Síða 1 af 1

Windows Vista RC1

Sent: Lau 09. Sep 2006 12:02
af Jellyman
Ég downloadði Vista fyrir þónokkru síðan og installaði því og allt það gekk vel.
Er núna að nota vista og þetta er rosalega flott!! miklu betra en ég átti von á bara eitt STÓRT vandamál hjá mér!
Alltaf þegar ég ætla að horfa á video eða hlusta á tónlist þá kemur bluscreen eftir nokkrar mínútur af áhorfi/hlustun sem er þannig að það frýs allt og kemur blár skjár með texta í minna en sec og svo restartar hún sér.
Það virðist ENGINN annar vera með þetta vandarmál, installaði vista með sama disknum hjá vini mínum sem er að nota þetta núna og allt virkar perfect.
:(
hafði nokkuð eitthverjar tillögur að laga þetta áður en ég skipti aftur í xp?

Sent: Lau 09. Sep 2006 13:26
af kristjanm
Hljómar eins og eitthvað sé að ofhitna hjá þér.

Sent: Lau 09. Sep 2006 21:20
af Yank
Gæti verið eitthvað driver vandamál. Spurning að finna aðra nýrri fyrir Vista ef til eru.

Sent: Lau 09. Sep 2006 21:57
af GuðjónR
Hvað er Vista að taka mikið RAM hjá þér?

Sent: Lau 09. Sep 2006 23:19
af Jellyman
er með glænýja ATI vista RC1 drivera og núna er vista að taka 470 mb af 1gb ram, hélt þetta gæti kannski verið útaf því að ég er búinn að overclocka frekar mikið þannig að ég setti það allt í venjulegt en samt allveg eins. Gæti samt verið útaf skjákortinu en eninginn annar með ati er í vandræðum með þessa gerð af vista.

Sent: Lau 09. Sep 2006 23:32
af tms
Ég ætlaði að prufa windows vista rc1 en það er víst ekki hægt að ná í þetta nema maður sé með MSDN subscription [-(

Sent: Lau 09. Sep 2006 23:53
af Jellyman
já... var hægt að downloda fyrstu dagana í sept en núna ekki lengur hægt (fékk mitt á torrentspy :roll: ). Ég vill allveg roslega mikið nota þetta, nenni ekki að fara aftur í þetta crappí XP þetta er svo milljón sinnum betra sko...

Sent: Sun 10. Sep 2006 02:35
af gnarr
ég veðja á ða þetta séu hljókorts driverarnir. prófaðu að disable hljóðkortið, og athugaðu hvort tölvan frýs þá á video-um. Ef það virkar, fynndu þá aðra hljóðkorts drivera.

Sent: Sun 10. Sep 2006 10:08
af Bassi6

Sent: Sun 10. Sep 2006 12:50
af Jellyman
Ég downloadaði nýjum realtek vista sound driver og síðan hefur þetta aldrei gerst TAKK FYRIR kælega!

Sent: Sun 10. Sep 2006 13:39
af Birkir
Telst þetta sem erlent download?

Sent: Sun 10. Sep 2006 13:42
af Bassi6
Já þetta er erlent download

Sent: Sun 10. Sep 2006 14:20
af tms
Bassi6 skrifaði:Já þetta er erlent download

Ég er hjá símanum og þetta kemur ekki frá útlöndum hjá mér.
traceroute skrifaði:>> tracepath download.windowsvista.com
1: tms-laptop.lan (192.168.1.70) 0.154ms pmtu 1492
1: speedtouch.lan (192.168.1.254) 6.392ms
2: anax6.isholf.is (157.157.255.116) 88.139ms
3: IPnet-gw.157.157.95.209.simnet.is (157.157.95.209) 76.109ms
4: backbone-muli.isholf.is (157.157.255.149) asymm 5 51.616ms
5: ipnet-gw-muli.isholf.is (157.157.255.137) 54.658ms
6: rix-gw.rhnet.is (193.4.59.10) asymm 8 72.608ms
7: a130-208-16-150.deploy.akamaitechnologies.com (130.208.16.150) 58.115ms reached

Sent: Sun 10. Sep 2006 14:42
af Bassi6
Já það er rétt hjá þér ég var svosem ekkert að spá í það er með ótakmarkað download

Sent: Sun 10. Sep 2006 16:48
af Birkir
Glæsilegt.

Sent: Sun 10. Sep 2006 17:08
af Cikster
Ætla bara láta ykkur vita að RC1 af vista nær ekki að installast ef maður er með nVidia 7950 GX2 skjákort. Verður að taka það úr vélinni og hafa eitthvað annað til að maður nái að setja það inn.

Sent: Mán 18. Sep 2006 07:37
af Jellyman
það var að koma upp enn eitt vandamál hjá mér sem enginn annar virðist hafa... þegar ég spila leiki eins og counter-stike souce þá verður alltaf helmingurinn af skjánum fucked upp :? . Eruð þið nokkuð með eitthver ráð?

Sent: Mán 18. Sep 2006 12:41
af tms
Jellyman skrifaði:það var að koma upp enn eitt vandamál hjá mér sem enginn annar virðist hafa... þegar ég spila leiki eins og counter-stike souce þá verður alltaf helmingurinn af skjánum fucked upp :? . Eruð þið nokkuð með eitthver ráð?

Fara aftur í XP?
Ég gerði það vegna þess að það kom í ljós að þetta er bara 15 daga prufuversion.

Sent: Mán 18. Sep 2006 12:44
af gnarr
það er bara ef maður activate-ar ekki.

Sent: Mán 18. Sep 2006 13:22
af ÓmarSmith
Vista RC1 alveg 4tW.

Djöfull lookar þetta vel. En ég er ekki að sjá eitthvað DX 10 í þessu.

Gnarr, er það nokkuð komið út í VISTA ?

Sent: Mán 18. Sep 2006 14:45
af gnarr
jú. ef þú ert með löglegann vista lykil geturu activate-að og notað það í hálft ár.

Sent: Mán 18. Sep 2006 15:40
af ÓmarSmith
Ég átti við DX10,

Er það komið í VISTA RC-1 og virkar ?

Sent: Mán 18. Sep 2006 16:50
af Stebet
ÓmarSmith skrifaði:Ég átti við DX10,

Er það komið í VISTA RC-1 og virkar ?


Jamm. Það er því miður ekkert forrit sem nýtir það ennþá en það er til staðar. Rendering fer líklegast fram gegnum Software þar sem ekkert DirectX 10 hardware er til fyrir almenning ennþá.

Hérna er SDK fyrir þá sem vilja skoða nýju interfacein (fyrir forritara).