Síða 1 af 1

Hindranir í framhaldsskólum

Sent: Fös 22. Ágú 2003 11:46
af gumol
Í skólanum mínum, MK, er þráðlaust netkerfi og ég tengist netinu með Novel client (sem tekur eiginlega yfir tölvuna). Það er búið að loka fyrir flesst allt á netnu (MSN, Downloada(hvernig sem það er gert) o.s.frv.), er einhvernvegin hægt að komast framhjá þessu þannig maður komist á MSN, ftp og irc en ekki bara heimasíður ?

Sent: Fös 22. Ágú 2003 11:59
af MezzUp
Ég hélt að MSN myndi nota port 80 ef að það detectar að firewall blokkar default portið. Ertu kannski að nota proxy í skólanum. Gæti náttla verið að öll port sé blokkuð nema proxy portið, í proxy'num getur skólinn blokkað þær síður sem að hann vill og solleis

Sent: Fös 22. Ágú 2003 12:25
af elv
Algjör óþarfi að vera að borga PORNO fyrir ykkur :wink:

Sent: Fös 22. Ágú 2003 12:34
af gumol
ég veit ekkert hvað ég er að nota í skóanum, ég fór kl. níu í morgun á einhvern fund þar sem við vorum látin setja upp Novell client, og netið tengist í gegnum það, ég kem með betri uplýsingar á mánudaginn, þá er fyrsti skóladagurinn,

Sent: Mán 25. Ágú 2003 14:58
af natti
asnalegi parturinn við MK er að fólk er látið setja inn novell....
sumir skólar hengja sig við windows domain, því þarf þá að setja allar vélar inn á domain.
Sem er svosem ekkert mikið mál, amk ekki aukaforrit etc. á vélinni.
Hinsvegar, að nota novell sem bókstaflega tekur yfir vélina, og þú hefur ekkert um þetta að segja.
Þetta er virkilega asnalegt hjá MK finnst mér.

Sent: Mán 25. Ágú 2003 15:36
af gumol
sammála

Sent: Mán 25. Ágú 2003 16:14
af kemiztry
MK er asnalegur skóli rétt eins og allur Kópavogurinn :D

Sent: Mán 25. Ágú 2003 17:09
af GuðjónR
kemiztry skrifaði:MK er asnalegur skóli rétt eins og allur Kópavogurinn :D


Hva??? ertu eitthvað ósáttur við heimabæinn þinn ?

Sent: Mán 25. Ágú 2003 17:29
af kemiztry
Kópavogur er og muna aldrei verða heimabærinn minn þó svo ég búi í honum :D

Sent: Mán 25. Ágú 2003 18:16
af Voffinn
"Það er gott að búa í Kópavogi"

:idea:

Ekkert svona Novell client sorp hjá mér :P Nanananana
Enda myndi ég ALDREI setja svona upp, frekar skipta um skóla.

Sent: Mán 25. Ágú 2003 19:16
af gumol
kemiztry skrifaði:MK er asnalegur skóli rétt eins og allur Kópavogurinn :D

urr,

Það er best að búa í Kópavogi

Sent: Sun 14. Sep 2003 04:25
af Aroninn
Kópavogur er bestur
ogg svo bara ekkert vera að fara i MK fara i eitthvað almenilegt

f

Sent: Sun 14. Sep 2003 10:53
af ICM
omfg ekki fara að rífast um hvaða bæjarhlutar eru bestir.

en það er eitt við kópavogin, alltof stór hlutur fólks þar er með ofur eyðslu þörf og tekur lán fyrir öllu ( ekki tilviljun að Smáralind var byggð þar ) fólk þar virðist hafa þörf fyrir að eiga meira en það hefur efni á. Gaman að sjá hve mikið af fólki neyðist til að flytja þaðan á næstunni.

Sent: Sun 14. Sep 2003 11:31
af gumol
Icecave: ertu að tala um stjórnendur bæarins eða íbúa?

Sent: Sun 14. Sep 2003 13:25
af elv
gumol skrifaði:Icecave: ertu að tala um stjórnendur bæarins eða íbúa?



Who gives a shit! :twisted:

Sent: Sun 14. Sep 2003 13:26
af gumol
Me

Sent: Sun 14. Sep 2003 15:23
af kiddi
Asnalegasta rifrildi sem hefur nokkurntíman poppað upp á nördaspjallþræði!

Sent: Sun 14. Sep 2003 16:17
af gumol
hehe, allt í lagi að rífast um svona hluti.

Sent: Sun 14. Sep 2003 16:40
af gnarr
http://www.http-tunnel.com fiktaðu þig svo áfram. reyndu að finna út hvort það er proxy server þarna. annars ætti þetta alveg að ganga ef þú fynnur domain og sona.

Sent: Mán 15. Sep 2003 22:52
af tms
Vinur minn er líka með svona Novell dæmi í skólanum sínu. Þetta er alveg hrikalega leiðinlegt :cry:
Ég er heppinn að kerfistrórinn í mínum skóla er ekki eins strángur :lol:

Sent: Mið 17. Sep 2003 21:34
af Skoop
Þetta er betra að mínu mati en http-tunnel sem einhver póstaði
reyndu að finna opinn proxyþjón,(gæti verið innanhúss hjá mk) sem hefur önnur port opin en 80
leitaðu svo bara á netinu

Mundu svo að það er ástæða fyrir því að kerfisstjórarnir loka þessum portum, þú gætir verið tekinn á teppið

http://proxylabs.netwu.com/index.html

Mig langar svo að benda ykkur sem eru hjá ogvodaphone að þeir eru með opinn proxy þjón fyrir viðskiptavini sína. proxy.isl.is:8080
sem hægt er að nota með öðrum apps en þeim sem nota port 80

frítt að utan með kazaa direct connect og þannig og náttla í browsernum

Sent: Mið 17. Sep 2003 22:22
af Voffinn

Kóði: Velja allt

Nú hefur proxy-þjónn Íslandssíma verið lagður niður. Þetta mun ekki hafa nein áhrif á tengingu þína hjá Íslandssíma, en til að þú getir skoðað vefsíður verður þú að taka út proxy-stillingar úr vafranum þínum.


Þetta fæ ég ef ég ætla ða nota proxinn hjá ísl.is

Sent: Mið 17. Sep 2003 22:37
af gumol
Skoop skrifaði:Mundu svo að það er ástæða fyrir því að kerfisstjórarnir loka þessum portum, þú gætir verið tekinn á teppið


Efast umm að þeir teki eftir því, þessi snillingar lögðu net snúrurnar í nýu álmunni við hliðina á rafmagnssnúrunum, svo netið er nátturlega búið að vera í fokki.

Sent: Fim 18. Sep 2003 11:22
af Skoop
Voffinn skrifaði:

Kóði: Velja allt

Nú hefur proxy-þjónn Íslandssíma verið lagður niður. Þetta mun ekki hafa nein áhrif á tengingu þína hjá Íslandssíma, en til að þú getir skoðað vefsíður verður þú að taka út proxy-stillingar úr vafranum þínum.


Þetta fæ ég ef ég ætla ða nota proxinn hjá ísl.is


Ekki ég, og enginn annar sem ég veit um hefur fengið þetta ... birtast þessi skilaboð í vafranum þínum ?
ertu með ip tölu frá og vodaphone ?

Sent: Fim 18. Sep 2003 11:26
af Voffinn
Hehe, nei reyndar ekki :)

Er hjá mmedia.is, ætlaði að svindla mér inn ;)