Síða 1 af 4
Er að hugsa um að svíkja lit.
Sent: Mán 24. Mar 2008 00:31
af GuðjónR
Ég er að verða meira og meira hrifinn af þessu dóti hérna. Hef aldrei átt svona en held að það sé kominn tími á að prófa!
Hverjir eiga svona eða hafa átt svona og hver er ykkar reynsla?
Væri alveg til í að flippa aðeins og kaupa 24" vélina.
Sent: Mán 24. Mar 2008 01:12
af eigill3000
fæ alltaf hausverk þegar ég er í macc tölvum.... :S
Sent: Mán 24. Mar 2008 12:30
af Dagur
Apple er illskan uppmáluð
Sent: Mán 24. Mar 2008 14:04
af Yank
Endilega láttu okkur svo vita hvernig gengur
Sent: Mán 24. Mar 2008 14:46
af GuðjónR
Er strax kominn með bakþanka
Sent: Mán 24. Mar 2008 15:18
af hallihg
Eðlilega, flott 194 þúsund króna flipp
Og þetta er náttúrulega Makki. Ég fæ bakþanka um hvað ég sé að gera í kringlunni þegar ég geng framhjá Apple búðinni þar og skynja hliðarverkanir ofurálagningar.
Sent: Mán 24. Mar 2008 15:20
af HaftorS
Svo má nú ekki gleyma hvað allir maccarnir eru overpriced hérna á Fróni.
tæpur 200 þús kall fyrir:
core2 duo
320 gb disk
1 gb ram
ég segi stopp á það.
Sent: Mán 24. Mar 2008 16:17
af hallihg
Þú verður samt að athuga sko að skjárinn er
há-glans
Sent: Mán 24. Mar 2008 18:05
af andribja
Ég er nú hæstánægður með minn makka... Tölvan var reyndar keypt notuð svo ég borgaði ekki alveg svona mikið!
Reyndar fékk ég ansi góðan díl.. og 4GB er mun ásættanlegra en 1!
Sent: Mán 24. Mar 2008 18:26
af zedro
Dont do it man! Ef þú ætlar yfir höfuð að fá þér macca þá held ég að
MacBook Air sé málið. Ég persónulega fíla ekki tölvuskjákassa ef eitthvað bilar þá þarf að laga allt
Sent: Mán 24. Mar 2008 19:19
af urban
ég persónulega fengi mér nú alls ekki macbook air.
eitthvað við það að ég vill hafa cd/dvd drif á vélunum mínum
aftur á móti fengi ég mér alveg hiklaust macbook
Sent: Mán 24. Mar 2008 19:31
af zedro
urban- skrifaði:eitthvað við það að ég vill hafa cd/dvd drif á vélunum mínum
Þegar mar pælir í því notar mar geisladrif nógu mikið til að réttlæta það að þurfa hafa það í vélinni? Ég nota örsjaldan diskadrifið mitt
gæti allveg eins átt bara utanáliggjandi drif.
urban- skrifaði:aftur á móti fengi ég mér alveg hiklaust macbook
Já verð að vera sammála væri til í að prufa eina þannig.
Sent: Mán 24. Mar 2008 21:55
af GuðjónR
Það eru eiginlega þrjár ástæður fyrir því að mig langar að prófa þetta, ég veit að miðað við vélbúnað er þetta crazy verð.
En þær ástæður sem liggja að baki pælingarinnar eru:
1) Forvitni og nýjungargirni, er búinn að eiga haug að PC en aldrei prófað MAC.
2) Horfði á
þessa kynningu um daginn og þvílíkt snilld sem þetta "UNIX" stýrikerfi er.
3) Vantar fyrirferðalitla og snyrtilega tölvu miðsvæðiðs í húsið sem allir hérna geta haft aðgang að.
Sent: Mán 24. Mar 2008 23:11
af Viktor
Hef alltaf haft mikinn áhuga á því að byrja að vera Makkari. Finnst forritin sem fylgja með svo fáránlega þæginleg og nytsamleg. Engir vírusar, virkar með öllu...
Sent: Mán 24. Mar 2008 23:39
af daremo
Ég hef notað DOS, Windows 3.x-2008, BeOS, Solaris, HP-UX, FreeBSD og Linux með alls konar fancy og ekki-svo-fancy gluggaumhverfum.
En aldrei hef ég verið jafn pirraður á tölvu og þegar ég notaði MacOS X.
Það lítur kannski vel út, en þetta stýrikerfi er viðbjóður.
Ef þú ætlar að fá þér Mac ætla ég rétt að vona að þú setjir annað stýrikerfi á hana.
Sent: Mán 24. Mar 2008 23:41
af urban
Zedro skrifaði:urban- skrifaði:eitthvað við það að ég vill hafa cd/dvd drif á vélunum mínum
Þegar mar pælir í því notar mar geisladrif nógu mikið til að réttlæta það að þurfa hafa það í vélinni? Ég nota örsjaldan diskadrifið mitt
gæti allveg eins átt bara utanáliggjandi drif.
ég á bara helling t.d. helling af ljósmyndum á DVD diskum
Sent: Þri 25. Mar 2008 00:28
af Pandemic
Sallarólegur skrifaði:Hef alltaf haft mikinn áhuga á því að byrja að vera Makkari. Finnst forritin sem fylgja með svo fáránlega þæginleg og nytsamleg. Engir vírusar, virkar með öllu...
Virkar með öllu? tja ekki flash kubb sem ég átti fyrir löngu áður en hann brann yfir í usb portinu á G5 macca.
Ég er neyddur stundum til að nota macca vegna grafískrar vinnslu og ég er ekki ánægður.
Sent: Þri 25. Mar 2008 13:10
af djjason
Pandemic skrifaði:Sallarólegur skrifaði:Hef alltaf haft mikinn áhuga á því að byrja að vera Makkari. Finnst forritin sem fylgja með svo fáránlega þæginleg og nytsamleg. Engir vírusar, virkar með öllu...
Virkar með öllu? tja ekki flash kubb sem ég átti fyrir löngu áður en hann brann yfir í usb portinu á G5 macca.
Ég er neyddur stundum til að nota macca vegna grafískrar vinnslu og ég er ekki ánægður.
Það er mikið til í þessu sem Pandemic er að segja og margir flaska oft á þegar þeir horfa til Mac sem töfralausnina sem bara
virkar.
Ég hef notað Macbook Pro núna í rúmlega tvö ár. Ég gerði það reyndar ekki by choice heldur vegna þess að það átti að verzla handa mér nýjan laptop fyrir vinnuna og það var Mac eða ekkert.
Allavega, Mac virkar
ógeðslega vel þegar þú ert að nota iPhoto fyrir myndirnar þínar, Mail.app til að senda tölvupóst með myndunum, iTunes fyrir tónlist sem þú syncar síðan við ipod, og bacup-ar allt draslið á TimeCapsule með TimeMachine, og færð þráðlaust net í gegnum Airport. En þetta er einmitt málið....það virkar algjörlega flawless með hardware og software frá Apple....því Apple vill búa til Monopoly þar sem allt sem þú notar er frá þeim og engum öðrum.
Ég hef oft lent í því á Mac að það sem ég þarf að gera (setja upp forrit og annað) tekur mig óendanlegan tíma og stillingar sem oft á tíðum er meira vesen en að gera það á Windows. Ég þarf nefninlega að geta komið minni vél í sérstakt "Development" stage...eitthvað sem var breeze á Linux...en það er bara höfuðverkur á Mac oft á tíðum.
Síðan er það nú þannig að Mac er overpriced...þeir eru nú ridiculously overpriced á Íslandi en þeir eru líka dýrir í USA því þegar á öllu er á botnin hvolft þá er þetta sama hardware-ið og annars staðar þú ert bara að borga fyrir OS og burstaðan ál case.
Sent: Þri 25. Mar 2008 13:56
af elfmund
guð minn góður... þvílíkir fordómar hérna
þessar tölvur eru fokking æðislegar....
ég kem uppalinn úr MS-DOS umhverfinu og uppfærðist alla leið þaðan í gegnum Windows 3.11 --> Win95 --> Win98 --> Win98SE --> Win2000 --> WinXP
þegar ég var á síðasta árinu mínu í Háskólanum í Reykjavík þá skipti ég úr 1,2Ghz HP Fartölvu í 400Mhz Powerbook fartölvu og guð minn góður hvað ég elskaði þá tölvu heitt!!
síðan hef ég ekki litið til baka.....(janúar 2000)
síðan þá hef ég átt
PowerPC vélar
Powerbook G4 400Mhz
Mac Cube G4 400Mhz
túbu iMac G3 500Mhz
15" iMac G4 733Mhz
15" iMac G4 800Mhz
Powerbook 12" G4 1,33Ggz
Powerbook 15" G4 1,25Ggz
Intel vélar
Mac Mini 1,67Ghz Intel Core Duo
15" MacBook Pro 2,4Ghz Intel Intel Core 2 Duo (æðisleg tölva)
15" MacBook Pro 2,4Ghz Intel Intel Core 2 Duo (kærastan mín á þessa)
Mamma og pabbi eiga 20" Intel Core Duo 2 iMac
þetta eru tölvur sem eru fokking æðislegar og þeir sem segja : "mac gefur mér hausverk" eða "mac er lame" eða "mac er ekki nógu kraftmikið stöff" hafa hreinlega ekki prófað þessar græjur
GuðjónR... ég mæli HIKLAUST með þessari græju og 24" tölvan er hrein og klár FEGURÐ!
DO IT DO IT
kíktu á
http://www.maclantic.com og láttu sannfærast
kv,
Hörður[/b]
Sent: Þri 25. Mar 2008 14:39
af djjason
...og rökin fyrir því að prófa Mac eru.......
elfmund skrifaði:þessar tölvur eru fokking æðislegar....
Sent: Þri 25. Mar 2008 14:54
af beatmaster
djjason skrifaði:...og rökin fyrir því að prófa Mac eru.......
elfmund skrifaði:þessar tölvur eru fokking æðislegar....
Ekki gleyma...
elfmund skrifaði:...hrein og klár FEGURÐ!
Sent: Þri 25. Mar 2008 16:29
af elfmund
nákvæmlega
ég var t.d. núna að taka umbúðirnar utan af Time Capsule græjunni minni
holy moly trappatoni hvað þetta er gott stöff
uppsetningin tók 1 mínútu og ég er farinn að bakka upp gögnin mín yfir 802.11n þráðlaust net...
Sent: Þri 25. Mar 2008 18:13
af GuðjónR
Hættur við þessa pælingu!
Talandi um að nýta sér ástandið í þjóðfélaginu á viðbjóðslegan hátt!
Hækkuðu tölvuna um rúm 15% í dag. Úr 194.990.- í 229.990.-
Mjöööööög líklegt að þeir hafi fengið sendingu af tölvum í páskafríinu.
Sent: Mið 26. Mar 2008 12:01
af mind
Ég ætlaði einmitt að fara vara þig við því að gera þetta.
Þú ert ennþá ungur og átt allt lífið framundan , engin ástæða fyrir að kasta því öllu fyrir sjónhverfingar lúsifers.
Sent: Mið 26. Mar 2008 20:46
af ErectuZ