Síða 1 af 1

Tengjast tölvu á heimaneti

Sent: Fös 02. Mar 2007 15:05
af smuddi
Það eru 3 vélar hérna á heimilinu, og ég er að reyna að ná í gögn úr einni þeirra yfir í mína vél. Þetta er semsagt bróður míns vél. Hann getur sótt frá mér en ég næ ekki að sækja frá honum. Ég finn allveg vélina en hef ekki aðgang.. er það ekki bara stillingar atriði í hans vél þá eða?

Villuskilaboðin sem koma eru svohljóðandi:

\\nafn is not accessible. You might not have permission to use this network resource. contact the administrator of this server to find out if you have access permissions..

Veit einhver hvað ég á að stilla til að laga þetta?

Sent: Fös 02. Mar 2007 16:39
af Phanto
buinn að sharea einhverjum möppum á hans vél?

Sent: Fös 02. Mar 2007 17:53
af Selurinn
Giska að simple file and sharing sé ekki enableað.

Hann verður að adda í permissions að aðrar tölvur á networkinu fái access að tölvunni....

Sent: Fös 02. Mar 2007 20:13
af smuddi
ja hann er buinn að shera og ja allveg rétt... eg er med hakad ur use simple file sharing en hann er með hakað í held ég.. svo það gæti verið ástæðan eða?

Sent: Þri 20. Mar 2007 15:51
af Harvest
Lenti eitthvertiman í þessu... þarft að hægrismella á my computer - manage - local users and... - guest

Þarft svo að hafa hakð í "user cannot change..." og "password never..." á hans tölvu

Gæti trúað að þetta hafi verið meinið...

Sent: Þri 20. Mar 2007 20:55
af Dusilmenni
Og ef það virkar ekki, prufaðu bara að hafa "simple file sharing" á báðum. Ef ég lendi í share vandamálum þá prufa ég að hafa báðar á "simple.." áður en ég fer áfram í troubleshooting. Magnað hvað það hefur virkað oft jafnvel með allar stillingar réttar áður.

Sent: Þri 20. Mar 2007 22:11
af Harvest
Dusilmenni skrifaði:Og ef það virkar ekki, prufaðu bara að hafa "simple file sharing" á báðum. Ef ég lendi í share vandamálum þá prufa ég að hafa báðar á "simple.." áður en ég fer áfram í troubleshooting. Magnað hvað það hefur virkað oft jafnvel með allar stillingar réttar áður.


Já, einmitt... það líka. Hef lent í geðveikum vandræðum vegna þess..

Sent: Þri 20. Mar 2007 23:27
af Stutturdreki
Og ef það virkar ekki.. slökktu á eldveggnum.

Svo er yfirleitt skemmtilegra að setja upp ftp server og nota ftp til að flytja stuff á milli.