Síða 1 af 1

auto ip tala

Sent: Mið 03. Sep 2003 18:02
af gumol
Hvað þarf ég að gera til að fá rétta auto IP tölu á lappanum hérna heima(192.168.1.***) ?

Sent: Mið 03. Sep 2003 18:23
af Voffinn
Vera með dchp server ?

Sent: Mið 03. Sep 2003 18:35
af gumol
og hvernig setur maður það upp á windows vél.

Sent: Mið 03. Sep 2003 19:02
af Voffinn
Jahh, nú veit ég ekki... En ég gæti fundið einhvern guide um það á linux, á ég ekki bara að skella útkastaranum mínum til þín, sett upp dchp og fengið að nauðga tengingunni þinni í staðinn ? :)

Sent: Mið 03. Sep 2003 20:33
af MezzUp
hvaða tölva/búnaður er að share'a internet connection'inu þinu? það tæki ætti að virka sem DHCP server.

Sent: Fim 04. Sep 2003 00:11
af bizz
Hef ekki notað internet sharing á öðru en winxp en það virkar fínt sem DHCP. Reyndar er default IP tala 192.168.0.1 sem er þá gateway-ið á vélinni sem er að shera og þá færð þú e-ð fyrir ofan það.
En ef að þú ert að nota router og færð ekki IP virkar oft bara gamla restart-ið á honum.
Svo er spuning hvaða OS er á lappanum??

Sent: Fim 04. Sep 2003 08:53
af gumol
XP á öllu!

Vandamálið er að ég tengist í gegnum VPN og í gegnum router sem ég er ekki alveg viss um hver á (hann er allavega heima hjá mér), Routerinn tekur bara við skipunum frá 192.168.1.10-13. Ég hringi niður í Og Vodafone á eftir og spyr hvort ég fái usrnameið og passwordið á routernum, er ekki bjartsýnn :(

Sent: Fim 04. Sep 2003 10:12
af bizz
Hvaða tegund er routerinn???

Sent: Fim 04. Sep 2003 11:39
af gumol
netopia 4541 ADSL router

Sent: Fim 04. Sep 2003 13:18
af bizz
Sko...til að tengjast við routerinn er best að bara festa IP tölu á netkortinu, t.d. 192.168.1.50.
Tengjast svo routernum í gegnum internet explorerinn með því að slá inn
192.168.1.1 í addressu gluggann.
Veit ekki hvort að það þarf username og password til þess að komast inn á hann.
Ef það þarf er alltaf hægt að prófa admin og password eða admin og admin. :?
Svo bara breyta range-inu á DHCP.
Annar er manual-inn hérna: http://www.netopia.com/equipment/pdf/manuals/4541_manual.pdf

Sent: Fös 05. Sep 2003 00:37
af gumol
Málið er bara að ég er ekki með usernamið og passwordið :/

Sent: Fös 05. Sep 2003 08:26
af Voffinn
Kíktu í manualinn og ef það stendur ekki then your fucked. :>
Þeir vita það pottþétt ekki.

Sent: Fös 05. Sep 2003 11:53
af gumol
Voffinn skrifaði:Þeir vita það pottþétt ekki.

Þeir vita þetta pottþétt

Sent: Fös 05. Sep 2003 13:00
af bizz
Samkvæmt þessum leiðbeiningum (reyndar ekki alveg sama model), þá verður maður að setja e-ð password á routerinn um leið og maður stillir hann í fyrsta skipti :(
En user name er admin.
Leiðbeiningar frá OgVodafone: http://www.ogvodafone.is/Qbs/SubPage.aspx?GroupId=804

Sent: Fös 05. Sep 2003 13:10
af gumol
Og það var Islandssimi sem setti upp routerinn

Sent: Sun 07. Sep 2003 14:32
af gumol
Þetta tókst hjá mér, takk fyrir hjálpina :D

Re: auto ip tala

Sent: Sun 19. Okt 2003 15:53
af Minuz1
gumol skrifaði:Hvað þarf ég að gera til að fá rétta auto IP tölu á lappanum hérna heima(192.168.1.***) ?


rétta ip tölu?

192.168.x.x eru svokallaðar dummy ip tölur.....þ.e.a.s þær fara aldrei út á internetið sjálft....eru einungis notaðar á LAN netkerfum.

IP talan sjálf er á router/modeminu þínu sem tengjast við netþjónustuaðilann þinn.

Routerinn þinn er með 2 ip tölur, önnur sem tengist inn á innranetið og ein sem snýr út.