Síða 1 af 1

XP compatibility

Sent: Mán 23. Apr 2007 11:56
af Andri Fannar
Sælir,
Svo skemmtilega vildi til að ég rakst á Need for Speed II SE á einhverri torrent síðu um daginn og ákvað ég að dl-a honum.

Leikur sem maður var hooked á á windows 98 fyrir sjö árum örugglega, besti bílaleikur sem gerður hefur verið, klassík!

Ég var því afskaplega ánægður þegar ég sá að það var nóg að unzippa og opna NFS2EN.exe og þá get ég spilað leikinn í gærkvöldi.

Í morgun þegar ég ræsti tölvuna svo og ætlaði að tjékka á honum virkar hann ekki, processinn (NFS2EN.exe) kemur í Task Manager Processa tabbinn en ekkert meira gerist.

Win XP Sp 2

Hvað haldiði að sé að ? :roll: :twisted: :cry:

Sent: Mán 23. Apr 2007 17:11
af gnarr
algjörlega besti bílaleikur allra tíma! Ég man að ég fann diskinn minn einhverstaðar fyrir ekki svo löngu og lenti í því sama. Mig minnir að ég hafi fundið eitthvað workaround. stilla á 256 liti og compatability mode eða eitthvað þannig.

Sent: Mán 23. Apr 2007 19:14
af Andri Fannar
Er ekki búinn að finna útúr þessu á lappanum en þetta virkar í borðtölvunni sem er líka með xp og sp2.

Sent: Þri 24. Apr 2007 12:23
af ÓmarSmith
VAR besti bílaleikurinn
.. Get ekki hrósað grafík og hljóði í dag.. en þetta var geggjað ;)


NFS 3 var líka frábær. Kominn í 3d og maður gat verið löggann.

Sent: Þri 24. Apr 2007 18:45
af gnarr
ómar, þú dæmir ekki tölvuleiki eftir grafík nema þá miðað við þann tíma sem hann kom út.

Þetta er eins og að segja að StarWars:The Empire Strikes Back sé léleg vegna þess að hún hafi ekki jafn góðar tæknibrellur og myndir í dag.

Sent: Þri 24. Apr 2007 19:02
af ManiO
gnarr skrifaði:ómar, þú dæmir ekki tölvuleiki eftir grafík nema þá miðað við þann tíma sem hann kom út.

Þetta er eins og að segja að StarWars:The Empire Strikes Back sé léleg vegna þess að hún hafi ekki jafn góðar tæknibrellur og myndir í dag.


Nei, hún er bara léleg óháð tæknibrellum :lol:

En annars er ég sammála þér gnarr.