Síða 1 af 1

Save Windows XP Petition

Sent: Fim 17. Jan 2008 15:20
af dadik
Infoworld er að safna undirskriftum til að lengja líf xp. Núverandi plan er að almennri sölu verði hætti 30. júní á þessu ári - eftir það verður bara hægt að kaupa Vista.

Ef þér finnst þetta slæm hugmynd geturðu sett nafnið þitt á undirskriftalistann

Sent: Fim 17. Jan 2008 15:46
af eigill3000
Vona að þetta virki... :cry:

Sent: Fim 17. Jan 2008 16:15
af Dazy crazy
ef windows xp dettur útaf markaðinum þá á ég eftir að hætta að dl windows stýrikerfum.

Sent: Fim 17. Jan 2008 16:54
af Stebet
dagur90 skrifaði:ef windows xp dettur útaf markaðinum þá á ég eftir að hætta að dl windows stýrikerfum.


hahahahaha.... quote dagsins held ég svei mér þá


Annars vona ég að þið vitið að það kemur annað stýrikerfi á eftir Vista? :P

Sent: Fim 17. Jan 2008 17:20
af Windowsman
Ég er Xp notandi þar sem að ég hef enga þörf til að uppfæra mínar tölvur meðan þær keyra á Xp en ef ég skipti í vista þá þarf ég að uppfæra margt t.d. skjákort og síðan er vista hell on vinnsluminni.

En mér getur ekki verið meira sama þótt að þeir hætti að selja xp. Það er þeirra slæma ákvörðun því að þá byrja t.d. allir að niðurhala Windows xp og þeir tapa tekjum.

Ég er samt ekkert að drulla yfir vista það er ein Fartölva sem er með Vista og hún virkar vel. En mín skoðun er sú að ef einstaklingur ætlar að t.d. fá fartölvu með vista þá þurfi fartölvu eins og Dell XPS M1330.

Hún keyrir vista rosalega vel. En reyndar er einn galli við vista að það á eftir að laga bugs.

En þegar ég fæ mér næst nýja tölvu þá ætla ég að fá mér Windows Vista því að við skulum viðurkenna að Windows Vista er framtíðin.

Sent: Fim 17. Jan 2008 17:21
af CendenZ
er vaktin að fyllast af krökkum eða ?

windows 2000 vs Xp all over again folks!

Sent: Fim 17. Jan 2008 17:30
af beatmaster
CendenZ skrifaði:er vaktin að fyllast af krökkum eða ?

windows 2000 vs Xp all over again folks!
Nákvæmlega, þetta virðast vera orðrétt sömu rökin gegn Vista og voru notuð gegn XP þegar að það var að koma og fólk vildi ekki sleppa höndunum af WIN 2000

Get ekki beðið eftir því þegar að næsta stýrikerfi tekur við af Vista, þá byrjar sama ballið upp á nýtt.

Svo má heldur ekki gleyma því að XP án SP1 er ónothæft, með SP1 sleppur það til en varla það.

XP varð ekki það sem það er í dag fyrr en með SP2, ekki gleyma alltaf öllu sem að gerðist í fortíðinni (nema flestir inni á þessu spjallborði seu bara um 14 ára aldurinn og hafi ekkert munað til að geta gleymt) :P

Sent: Fim 17. Jan 2008 17:33
af Halli25
win xp verður í sölu út þetta ár og hættir í sölu í janúar skv. mínum heimildarmönnum ;)

Sent: Fim 17. Jan 2008 18:09
af Pandemic
Sumir hafa greinilega aldrei heyrt um Service Pack..
Ásamt því að vera á móti jákvæðum breytingum

Sent: Fös 18. Jan 2008 00:12
af Dazy crazy
ég er ekki 14 ára en ég er bara nýbyrjaður samt að reyna að læra á tölvur og var ekki inní málunum með windows 2000, hef reyndar aldrei átt tölvu með windows 2000 það var bara win95 og xp eða kannski win98. :roll:

Sent: Fös 18. Jan 2008 11:16
af ErectuZ
Sannleikurinn er einfaldlega sá að Vista er það sem koma skal. Gengur ekkert upp að vera að forðast breytingar og framfarir endalaust. Þetta er alveg nákvæmlega það sama og almenningur gerði þegar XP kom á markað, ríghélt sér í windows 2000 af því að XP "studdi ekki neitt og virkaði ekki neitt". Sama með Windows 98 og Windows 2000 (Ég sleppi Windows ME af augljósum ástæðum :lol: ).

Vista er það sem koma skal og ekki er hægt að halda sig við XP endalaust. Það hefur verið til á markaði í rúm 6 ár núna, sem er lengsta tímabil sem Windows-stýrikerfi frá Microsoft hefur nokkurn tíman verið flaggskip seríunnar og er kominn tími til að það fái aðeins að hvílast og að við fáum eitthvað nýtt góðgæti til að kjamsa á.

Þannig að hættið þessu væli strákar :P I, for one, welcome our new Vista overlord!

/rant

Sent: Fös 18. Jan 2008 12:24
af Windowsman
Þetta er alveg rétt hjá þér. Ég var þarna nú ekkert í tölvumálunum þegar Xp kom á markaðinn en þá hafði ég bara verið með tölvur. Þar til fyrir 3 árum þegar maður fékk sér nýja tölvu. Þá er Xp á henni og ég elskaði það.

En reyndar held ég að Vista sé varla notanlegt í mikla vinnslu þangað til að SP1 komi út og þegar SP2 kemur þá verða allir nánast komnir yfir í Vista.

En enn sem kemur hef ég enga ástæðu til að skipta yfir í Vista. Nema þegar maður er að kaupa nýja tölvu þá held ég að Vista Ulitimate(eða hvað það hét) verði fyrir valinu eða premium sem að ég er með á lappanum.

Reyndar er beint útsagt að það er ekkert sniðugt að setja Windows Vista á tölvur sem eru eldri en hvað segir maður í sumar?

Ég játa það að ef ég myndi kaupa nýja tölvu í dag myndi ég nota Vista á henni og setja linux upp á hina.

En það er svo barnalegt að segja sem að því miður ég hef heyrt marga félaga mína segja 'Vista sökkar maður kemst ekki inná netið á því' og síðan heyrði ég þetta nýlega ' Vista er ömurlegt ég kemst ekki inná netið á tölvunni minni því að hún er með Vista'.

þegar ég heyrði þetta spurði ég meira um málið. Þá kemur í ljós að netið virki á vinnustað og skóla en ekki heima.

ég held að fólk sé bara með einhverja fordóma.

VISTA er framtíðin.

Sent: Fös 18. Jan 2008 12:42
af beatmaster
Ég held að það væri gaman fyrir fólk að taka raunprufu á því hvort stýrikerfið er betur hannað með því að prufa Vista eins og það er í dag án service pakka og XP án service pakka og athuga hvort kerfið virkar betur

Sent: Fös 18. Jan 2008 13:23
af Hyrrokkin
Allir bara á linux og málið er dautt! ;þ

Sent: Fös 18. Jan 2008 14:07
af eigill3000
Hyrrokkin skrifaði:Allir bara á linux og málið er dautt! ;þ


Þá væri lífið mitt dautt :(

Sent: Fös 18. Jan 2008 16:20
af Hyrrokkin
eigill3000 skrifaði:
Hyrrokkin skrifaði:Allir bara á linux og málið er dautt! ;þ


Þá væri lífið mitt dautt :(


Everyone! Quick! Linuxize!

Nei, segi svona.. :P

Sent: Lau 19. Jan 2008 18:10
af Zorba
Windows ME FTW!