Síða 1 af 1
hjálp!?
Sent: Mið 11. Apr 2007 23:19
af rþ
Ok þannig er mál með vexti að þegar ég opna t.d Call of Duty 2 þá slekkur tölvan bara á sér.
Ég er nú með frekar nýja og ferska tölvu og það er ekki vandamálið og þetta hefur ekkert angrað mig, allavega ég er búinn að prófa formatta og þetta virðist gera enþá.
veit einhver lausnina á þessu vandamáli ?
Sent: Mið 11. Apr 2007 23:32
af zedro
Jahá það er nú spurning!
En segðu mér eitt hvað er „ný og fersk tölva“
Við þurfum DETAIL mkey
rþ skrifaði:Ég er nú með frekar nýja og ferska tölvu og það er ekki vandamálið
Jú kallinn minn ég er nú hræddur um að tölvan sé vandamálið.
En annars skelltu inn öllum detailum um vélina
Móðurborð:
Örri:
Skjákort:
Minni (og minnis timings):
Harður diskur:
og nánar um þetta vandamál:
slekkur hún á sér beint eða kemur bluescreen og svo slekkur hún á sér?
einnig er tölvan í ábyrgð? Ef svo er ættiru að fara með hana bara í viðgerð.
Sent: Mið 11. Apr 2007 23:58
af rþ
(CPU) 1-AMD Athlon™ 64 Processor 3500+, 2211MHz (0% Load) .:. (RAM) usage: 349/2048MB (17.04%) .:. (GFX) NVIDIA GeForce 7800 GTX, (Display) 1024x768/32bit/85Hz
(OS) Windows XP Home Edition, Service Pack 2 (5.1 - 2600), (installed for) 2h 14m, (uptime) 6m 57s .:. (HDDs) 101GB/111GB(91.2%) free
Sent: Fim 12. Apr 2007 16:53
af gnarr
fyrst tölvan er ekki vandamálið, prófaðu þá að skipta um notanda eða rafmagnstengi í veggnum.
Sent: Fim 12. Apr 2007 17:52
af rþ
er að pæla hvort að tölvan sé ekki bara að hitna of mikið þegar ég er búinn að vera í henni í smá tíma....
Sent: Fim 12. Apr 2007 18:35
af GuðjónR
rþ...minni á að hafa lýsandi titil.
Sent: Fim 12. Apr 2007 19:59
af dorg
rþ skrifaði:(CPU) 1-AMD Athlon™ 64 Processor 3500+, 2211MHz (0% Load) .:. (RAM) usage: 349/2048MB (17.04%) .:. (GFX) NVIDIA GeForce 7800 GTX, (Display) 1024x768/32bit/85Hz
(OS) Windows XP Home Edition, Service Pack 2 (5.1 - 2600), (installed for) 2h 14m, (uptime) 6m 57s .:. (HDDs) 101GB/111GB(91.2%) free
Eina atriðið sem máli skiptir en kemur ekki fram hversu gott power supply ertu með.
Skjákort eiga það til að sópa til sín orku þegar á þau er reynt og það gæti orsakað spennufall á öðrum hlutum tölvunnar og að vélin drepi á sér