Síða 1 af 1
Er til almennileg innlend hýsing?
Sent: Sun 28. Okt 2007 23:55
af Heliowin
Ég vona að þetta sé í rétta foruminu. Vinsamlegast færið ef ekki.
Ég þarf að fá mér vefhýsingu og er mjög spenntur fyrir
http://www.lunarpages.com/ svo það er varla að maður haldi vatni. Málið er að það er ekki að hægt að borga með check/money order frá Íslandi og ég þarf að útvega mér þá kreditkort sem tekur nokkrar vikur og vesen.
Þessvegna spyr ég hvort þið hafið einhverja vitneskju um góðan hýsingaraðila á landinu þar sem ekkert vesen er með greiðslumöguleika?
Mér finnst þetta annars það sem ég hef skoðað vera mjög takmarkað.
Sent: Mán 29. Okt 2007 01:14
af kiddi
Íslensk hýsingarfyrirtæki eru að keyra á 10 ára gömlum verðskrám. Hér heima ertu að borga frá 2þús og allt að 5þús á mánuði fyrir "lúxus" eins og 50, 100, JAFNVEL... 150 MB pláss, 3-10 netföng etc. Borgar svo slatta fyrir hverja DNS tilvísun, borgar sérstaklega fyrir "fríðindi" eins og tölfræði kerfi, PHP/SQL stuðning o.s.frv.
Úti í hinum raunverulega heimi samt, þá ertu að borga kannski 300-400 kr. íslenskar á mánuði fyrir 100-400 GB, já GÍGABÆTI af plássi, fleiri tugi ef ekki hundruði af netföngum - og jú, DNS tilvísanir, tölfræðikerfi, PHP/SQL o.s.frv, er sjálfssagður hlutur sem þeir myndu ekki dirfast að rukka fyrir sérstaklega.
Semsagt, fáðu þér bara fyrirframgreitt Mastercard/VISA, leggðu 5þús kall inn á það á eins árs fresti og þá ertu í góðum málum. Ekki versla við íslendinga.
Sent: Mán 29. Okt 2007 01:18
af dezeGno
Ég ætla að benda þér á erlenda hýsingu þar sem þú þarft að hafa kreditkort, en er vel þess virði að skoða. Vil bara benda þér á þetta fyrir tæki þó þú hafir beðið um annað.
http://www.bluehost.com Endilega kíktu á þetta, þú getur annað hvort keypt í 3mán, 6mán, 12mán eða 24mán ef ég man rétt.
Innidfalið í verðinu er:
300GB pláss.
Getur hýst ótakmarkað magn af lénum á sama account.
Getur verið með ótakmarkað magn af undirlénum.
3000GB bandvídd á mánuði.
1000 ftp accounts.
50 MySQL accounts.
http://www.bluehost.com/tell_me_more.html
Og ekki er þetta það mikið sem þú þarft að borga, 7$ - 6$ fyrir 12mán eða 24mán. Og þeir bjóða upp á 24/7 live support.
Sent: Mán 29. Okt 2007 01:38
af Heliowin
Já þetta er nú meiri möguleikarnir og verðið á Íslandi. Ég reyndi sjálfur að leita meira að íslenskri vefhýsingu og fannst það merkilegt að þeir eru langt í frá að vera samkeppnishæfir við erlenda aðila.
Bluehost eru góðir en draumurinn hefur verið lunarpages.com og með því að fara enn betur yfir dæmið hjá þeim þá komst ég að því að þeir bjóða upp á Western Union greiðslu þannig að ég pantaði mér hýsingu með góðum pakka hjá lunarpages á 6400 kr fyrir árshýsingu hvorki meira né minna.
Ég þakka ykkur fyrir svörin báðir tveir.
Sent: Mán 29. Okt 2007 10:46
af einzi
liggur ekki hundurinn grafinn þar. víða sé í minnst á hve mikla traffík síðan má hafa en aldrei minnst einu orði á það hér á landi
Sent: Mán 29. Okt 2007 14:29
af Dagur
Sent: Mán 29. Okt 2007 15:49
af ÓmarSmith
Eina sem ég hef um þetta að segja er að erum við ekki bara að glíma við það hvað við erum fámenn og hvað samkeppnin er lítil í þessum markaði á íslandi.
Sent: Mán 29. Okt 2007 22:09
af urban
mæli með þeim
er að borga einhvern 1600 kall fyrir semsagt 2 lén, helling af email adressum, 2 GB pláss með hverju léni og allur andskotinn studdur þarna.
og engin vandamál verið hingað til (nema mitt eigið kunnáttuleysi, sem að þeir hafa þá verið duglegir að aðstoða mig við)
Sent: Mán 29. Okt 2007 23:11
af Pandemic
Ég er með lunarpages fyrir nokkuð stóra félagssíðu og þetta er mjög góður hýsingaraðili. Standa sig frábærlega í sambandi við hraða og uptime.
Sent: Mán 29. Okt 2007 23:52
af Heliowin
Áhugavert. Held þessu opnu. Þeir mættu annars hafa leiðbeiningar svo maður þurfi ekki að hringja.
Pandemic skrifaði:Ég er með lunarpages fyrir nokkuð stóra félagssíðu og þetta er mjög góður hýsingaraðili. Standa sig frábærlega í sambandi við hraða og uptime.
Já lunarpages eru að fá almennt mjög góða dóma samkvæmt síðu sem ég sá og hafði yfirlit yfir marga hýsingar aðila og review frá notendum.
Takk allir saman.
Sent: Mið 31. Okt 2007 15:59
af depill
Verð að játa að ég er alltaf svo rosalega skeptískur á fyrirtæki sem biðja mig um að greiða ár fram í tímann. Afhverju þarf ég að greiða svona langt fram í tímann ? Er það vegna þess að þið haldið að ég verði ekki í ár eða hvað er það ? Veit að mörgum hefur gengið vel upp með BlueHost
en ég myndi mæla hands down með HostGator.com, engin binding, ekkert stofngjald, Baby Hatchlin er á 7.95 dollara og er þrusupakki.
Annars er eins og fyrr segir 1984.is mjög sanngjarnir á hýsingu ef hún verður að vera innanlands og svo sem stuff.is líka.
Sent: Mið 31. Okt 2007 17:15
af Revenant
Ég hef verið að nota
hostexcellence.com og hef bara verið ánægður með þá. Ég keypti hjá þeim einhvern pakka sem hljóðaði upp í ~8-9000kr fyrir 2. ára hýsingu + .com lén með öllu þessu venjulega.
Sent: Mið 07. Nóv 2007 19:26
af kiddi
Update á mínu ranti fyrr í þessum þræði varðandi íslenska hýsingu.
Ég er nú þegar búinn að flytja tvo vefi yfir til 1984.is og ætla mér að flytja 4 vefi til viðbótar, ég er mjög sáttur. Geggjuð persónuleg þjónusta hjá gæjanum sem rekur þetta.
Veit hinsvegar að það vantar hellings upplýsingar á vefinn hjá honum, svo ég ætla að gefa upp nokkrar upplýsingar sem hann gefur gefið mér:
Þú borgar 800 kr. á mánuði, hann sendir þér reikning á 3ja mánaða fresti.
Auka GB í pláss kostar 200 kr. per mánuð.
Þú færð phpmyadmin, awstats & mjög flott vefpóstkerfi (auðvitað POP3 support líka)
Þetta er svona það helsta sem mér dettur í hug, en annars er bara að sækja um lén hjá honum og spyrja í 'comments' reitnum hvort þú fáir ekki örugglega X fítus sem þig vantar, svo spjallið þið saman út frá því via e-mail.
Sent: Fim 15. Nóv 2007 22:35
af depill
Já ætli ég verði ekki að hrósa honum líka.
Ég reyndar tek undir að það mætti standa á vefnum að það sé rukkað á 3 mánaða fresti, mér brá soldið við fyrsta reikning, hélt ég hefði pantað eithvað kolvitlaust.
Ég tók Vserver hjá honum og rek bara vefþjón + mysql þjón á þeirri vél og hýsi þar núna 7 vefi sem eru með svona bara ágætt álag. Er að borga fyrir þetta 3000 kr á mánuði sem mér finnst bara akkurat ekki neitt. FreeDNS þjónustan er mjög fín, þótt að það vill stundum vera að uppfærslur í DNS þjónana er ekki alveg samrímd en það jafnar sig út tiltölulega fljótt.
Og já hann Siggi sem er allavega alltaf að svara mér er rosalega nice gæi og er fljótur að svara og mjög liðlegur.
Þetta er bara næstum of gott til að vera satt
Sent: Fim 15. Nóv 2007 22:49
af GuðjónR
vaktin er á leiðinni þangað
Sent: Fös 16. Nóv 2007 00:14
af CendenZ
svona á að reka fyrirtæki.
Sent: Lau 12. Jan 2008 00:14
af GuðjónR
www.1984.is
Sent: Lau 12. Jan 2008 17:28
af dezeGno
depill.is skrifaði:Ég tók Vserver hjá honum...
Fyrirgefið fáfræði mína en hvað er Vserver :S ? Eitthvað sem að þú getur smellt nánast öllu á eða er ég að miskilja :S ?
Sent: Lau 12. Jan 2008 17:43
af depill
dezeGno skrifaði:depill.is skrifaði:Ég tók Vserver hjá honum...
Fyrirgefið fáfræði mína en hvað er Vserver :S ? Eitthvað sem að þú getur smellt nánast öllu á eða er ég að miskilja :S ?
Það er sem sagt virtual server, þetta er sem sagt ekki phýsísk vél sem þú leigir, þannig það er ekki bein tenging í hardwareið og afköstin eru minni. En samt þar sem vélbúnaðurinn er það stór fyrir aftan að þá gengur þetta voða vel.
En þá færðu sem sagt bara sýndar vél með Linux stýrikerfi af þínu vali afhenda til þess að gera það sem þú vilt gera. Svo ákveður þú bara hvað þú vilt hýsa þarna.
Sent: Lau 12. Jan 2008 17:55
af dezeGno
Takk fyrir það, kannski maður skoði það að leigja sér svona.