Síða 1 af 1

2 stórvandamál

Sent: Mán 04. Sep 2006 11:07
af CraZy
Jæja fólk nú er komið að því, fyrsta vandamálið lýsir sér þannig að netið er slow eða þar að segja ef ég ættla að fara á síður þarf ég að ýta á enter svona 5 sinnum til að síðan loadist.
þetta gerist á þráðlausuneti í lappanum og þrædda netinu í borðtölvunni

2. vandamálið er að touchpadið í lappanum er einhvað dáið, það virkar að nota það einsog mús en það er ekki hægt að nota það til að clicka með, þarf alltaf að nota þessa leiðinlegu plast tappa þarna fyrir neðan.

Einhver snillingurinn með ráð?

Ætti eginlega að vera í net flokknum og lappa flokknum en ég mætti þessu á miðri leið og setti þetta hingað ;)

Sent: Mán 04. Sep 2006 18:32
af ManiO
Gæti verið stilling einhversstaðar með touch padið. (Breytilegt eftir tölvum)

Sent: Mán 04. Sep 2006 19:56
af Heliowin
Þetta með netið er jú tricky. Ef tövurnar hafa ekki sameiginlegt vandamál í formi einhverrar óværu, þá gæti verið mögulegt að athgua með ytri netbúnað eins og router og snúrur; just a guess!

Touchpad vandamálið hefði kannski verið hægt að leyst með að setja driverinn fyrir það inn á ný. Kannski er samband á milli þarna ef um einhverra óværu er að ræða; just a guess!

Sent: Mán 04. Sep 2006 23:05
af CraZy
hmm óværa.. gæti verið, ættla prófa að scanna lappan með einhverju dóti

Sent: Þri 05. Sep 2006 00:34
af mjamja
hvaða router ertu með?

Sent: Þri 05. Sep 2006 01:33
af CraZy
SpeedTouch 585

skannaði með spysweeper, það breytti engu, annars virðist netið virka núna ágætlega en þetta kemur í köstum :? Touchpadið er ennþá í skralli

Búin að laga þetta... tók ekki eftir möguleikanum "tab to click" ef maður hægri smelli á "Synaptic pointing device" í systemtray :oops: