Síða 1 af 1

Gentoo Linux leiðbeiningar, þýðing

Sent: Mán 15. Sep 2003 21:06
af gumol
Ég er að byrja að dunda mér við að þíða gentoo linux uppsetningarleiðbeiningarnar ( http://www.gentoo.org/doc/en/gentoo-x86-install.xml ) hérna er það sem ég er búinn með:

1. Um uppsetninguna

Velkominn í Gentoo Linux. Gentoo er hægt að setja upp á marga mismunandi vegu, þú getur notað fyrirfram gerða pakka eða sérsniðið pakka frá upprunalega kóðanum allt eftir því hvað hentar þér best.
Ein stór breiting sem orðið hefur á official 1.4 útgáfunni er 2ja diska uppsetningarsett sem er hægt að panta frá "Gentoo Linux Netversluninni" auk þess að vera til á speglunum okkar (rhnet.is). Við höfum nú þegar 2ja diska sett fyrir x86 (486 og uppúr), i686 (Pentium Pro, Pentium II, Athlon/Duron og uppúr), Pentium III, Pentium 4 og Athlon XP. Til að sjá hvaða sett hentar þér skaltu lesa lýsinguna á þeim í búðinni.
Þú getur fundið LiveCD ISO skrá á flestum gentoo speglum. The LiveCDs for the x86 architecture are located inside the releases/x86/1.4/livecd/ subdirectory.

En hvað er svo í þessu 2ja diska setti? Fyrri diskurinn(CD1) er kallaður "Live CD Installation". Hann er ræsidiskur, sem þíðir að þú getur sett hann í geysladrifið þitt og ræst Gentoo Linux beint af honum. Þú getur síðan notað geysladiska útgáfuna af Gentoo til að setja upp Gentoo Linux 1.4 á harða diskinn þinn. Til viðbótar við að hafa Gentoo Linux umhverfið hefur CD1 allt sem þú þarft til að setja Gentoo upp jafnvel án þess að fara á netið. Að auki eru nokkrir compile'aðir pakkar eins og XFree X server.

Seinni diskurinn (CD2) er ekki ræsidiskur. Á honum er hellingur af compile'uðum pökkum fyrir töluna þína. Á diskinum eru pakkar eins og KDE, GNOME, OpenOffice, Mozilla, Evolution og fleiri. CD2 er valfrjáls og er ætlaður fyrir þá sem vilja vera fljótir að setja Gentoo Linux upp. Pakkarna sem eru á CD2 tæki 36 klst. að compile'a frá grunnkóðanum í venjulegri nútíma tölvu.

Mig vantar smáhjálp, ef það er eitthvað sem er búið að þíða áður, þíðingar á orðum og svoleiðis, bara eitthvað sem ég er að gera vitlaust fyrir utan stafsetningarvillur

Sent: Mán 15. Sep 2003 21:35
af Voffinn
Flott hjá þér gummi :!:

Sent: Þri 16. Sep 2003 03:17
af kemiztry
Já flott mál :D

Sent: Þri 16. Sep 2003 07:49
af MezzUp
amm, flott hjá þér en ég held að það taki því ekki.
Flestir Íslendingar geta lesið Ensku og málið er að tölvnördar vilja oft lesa um tölvuhluti á ensku, persónulega myndi ég allavega lesa ensku útgáfuna.
En, ef að þú ætlar að halda áfram þá vill ég benda á það að vistþýða er íslenska orðið yfir að compiel'a

Sent: Þri 16. Sep 2003 09:14
af gumol
MezzUp skrifaði:En, ef að þú ætlar að halda áfram þá vill ég benda á það að vistþýða er íslenska orðið yfir að compiel'a

Thx

Sent: Þri 16. Sep 2003 22:44
af MezzUp
svo þú ætlar að halda áfram :D
jæja, gangi þér þá bara vel með de hele

Sent: Þri 16. Sep 2003 22:48
af gumol
ég gefst upp í nstu viku, en ætla að halda áfram á fullu þangaðtil :)

Sent: Þri 16. Sep 2003 23:25
af aRnor`
líst mér á þig drengur!

Sent: Þri 16. Sep 2003 23:28
af Roger_the_shrubber
Ég er alveg 87,39% viss um að þetta Gentoo er það sem tölvukennarinn minn á fyrstu önn í VMA kenndi okkur á..

Sent: Þri 16. Sep 2003 23:36
af gumol
Hvenar var það?

Í háskólanum var allavega aðallega notað Linux, ég veit ekki hvernig þetta var í öðrum skólum.

Sent: Þri 16. Sep 2003 23:51
af Roger_the_shrubber
2000-2001 í Verkmenntaskóla Akureyrar, þetta gæti vel verið vitlaust hjá mér, gæti líka hafa verið bara Red Hat.. :oops:

Sent: Mið 17. Sep 2003 00:05
af gumol
fannst þú vera að meina fyrir löngu.

Sent: Mið 17. Sep 2003 00:13
af Roger_the_shrubber
Ég er nú bara 18 að verða 19 :roll:
Þetta var nú ekkert sérstakur tölvuáfangi, farið mikið í hvernig átti að gera þetta og hitt í DOS, svo fengum við aðeins að leika okkur í Linux rétt fyrir lok annar, lærði lítið sem ekkert á það. :cry:

Sent: Mið 17. Sep 2003 00:15
af gumol
DOS, ekki er enþá verið að kenna á dos? :shock:

Sent: Mið 17. Sep 2003 01:45
af halanegri
Það getur varla verið að þér hafi verið kennt um Gentoo árið 2000, það var ekki komið þá, nema kannski fyrsta útgáfan.

Sent: Mið 17. Sep 2003 15:15
af Roger_the_shrubber
Nei, hélt ekki halanegri, held þetta hafi verið Red Hat :oops:

ég veit annars ekkert um það hvort þeir kenni eitthvað á DOS lengur gumol, einhvern vegin efast ég um það, en allavega var mér kennt á það í den.

Sent: Fim 09. Okt 2003 23:01
af RadoN
heh, maður kunni einusinni allskonar trix í dosinu :P svaka gaman :wink:

Sent: Þri 27. Jan 2004 23:59
af ZawZer
eru ekki allir skólar hrifnastir af redhat útaf GUI uppsetningu o.s.frv. ?

Sent: Mið 28. Jan 2004 00:26
af gumol
Hvaða skólar?

Veit bara um 2 skóla sem hafa heirt um linux

Sent: Mið 28. Jan 2004 10:34
af ZawZer
IR var nú eitthvað að reyna að setja þetta upp, OG KENNARINN ÞURFTI AÐ FARA EFTIR BÓK til að setja RedHat 9 upp...

Svo hef ég heyrt að framhaldsskóli á Selfossi sé eingöngu með linux á sínum vélum, annars veit ég ekki meira