Síða 1 af 1

Smá hálp - Cat/5/5e/6 ???

Sent: Þri 09. Jan 2007 08:56
af ponzer
Sælir Vaktarar..

Mig vantar að vita nokkur atriði um net kappla þ.e.a.s cat/5/5e/6.

Þannig er mál með vexti að ég var að flytja og mig langar að hafa nokkra net-tengla í húsinu.
Það sem mig vantar að vita er hvað af þessum snúrum eru bestar í þetta og hvort það skipti einnhverju máli hvort þær séu lagðar með há eða lá spennu.
Húsið er á fjórum hæðum svo hvað má kapallinn vera langur án þess að missa signal ? Hvaða kapplar eru bestir í þetta ?

Hvað er best fyrir mig að gera ?

Re: Smá hálp - Cat/5/5e/6 ???

Sent: Þri 09. Jan 2007 10:18
af JReykdal
ponzer skrifaði:Sælir Vaktarar..

Mig vantar að vita nokkur atriði um net kappla þ.e.a.s cat/5/5e/6.

Þannig er mál með vexti að ég var að flytja og mig langar að hafa nokkra net-tengla í húsinu.
Það sem mig vantar að vita er hvað af þessum snúrum eru bestar í þetta og hvort það skipti einnhverju máli hvort þær séu lagðar með há eða lá spennu.
Húsið er á fjórum hæðum svo hvað má kapallinn vera langur án þess að missa signal ? Hvaða kapplar eru bestir í þetta ?

Hvað er best fyrir mig að gera ?


Ekki leggja með háspennu, 100m og cat5e dugir í gíg.

Sent: Þri 09. Jan 2007 10:48
af gumol
Þeir draga allir um 90 metra svo nema þú sért í mjög stóru húsi ætti það ekki að vera vandamál. Allir þessir kaplar ættu að duga, sérstaklega ef þú ert ekki að nota 100mbps kerfi, ég veit ekki til þess að það sé mikið úrval af svona köplum í byggingavöruverslunum, svo ég myndi bara fá mér hörðu útgáfuna af því sem er til þar, annaðhvort cat5e eða cat6

Sent: Þri 09. Jan 2007 11:07
af Voffinn
gumol skrifaði:Þeir draga allir um 90 metra svo nema þú sért í mjög stóru húsi ætti það ekki að vera vandamál. Allir þessir kaplar ættu að duga, sérstaklega ef þú ert ekki að nota 100mbps kerfi, ég veit ekki til þess að það sé mikið úrval af svona köplum í byggingavöruverslunum, svo ég myndi bara fá mér hörðu útgáfuna af því sem er til þar, annaðhvort cat5e eða cat6


Þú getur keypt Cat5e og Cat6 í kassavís í byggingarvöruverslunum.

Sent: Þri 09. Jan 2007 12:15
af Blackened
Jebb.. líka hægt að fá Cat5e og Cat6 í Ískraft og Rönning.. Rafmagnsdeildin

Það sem ég hef verið að leggja í nýbyggingar síðastliðna mánuði er Cat6 og Cat5e til skiptis.. sé ekki að Cat6 sé nokkuð betri eins og staðan er í dag

Hann er bara aðeins meira snúinn og með plast kjarna í miðjunni

Sent: Þri 09. Jan 2007 13:24
af gumol
Voffinn skrifaði:Þú getur keypt Cat5e og Cat6 í kassavís í byggingarvöruverslunum.
Akkurat, það auðveldar valið.

Sent: Þri 09. Jan 2007 14:19
af ponzer
Þakka svörin... Þarf aðeins að hugsa þetta, bý í Lúxemborg og veit ekkert hvar maður fær svona kappla..


Ef það má ekki leggja þetta með háspennu, er sjónvarpstengill háspenna ?

Sent: Þri 09. Jan 2007 19:13
af gumol
Neibb