Síða 1 af 1
LAN vandræði í WIN ME
Sent: Sun 05. Nóv 2006 20:20
af w.rooney
ég var að fá símtal og sá aðili var í vandræðum með netkortið í vélinni sinni , málið er þanni að hann var að henda 56 k módemi út og ætlaði að setja netkorti í staðinn , og vandamálið er það að allt virðist virka kortið sést í device manager og kemur ljós á kortið sjálft en það vill ekki hleypa honum út á netið og ég var að spá , er eitthvað trick til að fá netkort til að virka í Windows ME eða hvað , minns stendur á gati með þetta allt saman !
Sent: Sun 05. Nóv 2006 20:34
af arnarj
uppfæra í XP !, ME er lélegasta stýrikerfi sem komið hefur fram á sjónarsviðið fyrr og síðar.
Sent: Sun 05. Nóv 2006 20:52
af w.rooney
já svona ef að það er ekki möguleiki að uppfæra , er eitthvað annað í stöðunni en það ?
Sent: Sun 05. Nóv 2006 21:02
af arnarj
það er "network connection wizard" í win2000 og ME, þ.e. þú þarft að segja stýrikerfinu að hætta að nota módem og nota LAN í staðinn.
Ég er samt ekki að grínast að það á enginn, og ég meina enginn að nota ME.
Sent: Sun 05. Nóv 2006 21:47
af Ripper
Prófaðu að ræsa tölvuna, fara í log off og logga þig aftur inn.
Man að það þurfti oft að gera þetta en tékkaðu allavega á þessu fyrst. Ef þetta lagar netsambandið þá er hægt að finna betri lausn þannig að það þurfi ekki alltaf að fara svona krókaleið
Sent: Mán 06. Nóv 2006 01:34
af gnarr
Tengdi hann nokkuð símalínuna beint í netkortið?
Sent: Mán 06. Nóv 2006 01:50
af gumol
Það er alveg hægt að nota netið á Windows ME svo það væri algjör hálfvitaskapur að ætla að fá og setja XP upp bara til að komast á netið.
Er búið að láta IP-tölu á netkortið eða er DHCP server á laninu?
Sent: Mán 06. Nóv 2006 15:41
af w.rooney
gumol skrifaði:Er búið að láta IP-tölu á netkortið eða er DHCP server á laninu?
úthlutar windowsið ekki sjálft ip tölu , ef ekki þá held ég að viðkomandi sé ekki búinn að úthluta , er hægt að fera það auto ? svo að ég upplýsi fáfræði mina hvað er DHCP server
Sent: Mán 06. Nóv 2006 18:16
af einar92
Sérstakt að vera nota win me, það er drasl....tölvur hrynja vanalega undan því mæli frekar með 98 sko... eða Linux edubuntu
svo er nóttulega win xp og mac alltaf til staðar
Sent: Mán 06. Nóv 2006 20:24
af gumol
Afhverju eruð þið svona ákafir í að reyna að laga vandamál sem er ekki til staðar?
Hann er ekki að kvarta undan Windows ME, hann er að kvarta undan því að komast ekki á netið gegnum netkort. Líklegasta ástæðan er vitlausar stillingar. As far as we know þá er nákvæmlega ekkert vandamál með stýrikerfið. Ef þið viljið tala um hvað Windows ME sé mikið drasl þá væri réttara að búa til nýjan þráð.
Við þurfum að fá að vita hvernig viðkomandi tengist netinu. Er hann að reyna að komast á það gegnum ADSL router sem hann fékk uppsettan frá símafyrirtækinu eða kanski gegnum aðra tölvu?
Sent: Mán 06. Nóv 2006 21:52
af w.rooney
þetta er komið í lag ég fór þarna í dag og skoðaði þetta þá hafði viðkomandi alltaf reynt að búa til nýja tengingu eins og að það væri módem uppsett í vélinni það þurfti bara að segja tölvunni að það ætti að fara útum lan tengið og þá small þetta allt saman og viðkomandi kemst núna á netið alsæll með ME stýrikerfið !
Sent: Mán 06. Nóv 2006 22:07
af arnarj
vandamálið var þá nákvæmlega það sem ég benti þér á.
Gumol: Ég benti honum á nákvæmlega rétta lausn og kom það mér ekki á óvart að hún virkaði. Ég má samt alveg benda honum á að ME sé drasl sem það er, ef hann kann eitthvað á tölvur og fólkið sem er með ME gerir það væntanlega ekki þá má benda á það væri stórgreiði fyrir fólkið ef það væri aðstoðað við að skipta yfir í eitthvað betra.
Alger óþarfi að mála hlutina dekkri en þeir eru.
Má benda á nýjan frábæran þráð þar sem hægt er að taka þessa ME umræðu á nýtt stig
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?t ... highlight=
Sent: Mán 06. Nóv 2006 23:22
af gumol
Ok, fyrirgefðu arnarj. Ég sá ekki að þú hafði sent inn alvöru lausn þarna aðeins fyrir neðan. En þegar fólk er að svara eins og einar92 og kemur ekki með neina lausn við vandamálinu sjálfu þá er það ekki að gera neinum gagn. Það er ekki nein lausn að setja Windows XP upp ef hann stillir það líka vitlaust.
Það er allt í lagi að benda á að það sé til einhver betri vara en viðkomandi á, en að segja að það sé lausn á vandanum að fá sér Windows XP er eins og að segja að þú lagir bíl með því að kaupa nýrri árgerð af honum, afþví árgerðin þín er svo ömurleg.