af Heliowin
Ok takk fyrir, það var líka gott að fá skipunina.

Re: Eyða út Windows möppu

Sent: Fim 15. Maí 2008 11:18
af Frammi
Heliowin skrifaði:Ok takk fyrir, það var líka gott að fá skipunina.


Console-ið hefur margt að bjóða.:) Notaðu t.d. set til að fá lista yfir allar breyturnar sem eru settar hverju sinni.