Síða 1 af 1

Vandamál þegar kveikt er á tölvunni.

Sent: Mið 21. Feb 2007 16:54
af Gormzter
Já, hérna, ég hef þetta bara stutt.

Alltaf þegar ég kveiki á tölvunni núna þá kemur upp gluggi sem býður mér upp á ýmsa möguleika, eins og:

"start windows normally"
"start windows with the last known good way" eða e-ð
"start windows with safe mode"

en það er sama hvað ég vel, þá fæ ég alltaf þennan glugga upp.

Þetta gerðist eftir að ég þurfti að slökkva á tölvunni beint, þegar ég var að reyna að spila monkey island 3, og tölvan bað mig um að skipta um disk...

Einhver sem veit hvað gæti verið að, og gæti verið með lausn?

Sent: Mið 21. Feb 2007 21:33
af Heliowin
Reyndu að gera Repair með Windows geisladiski ef þú hefur hann. Láttu vita ef þú veist ekki hvernig.

Sent: Mið 21. Feb 2007 23:05
af Gormzter
Ég á ekki þann disk lengur. Allavega finn ég hann ekki.

Sent: Fös 23. Feb 2007 13:42
af Gormzter
Enginn?

Sent: Fös 23. Feb 2007 15:25
af arnarj
þú færð 3 valmöguleika og enginn virkar, ef þú getur ekki útvegað þér disk með stýrikerfinu þá er varla hægt að hjálpa þér!

Sent: Fös 23. Feb 2007 15:52
af Revenant
Slökktu á tölvunni og kveiktu á henni aftur (taktu vel eftir því hvað klukkan er). Farðu svo í Control Panel -> Administrative Tools -> Event Viewer og skoðaðu þar hvar rauð X eru við (þá helst undir System). Ef það koma einhverjar villur þá ætti það að benda þér í rétta átt.

Sent: Fös 23. Feb 2007 16:01
af arnarj
Revenant skrifaði:Slökktu á tölvunni og kveiktu á henni aftur (taktu vel eftir því hvað klukkan er). Farðu svo í Control Panel -> Administrative Tools -> Event Viewer og skoðaðu þar hvar rauð X eru við (þá helst undir System). Ef það koma einhverjar villur þá ætti það að benda þér í rétta átt.


Gaurinn kemst ekki inn í windows !

Sent: Fös 23. Feb 2007 16:03
af ÓmarSmith
Þegar þú velur e-n valmöguleika , gerist þá semsé ekkert ?

Sent: Fös 23. Feb 2007 16:38
af Gormzter
Það eina sem gerist er að ég fæ windows XP loading screen-ið upp aftur, og svo þarna skjáinn sem ég talaði um í byrjun, og svona gengur þetta hring eftir hring.

Sent: Fös 23. Feb 2007 16:48
af Heliowin
Ef þetta var Windows/recovery diskur sem fylgdi með tölvunni þegar þú keyptir hana þá kannski geturðu fengið annan Windows/recovery disk sendan frá framleiðanda tölvunnar. Þú gætir þá þurft að setja stýrikerfið upp eins og það kom frá framleiðandanum ef þú færð recovery disk.

Ef þetta var OEM diskur eða Retail diskur beint frá Microsoft þá þarftu að hafa samband við þá og spyrja um nýjan disk eins lengi og þú hefur Product key.

Ég held að þetta sé eitthvað þannig.

Sent: Fös 23. Feb 2007 16:59
af Gormzter
Versta er að ég man bara ekkert hvort ég fékk svona disk með :oops:

Spurning hvort maður geti ekki hringt í svona tölvu-repair gaur og fengið hann til að koma og gera þetta fyrir mann? :o