Hive Rusl!
Sent: Sun 03. Feb 2008 15:07
Ég varð bara að deila því hérna með ykkur hérna og vona að þetta verði til þess að halda fólki frá því að flytja tenginguna sína yfir til Hive.
Ég er búinn að vera hjá Hive alveg síðan fyrirtækið byrjaði og ég er búinn að hlusta á lygarnar í þessu pakki alveg frá fyrsta degi.
Það var auðvitað ekkert tilbúið hjá þeim til að byrja með og gekk allt á afturfótunum og yfirleitt hafði ég minni hraða heldur en þegar ég var með 33.6 módem og meira að segja gekk þetta það langt að þegar mig vantaði rekla fyrir skjákort og annað vegna þess að ég þurfti að setja aftur upp vélina mína, þá endaði ég á því að sækja þá í vinnunni hjá mér á 56k módemi vegna þess að ég hafði ekki náð að tengjast neinu erlendis frá í nokkrar vikur, en ekki datt þessu fyrirtæki einusinni í hug að segja "sorry" eða reyna að bæta manni þetta að neinu leiti.
Síðan hefur þetta gengið svona skítsæmilega nema hraði erlendis frá hefur aldrei verið góður, ekki einusinni sæmilegur.
Ekki má gleima því þegar enginn náði að tengjast neinum siðum úti og allt samband út var alveg dáið í lengri tíma og enginn fékk nein svör frá þessu svokallaða þjónustuveri þeirra, og því til viðbótar dó allt netsamband innanlands líka ef einhver vogaði sér að kveikja á torrent client eða limewire eða einhverskonar p2p client, var það auðvitað vegna þess að þetta skítabatterí var að koma upp og stilla síurnar hjá sér svo það væri alveg pottþétt að enginn næði í neitt að utan á þessu svokallaða "fría utanlands niðurhali" hjá þeim, lítið mál að vera með frítt utanlandsdownload ef það er lokað á netið hjá þér til útlanda.
Ekki vildu Hive menn viðurkenna að það væru neinar síur í gangi eða takmörkun að neinu tagi, þú lentir bara í "lægri forgang" eins og þeir sögðu það, en það var ekki cap, sía eða nein höft að neinu tagi, bara "lægri forgangur"
Enn einusinni í viðbót hlustuðu menn á þetta kjaftæði í þeim og létu sig hafa það.
Núna seinustu tvö árin hef ég haft aðgang að tvemur öðrum tengingum í viðbót, ein simnet tenging og ein ogvodafone og alltaf þegar ég þarf að sækja eitthvað að utan, þá hef ég bara loggað mig inná þær tengingar og sótt það sem ég hef þurt að sækja, nánast aldrei verið neitt að ráði, bara linux iso fælar, driverar eða eitthvað sem ég þarf að ná í og ég er yfirleitt alltaf mun fljótari að sækja það á annari tengingu og uplóda svo þaðan yfir til mín heldur en að sækja það beint á minni tengingu, vegna þess að Hive er með svo mikið cap að það bara kemur nánast ekkert til mín að utan.
Núna í lengri tíma hafa síurnar hjá þeim verið eitthvað fanatískar vegna þess að ég hef ekki getað horft á neitt á youtube.com eða neinum svoleiðis síðum, það bara tæmar út tengingin og ég fæ ekki allt videoið, þá er nú full langt gengið í að hefta samband okkar notenda við umheiminn.
Núna ætla ég að fara að segja bless við þetta fyrirtæki sem ég er búinn að bíða í nokkur ár eftir að þeir fari að haga sér eins og menn eða reyna að vera heiðarlegir vegna þess að ég er búinn að gefast upp á því og ég ætla meira að segja að vera nokkuð duglegur við að ráðleggja fólki frá því að skipta við Hive.
Langar að bæta hérna við að með því að dl stanslaust að utan með torrent í allann januar, þá tókst mér að ná í 16.12 gb að utan, aðrar netveitur setja kanski cap á viðskiptavinina þegar þeir fara upp fyrir 20 gb á viku.
Ps. Þú borgar einhvern 250 eða 350 kall á mánuði í "tryggingargjald" fyrir "fría" routerinn sem þeir lána þér.