Síða 1 af 1
Proxy Serverar ?
Sent: Mið 17. Sep 2003 22:32
af Voffinn
Ef ég finn mér proxy server... opin, hjá mínum þjónustu aðila á porti 8080, þýðir það þá að ég geti sótt utanlands án þess að borga fyrir það ?
Sent: Mið 17. Sep 2003 23:15
af tms
Ef hann virkar þá ertu með ábyggilega með það já (veit samt ekki hvort ISPinn þinn vill fá einhvað ektra fyrir að þú noti þennan proxy).
Sent: Fim 18. Sep 2003 01:32
af halanegri
hmm, nei, ég er nokkuð viss um að það virki ekki svona
síðan held ég að þetta sé sko bara HTTP proxy, og að þeir rukka þig samt fyrir það sem þú nærð í gegnum hann...
Sent: Fim 18. Sep 2003 02:31
af kemiztry
Proxy-þjónar eru tengdir við þetta mæli-system sem internetveiturnar eru með...
Sent: Fim 18. Sep 2003 08:14
af natti
Nema náttúrulega að þú finnir illa configuraðan proxy hérlendis... Þá geturu mögulega notað hann og sloppið þannig.
Hinsvegar hafa einhverjir þjónustuaðilar tekið það upp að loka á port 8080 (default proxy port) til þess að koma í veg fyrir þetta.
Sent: Fim 18. Sep 2003 20:26
af Skoop
proxyinn hjá íslandssíma leyfir þetta
Sent: Fim 18. Sep 2003 22:23
af Zaphod
ég er með stilltann inn proxy server ....
útanlandsdl kemur ekki á dl mælirinn hjá þeim
hefur samt ekki virkað hjá öllum sem eru með sama ISP(hef prufað hjá félögum mínum )
Sent: Fös 19. Sep 2003 00:26
af gnarr
hei.. þurkið þessi comment út.. við viljum ekki að þeir fatti þetta
kanski skoða þeir þessu síðu.
Sent: Fös 19. Sep 2003 10:20
af tms
Já þessi ISP'ar eru með njósnara útum allt.
En alvarlega talað ættum við ekki að seigja neinum sem maður treystir ekki um svona proxy dæmi. Þá verður kannski meira og meira load og fatta þeir það kannski á endanum
Sent: Fös 19. Sep 2003 10:23
af gumol
Ok, passið að segja ekki neinum sem er ekki hægt að treista, en póstið þessu á opnum spjallborðum á netinu sem allir geta skoðað
Sent: Fös 19. Sep 2003 10:24
af tms
Sko það er allt annað að skrifa þetta hér en á t.d. huga þar sem færstu mundu skilja þetta.
Sent: Fös 19. Sep 2003 11:20
af Amything
Það er alveg bókað mál að því fleiri sem vita þetta því styttra er í að þetta verði lokað.
Sent: Fös 19. Sep 2003 13:51
af gumol
þessvegna skulið þið deleta póstunum, svo þeir komist ekki að þessu
Sent: Fös 19. Sep 2003 14:44
af elv
Þráður þessi hefur verið sendur yfirvöldum , þið skulið ekki fara frá tölvum ykkar þar sem lögreglan er á leiðinni
Sent: Fös 19. Sep 2003 15:17
af Zaphod
argggggg þeir komu og straujuðu tölvuna mína og gerðu endaþarmsleit af gögnum sem ég gæti verið fela .
Ég veit ekki ennþá hvort var óþægilegra .