Síða 1 af 1

Tölvan frýs og restartar sér

Sent: Fös 27. Júl 2007 22:25
af Viktor
Er í leiðinda vandræðum með tölvuna núna uppá síðkastið. Skipti um minni, þá tók ég eftir einhverjum leiðindum, eins og að frjósa ect. Setti gamla minnið í og ætlaði að láta sem ekkert hafi í skorist, en þá gerist þetta aftur.

Tölvan frýs yfirleitt bara þegar ég kveiki á myndböndum og þessháttar, hinsvegar ekki ef ég fer í tölvuleiki, CS;S ofl. Er búinn að vírus-hreinsta með AVG og keyra ad-aware og spybot.
Þetta er mjög pirrandi, og ef einhver er með lausn á þessu væri hún vel þegið.

Sent: Lau 28. Júl 2007 08:31
af Yank
Ertu búinn að athuga hvort að tíminn á minninu sé stilltur á eitthvað sem það ræður ekki við. Slíkt er stillt í bios. Spurning að gera clear cmos.

Svo er góð regla að keyra memtest86 á nýju minni áður en farið er inn í windows í fyrsta skipti með því.

Sent: Sun 29. Júl 2007 01:19
af Viktor
Yank skrifaði:Ertu búinn að athuga hvort að tíminn á minninu sé stilltur á eitthvað sem það ræður ekki við. Slíkt er stillt í bios. Spurning að gera clear cmos.

Svo er góð regla að keyra memtest86 á nýju minni áður en farið er inn í windows í fyrsta skipti með því.


Hreinsaði cmos áður, en er með gamla minnið núna, samt er þetta með vesen :s

Re: Tölvan frýs og restartar sér

Sent: Sun 29. Júl 2007 12:29
af Ripper
Viktor skrifaði:Er í leiðinda vandræðum með tölvuna núna uppá síðkastið. Skipti um minni, þá tók ég eftir einhverjum leiðindum, eins og að frjósa ect.

Það gæti hjálpað að gefa nánari lýsingu á hvenær tölvan er að frjósa, hvort að það sé bara í leikjum eða fleira.

Re: Tölvan frýs og restartar sér

Sent: Sun 29. Júl 2007 17:42
af Viktor
Ripper skrifaði:
Viktor skrifaði:Er í leiðinda vandræðum með tölvuna núna uppá síðkastið. Skipti um minni, þá tók ég eftir einhverjum leiðindum, eins og að frjósa ect.

Það gæti hjálpað að gefa nánari lýsingu á hvenær tölvan er að frjósa, hvort að það sé bara í leikjum eða fleira.

Endilega lesa þráðinn áður en þú svarar ;)
Tölvan frýs yfirleitt bara þegar ég kveiki á myndböndum og þessháttar, hinsvegar ekki ef ég fer í tölvuleiki, CS;S ofl.