Síða 1 af 1

Gera gömlu borðtölvuna sína að server

Sent: Sun 07. Jan 2007 21:51
af Birk
Núna er ég að spá í því að gera mína gömlu traustu borðtölvu að server og tengja tvær fartölvur við, vandamálið er það að ég veit í rauninni ekkert um þetta annað en að serverar eru til og fólk er að nota þá.

Ástæðan fyrir því að ég er að spá í þetta er sú að sú gamla er með ágætlega stórt diskapláss og eiinig er maður sennilega farinn að tengjast henni einhverjum tilfinningaböndum eftir að hafa notað hana í rúm 7 ár án stórkostlega áfalla.

Þess vegna ætla ég spyrja ykkur:

- Er nokkuð vit í þessu? (gamla er 500Mhz 512mb innra minni)

- Hvar ætli maður geti fundið góðar leiðbeiningar til að gera þetta?

Kveðja
Birkir

Sent: Sun 07. Jan 2007 22:25
af JReykdal
Fínt plott er að skella sér á linux bara :)

500MHz er fínt í skráarþjón og slíkt (minni er mikilvægara en hestöfl).

Sent: Mán 14. Maí 2007 10:54
af Stutturdreki
Það er þannig séð ekkert mál að breyta gömlum tölvum í file server, tengir hana bara í switch og opnar fyrir share á rótina. Myndi samt mæla með að setja upp td. ftp server í staðinn.. færð betri aðgangsstýringu þannig.

Hardware kröfunar á file server eru frekar littlar. Gott netkort og nóg diskpláss. CPU skiptir nánast engu máli. Frekar að eyða pening (ef þér finnst þú þurfa að eyða pening í þetta) í að koma upp RAID 5 og almennilegu backup plani .. ef þú ert með einhver gögn sem þú villt ómögulega tapa.

Sent: Mán 14. Maí 2007 14:53
af Mazi!
Ætlaru að nota þetta sem innanhús Fileserver ?