Síða 1 af 1
XP og hægvirk nettenging
Sent: Þri 23. Sep 2003 21:01
af Birk
Hef nýlega sett upp Xp á tölvuna mína og eftir það hefur nettengingin verið mun hægari en var áður með win98.
Þetta lýsir sér þannig að fyrstu tíu mínúturnar eftir að ég kveiki á tölvunni og tengist þá er hraðinn eðlilegur en eftir það er hann hægari en væri ég með 56k módem.
Einhverjar hugmyndir??
Sent: Þri 23. Sep 2003 21:06
af Voffinn
Ef þú ert að koma með svona vandamál þarftu ða koma með meiri staðreyndir handa okkur... við erum ekki skyggnir og erum alls ekki með neina töfralausn.
Hvernig router/módem ?
Hvernig tenging og hjá hverjum ?
Hvernig tölva ?
Og þaðan af... etc, etc, etc.
Sent: Þri 23. Sep 2003 21:14
af Birk
itex modem
256kbs tenging hjá vodafone
256 mb innra minni
Sent: Mið 24. Sep 2003 03:43
af gnarr
Birk skrifaði:256kbs tenging hjá vodafone
er það til?
það er btw vinsluminni, ekki innraminni. nema að þú sért kanski betaprófari hjá intel/amd
Sent: Mið 24. Sep 2003 12:08
af halanegri
"innra minni" er ekki cache, heldur þýðir það RAM, alveg eins og "vinnsluminni"
Sent: Mið 24. Sep 2003 12:25
af Gothiatek
Ertu nokkuð að svissa á milli notenda með tenginguna í gangi? Það getur virkað mjög illa að tengjast sem einn notandi, svissa svo yfir í annan og ætla að nota tengingu (þegar maður er með inbyggt módem allavegana), þá á hún það til að hægja á sér eða deyja alveg!!!
Sent: Fim 25. Sep 2003 01:11
af gnarr
nei.. innraminni er cache. það er einmitt "innra" minni vegna þess að það er byggt inní örgjörfann.
don't mess with me.. ég fékk 9.7 í tæk103 og 9.9 í tæk203
hehe
Sent: Fim 25. Sep 2003 01:23
af gumol
Ég toppa það, útskrifaðist með 10 í forritun útúr grunnskóla
Sent: Fim 25. Sep 2003 02:50
af halanegri
gnarr: Nei, RAMið er kallað innraminni því það er meira "inní" heldur en hdd(þó að innraminni sé gott nafn fyrir cache, en það er bara notað "flýtiminni" í staðinn). Finnst þér þá ekki skrítið að allar tölvuverslanir sem minnast á innraminni eru að tala um RAM?
Sent: Fim 25. Sep 2003 13:07
af MezzUp
úff, ég nota bara RAM og chache
Sent: Fim 25. Sep 2003 16:50
af ICM
MezzUp skrifaði:úff, ég nota bara RAM og chache
hvernig væri að nota L2 chache, L3 chache og svo RAM? forðast allan rugling og ekki nota helv. íslensku yfir þetta ef það eru ekki ensku slettur.
Sent: Fim 25. Sep 2003 17:35
af gnarr
það er alveg nóg að skrifa L1, L2, L3 og Ram. ég held að allir skilji það