Síða 1 af 1

Microsoft hatari nr. 1

Sent: Mán 13. Okt 2003 15:38
af halanegri
Svolítið löng lesning, en áhugaverð samt.

http://www.euronet.nl/users/frankvw/IhateMS.html

Sent: Mán 13. Okt 2003 16:43
af Damien
gmg ekki lastu þetta allt! :shock:
Ég fékk nú bara fyrir hjartað þegar ég opnaði linkinn! :o

Sent: Mán 13. Okt 2003 16:46
af halanegri
Ég er búinn að lesa svona 35% af þessu núna....

Sent: Mán 13. Okt 2003 16:52
af Damien
Ég ætlaði að segja það...
Ég nenni ekki að lesa þetta.
Ég bíð bara þangað til að þú ert búinn að lesa þetta og bið þig svo um að pósta athyglisverðum punktum. :wink:

Sent: Mán 13. Okt 2003 17:01
af ICM
það er magt til í þessu en samt er hellingur af villum í þessu, útúrsnúningum og hann hunsar algjörlega þær staðreyndir að Microsoft er ekki bara að gera Windows... Microsoft er í bullandi þróunar vinnu með ýmsum aðilum og er að gera góða hluti þó svo þeir séu að kaupa HELLING að tækni frá öðrum aðilum, hvað í helv. gerir það verra að kaupa tækni af einhverjum?

Allt þetta tal hans um þessar tunglferðir og gervitungl... Hann heldur því fram að þessar lélegu tölvur hafi verið færar um að vinna mjög hratt úr þessum háupplausnar myndum en tölvan hans sem er miklu öflugri gæti ekki unnið almennilega með póstforrit. Þessi maður hefur kynnt sér ágætlega söguna, þó á heldur þröngsýnu sviði en það dugar engan vegin.

Hægt að koma með dæmi = Gallíleó var sendur til að taka myndir af júpíter og var hann með löngu úreltum tölvubúnaði, sem var þó mun öflugri en þessi búnaður sem greinarhöfundurinn hélt að væri fær um að vinna vel með póstforritin hans.
# 1 Gallíleo var SÉRHANNAÐUR me þetta verkefni í huga og þurfti tölvan ekki að vera að reikna út marga hluti samtímis. Venjulegar heimilistölvur eru gerðar með það markmið að gera nánast alla hluti sem notendanum dettur í hug að láta þær gera.
# 2 Gallíleo var legni að vinna úr myndunum en ekki fljótur.
# 3 Uppfæra þurfti allan hugbúnað í gallíleo frá jörðu vegna þess að hann átti í alltof miklum erfiðleikum að vinna úr svona stórum myndum svo þeir skiptu vinnunni niður í pínulitlar einingar. Ef tölvan þín myndi vinna þannig þá get ég lofað því að þú yrðir illa pirraður. Ok þú gætir sjálfsagt sent e-mail til ömmu þinnar með þannig tölvu, en þú gætir ekki gert aðra hluti á meðan...

Ef hann sér ekki mikin mun í office forritum frá 80's tímabilinu og núna þá er ekki í lagi með hann! Þó hann þurfi ekki að nota þær þá er annað fólk sem kann á forritin og vill jafnvel fá ENNÞÁ fleiri eiginleika inní forritin, sem hann kallar óþarfa. Fínt ef hann er svona óánægður afhverju notar hann þá ekki bara gamla 386 tölvu... Byggt á áratuga gömlum hugmyndum. hvað er UNIX þá?

NT er ekki new technology heldur nTEN eða eitthvað álíka, fékk það nafn því Microsoft voru að vinna að NT fyrir örgjörva sem var ekku búið að klára ennþá og þurftu þeir þá að keyra emulator... en ég man ekki söguna. Það þekkja þetta samt allir sem new technology í dag, sennilegast því það hljómar svo líklegt.

Sent: Mán 13. Okt 2003 17:10
af halanegri
IceCaveman skrifaði:Byggt á áratuga gömlum hugmyndum. hvað er UNIX þá?


UNIX er gamalt já, en það hefur sitt uptime. :D

Sent: Mán 13. Okt 2003 17:44
af ICM
já en þessi dúddi var að segja að allt þyrfti að vera glænýtt til að vera gott..

Sent: Mið 19. Nóv 2003 13:03
af Aptiva
IceCaveman skrifaði:já en þessi dúddi var að segja að allt þyrfti að vera glænýtt til að vera gott..


Er unix ekki í stöðugum uppfærslum?

Sent: Mið 19. Nóv 2003 13:57
af gnarr
síðast þegar ég gáði þá er windows líka með auto update kerfi... svo að unix er ekkert eina stýrikerfið sem að er stanslaust veriðað uppfæra.

Sent: Mið 19. Nóv 2003 14:24
af Aptiva
gnarr skrifaði:síðast þegar ég gáði þá er windows líka með auto update kerfi... svo að unix er ekkert eina stýrikerfið sem að er stanslaust veriðað uppfæra.


sagði ég það?

Sent: Mið 19. Nóv 2003 14:31
af ICM
Aptiva: NT er líka í stöðugri þróun, það var það sem ég var að tala um.

Sent: Mið 19. Nóv 2003 14:35
af Aptiva
IceCaveman skrifaði:Aptiva: NT er líka í stöðugri þróun, það var það sem ég var að tala um.


Ég veit að Win hefur update forrit/kerfi :) Ég sagði heldur ekkert um win!

Sent: Mið 19. Nóv 2003 14:58
af ICM
nei aptiva en þá hefðiru getað sleppt þessu commenti því það er algjörlega útúr umræðunni.

Sent: Mið 19. Nóv 2003 15:30
af Aptiva
IceCaveman skrifaði:nei aptiva en þá hefðiru getað sleppt þessu commenti því það er algjörlega útúr umræðunni.


Þið voruð að tala um hvað unix væri gamalt. En upphaflega unixið er ekkert eins og það er í dag. Nákvæmlega eins og win95 er öðruvísi en winXP

Sent: Mið 19. Nóv 2003 15:33
af ICM
Aptiva lastu greinina sem halanegri tengdi inná? Ég var að tala um hana.

Sent: Mið 19. Nóv 2003 15:44
af Aptiva
IceCaveman skrifaði:Aptiva lastu greinina sem halanegri tengdi inná? Ég var að tala um hana.


... Forget it