Síða 1 af 2

32 bita eða 64 bita Windows Vista

Sent: Lau 30. Des 2006 17:16
af Tyler
Sælir
Jæja, núna styttist í að Vista komi út og ég var að velta því fyrir mér hvort sé betra að setja upp 32 bita útgáfuna eða 64 bita. Hafa menn eitthvað verið að pæla í þessu?

Sent: Lau 30. Des 2006 19:04
af The Flying Dutchman
64bit verdur miklu betri og mun fá alvöru studning

Sent: Sun 31. Des 2006 00:08
af Tappi
Eins og er þá er 32 bita með betra driver support, en það mun sennilega breytast seinna með.

Sent: Sun 31. Des 2006 02:04
af Birkir
Vonandi verður 64bita stuðningurinn orðinn þolanlegur þegar kerfið kemur út fyrir almenning.

Sent: Sun 31. Des 2006 03:07
af Arkidas
Örugglega ekki alveg á næstunni, en x86 og x64 verður í sama pakkanum svo það er óþarfi að velta sé upp úr því.

Sent: Sun 31. Des 2006 16:45
af stjanij
ég er með x64 útgáfuna, löglega, og hún er mjög góð og er talað um að x64 verði það sem stendur upp úr.

driver stuðningur er þolanlegur enn mun batna.

X64 all the way =D>

Sent: Sun 31. Des 2006 20:06
af Tyler
Hér kemur ein basic spurning. Þegar netverslanir auglýsa retail og OEM stýrikerfi til sölu, hver er munurinn?

Sent: Sun 31. Des 2006 21:41
af Pandemic
Verður að kaupa oem með öðrum tölvuhlutum eða nýrri tölvu.
Retail er bara beint í pakkanum verslað sér.

Sent: Þri 02. Jan 2007 00:56
af Voffinn
Íslenskar tölvuverslanir selja samt OEM vörur sér, þrátt fyrir að það megi ekki. Man að ég fór einhvern tímann í tæknibæ og þá var þar fata af OEM músum til sölu á slikk og á stóð "OEM - NOT FOR RESALE".

Sent: Þri 02. Jan 2007 01:11
af gnarr
OEM windows stýrikerfi eru líka bundin við vélbúnað í tölvunni þegar þau eru activate-uð. Þar af leiðandi áttu stýrikerfið bara meðan þú átt tölvuna. Meðan retail getur gengið milli tölvna eins og þér sýnist.

Sent: Þri 02. Jan 2007 01:16
af Heliowin
Ég keypti í einu landi WXPHome OEM saman með pakka með tíu skrifanlegum CD diskum. Reyndar var ætlunin að ég keypti minniskubb með en hann var ekki inni á lager.

Það eru gerðar kröfur til þess að Windows OEM leyfi tilheyri þeim vélbúnaði sem það var keypt saman með en ég held ég megi segja að það sé í raun ekki praktíkin.

Sent: Þri 02. Jan 2007 01:38
af The Flying Dutchman
stjanij maetti ég vita hvernig thú fékst thad löglega? Varstu BETA tester eda hvad? Thad verdur ekki gefid út fyrir almenning í retail fyrr en í febrúar. Fékstu thad OEM med tölvu?

Sent: Þri 02. Jan 2007 02:05
af Voffinn
Ég held að Stjáni sé áskrifandi að MSDN. :)

Sent: Þri 02. Jan 2007 09:05
af Tyler
gnarr skrifaði:OEM windows stýrikerfi eru líka bundin við vélbúnað í tölvunni þegar þau eru activate-uð. Þar af leiðandi áttu stýrikerfið bara meðan þú átt tölvuna. Meðan retail getur gengið milli tölvna eins og þér sýnist.


S.s. ef maður kaupir nýtt móðurborð eða nýjan örgjörva þá þarf maður að kaupa nýtt stýrikerfi? Er ég að skilja þetta rétt? Er þá ekki skynsamlegra að kaupa vista retail frekar en OEM?

Sent: Þri 02. Jan 2007 12:05
af Tappi
Ég er líka með löglega Vista ultimate x64 og það sem ég hef lent í er að nvidia driverarnir eru mjög lélegir eins og er og síðan tókst mér ekki að finna almennilega 64 bita video codecs(xvid/divx).
En mér skilst að allir hardware framleiðendur séu núna sveittir að búa til drivera fyrir næstu mánaðarmót þegar vista kemur út fyrir almenning. Síðan er víst eitthvað meira mál að fá "stimpil" hjá Micro$oft fyrir Vista drivera.

Sent: Þri 02. Jan 2007 14:53
af gumol
Vélbúnaðarframleiðendur eru nú búnir að hafa góðan tíma til að gera þetta.

Sent: Þri 02. Jan 2007 14:57
af Tappi
gumol skrifaði:Vélbúnaðarframleiðendur eru nú búnir að hafa góðan tíma til að gera þetta.


So true!

Sent: Þri 02. Jan 2007 15:08
af CendenZ
ég hafði samband við Microsoft sem endaði með að ég hafði samband við Nvidia.

Nvidia eru löngu búnir að gera drivera sem virka, en þeir gefa þá alls ekki út fyrr en vista verður gefið "löglega" út.

hinsvegar fylgja nvidia/ati driverar með vista sem eru RTM, en það er td. Dell og HP tölvur.

Sent: Mið 03. Jan 2007 00:59
af stjanij
bara að bíða og naga neglurnar á meðan :roll:

Sent: Mið 03. Jan 2007 01:01
af Blackened
Hvernig er það.. ef maður kaupir Retail útgáfu af Vista.. hvað má maður setja það upp á margar vélar?

Sent: Mið 03. Jan 2007 16:16
af Pandemic
gnarr skrifaði:OEM windows stýrikerfi eru líka bundin við vélbúnað í tölvunni þegar þau eru activate-uð. Þar af leiðandi áttu stýrikerfið bara meðan þú átt tölvuna. Meðan retail getur gengið milli tölvna eins og þér sýnist.


Tja þú getur þú activeitað það á eins margar tölvur og þú vilt. Það eina sem þú þarf að passa þig á er að segja kallinum ekki réttar upplýsingar þegar hann spyr þig í símann, ég feilaði á því og hann sagðist ekki geta gefið mér activation code þar sem ég var með stýrikerfið installað á fleiri en eina tölvu og skelti á, hringdi bara 10 min seinna og annar svaraði og hún var sátt við mína útskýringu.

Sent: Fim 04. Jan 2007 15:13
af Tyler
Ef maður kaupir upgrade, hvernig virkar það? Ég er fyrir með (löglegt) xp pro á tölvunni hjá mér. Þarf ég með vista upgrade að uppfæra með xp pro inni eða get ég gert það frá byrjun, þ.e. clean state?

Með upgrade þá er ég t.d. að tala um þetta hérna:
http://www.amazon.com/Microsoft-Windows ... s=software

Sent: Fim 04. Jan 2007 17:31
af beatmaster
Ég hef sett upp tölvu með xp home upgrade frá grunni, þá þurfti ég að setja inn annaðhvort win95, win98, ME eða 2K disk í áður en setup-ið byrjaði, hlýtur að virka svipað með Vista

Sent: Fim 04. Jan 2007 17:56
af Heliowin
Þegar maður ætlar að upgrada með Windows XP (nota Upgrade útgáfu)þá þarf maður annaðhvort að hafa fyrra stýrikerfi sett upp eða ef það er ekki sett upp, að hafa þá geisladiskinn fyrir það við höndina þegar maður er spurður um að setja hann inn. Þetta svo setup geti metið fyrra stýrikerfi. Ég býst við því að þetta verði svipað með Vista.

Edit: Með upgrade WXP útgáfu er hægt að gera clean installation hvort sem stýrikerfi er til staðar eða ekki. Líklega svipað með Vista.

Sent: Fim 04. Jan 2007 20:48
af Tyler
Er þá nóg að hafa XP-Pro geisladiskinn eða þarf ég að hafa serial-númerið á XP-inu einnig við hendina? Tek það fram að ég hef hvoru tveggja(löglegt), er bara forvitinn um hvernig þetta virkar.