Linux vs. Windows

Skjámynd

Höfundur
Beetle
Ofur-Nörd
Póstar: 214
Skráði sig: Mið 16. Ágú 2006 17:52
Reputation: 0
Staðsetning: 104 Rvík.
Staða: Ótengdur

Linux vs. Windows

Pósturaf Beetle » Sun 27. Ágú 2006 18:23

Mér var sagt að Linux stýrikerfið væri framtíðin ???? (skv. félaga mínum sem vinnur v. forritun) er sjálfur með Win XP Pro. sem er nú alveg þokkalegt, kann sona passlega á það.
En stóra spurningin er, ég sem sona venjulegur notandi, kann ágætlega á vélina mína og þetta venjulega í smb. við uppsetnigar og öryggi.
Nota Bitdefender 9 Standad vírusvörn, Webroot Spy Sweeper malvare vörn,Mozilla vafrann. Nota EKKI Int.Explorer,Outlook né MSN... Spila tölvuleiki, vafra um netið oþh.
Þannig að hér kemur 100.000-kr. spurninginn..... er Linux f. mig ? hvað með rekla ? eru þeir aðgengilegir ? hvað með update ? og er þetta algjörlega frítt.......???? hmmmmm., eiginlega of gott til að vera satt.....!



Skjámynd

Dagur
Geek
Póstar: 802
Skráði sig: Fös 19. Sep 2003 14:00
Reputation: 65
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Dagur » Sun 27. Ágú 2006 19:50

þú verður bara að prófa. Ef þú ert ánægður með windows þá sé ég enga ástæðu til að skipta. Hvorki windows né linux er fullkomið og hafa sína kosti og galla þannig að ef þú skiptir þá ertu að fórna einhverju fyrir það sem þú færð í staðinn.

Þú þarft líklega ekki að hafa áhyggjur af reklum. Ef þú velur vinsælt distro eins og t.d. Ubuntu eða Fedora þá verður örugglega allt sett upp fyrir þig. Þau uppfæra sig svo sjálfkrafa svipað og windows update (bara þægilegra).

Ef þú spilar oft tölvuleiki þá borgar sig að hafa windows líka.




gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Sun 27. Ágú 2006 23:37

Það einfaldasta fyrir þig væri líklega að kaupa þér ódýran IDE harðan disk, taka gamla diskinn úr tölvunni og setja nýja í (til að vera öruggur um að eyða engu sem má ekki eyða). Setja svo notendavænt kerfi eins og Ubuntu upp.

Ef þú ert að leita að einhverju til að setja upp einusinni, fá allt til að virka og hugsa ekki meira um það þá er Linux ekki fyrir þig. Ef þú hefur gaman af því að prófa þig áfram til að fá eitthvað til að virka og læra í leiðinni helling um stýrikerfið sem þú ert að nota þá er Linux fyrir þig.

(Ok, þetta er kanski ekki svona algilt, en ágætis viðmiðun. Eins og Dagur sagði þá verðuru bara að prófa)



Skjámynd

tms
Gúrú
Póstar: 529
Skráði sig: Mán 04. Ágú 2003 00:56
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf tms » Sun 27. Ágú 2006 23:48

Nei, Linux, GNU & co er ekki fyrir þig.
Hvers vegna? Hvers vegna ekki? Ef windows hentar þér fullkomlega eins og er þá sé ég enga ástæðu fyrir þig að flytja þig yfir á öðrvísi stýrikerfi þar sem þú þarft að læra hluti upp á nýtt til að gera það sama og þú ert að gera á windows núna.



Skjámynd

Heliowin
FanBoy
Póstar: 706
Skráði sig: Fös 11. Nóv 2005 11:33
Reputation: 2
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Heliowin » Mán 28. Ágú 2006 13:08

Þeir sem byrja með Linux hafa potential til að þrífast með það.

Ég myndi mæla með sér tölvu fyrir Linux ef það hægt að koma því við.

Þetta með rekla er ekki mikið vandamál og er að breytast til hins betra eftir því sem fjöldi Linux desktop notenda eykst.

Update er venjulega vel aðgengilegt og þægilegt.

Linux á desktop er einfaldlega að verða meir og meir aðgengilegra fyrir hinn almenna notenda.

Linux er allt annað en Windows og krefur meiri kunnáttu að nota. Þegar það verður ljóst og færnin eykst, þá hefur maður skemmtilegan grundvöll - og það meira en Windows gæti gefi- til að koma áhugaefnum sínum í verk, enda gefur Linux langum meiri möguleika en Windows á mörgum sviðum.

Ég persónulega stefni að, að nota Linux meira þar sem nýtt Windows stýrikerfi er á næsta leiti sem manni gremst nokkuð að þurfa að nota.




Birkir
Kerfisstjóri
Póstar: 1284
Skráði sig: Fim 13. Nóv 2003 15:57
Reputation: 0
Staðsetning: Utan þjónustusvæðis
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Birkir » Mán 28. Ágú 2006 16:08

Hefurðu séð Win Vista?




JReykdal
FanBoy
Póstar: 714
Skráði sig: Lau 04. Des 2004 18:59
Reputation: 175
Staða: Ótengdur

Pósturaf JReykdal » Mán 28. Ágú 2006 16:53

Birkir skrifaði:Hefurðu séð Win Vista?


Hef séð það og er afskaplega lítið impressed.


Vinsamlegast athugið: Skoðanir mínar sem birtast hér eru mínar og mínar einar en ekki
vinnuveitenda minna,vina og vandamanna, gæludýra og húsgagna nema annað sé tekið fram.

Skjámynd

Heliowin
FanBoy
Póstar: 706
Skráði sig: Fös 11. Nóv 2005 11:33
Reputation: 2
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Heliowin » Mán 28. Ágú 2006 18:04

Birkir skrifaði:Hefurðu séð Win Vista?


Auðvitað hef ég það, og mér er hálf óglatt af því!



Skjámynd

Dagur
Geek
Póstar: 802
Skráði sig: Fös 19. Sep 2003 14:00
Reputation: 65
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Dagur » Þri 29. Ágú 2006 17:17

Heliowin skrifaði:Þeir sem byrja með Linux hafa potential til að þrífast með það.

Ég myndi mæla með sér tölvu fyrir Linux ef það hægt að koma því við.


Þá á hann ekkert eftir að nota hana. Ég mæli frekar með því að prófa að nota bara (eða því sem næst) linux í viku og finna hvernig það er að nota það á hverjum degi. Ef þú þarft minna og minna að fara inn í windows þá ættir þú að íhuga að skipta.

Linux er allt annað en Windows og krefur meiri kunnáttu að nota. Þegar það verður ljóst og færnin eykst, þá hefur maður skemmtilegan grundvöll - og það meira en Windows gæti gefi- til að koma áhugaefnum sínum í verk, enda gefur Linux langum meiri möguleika en Windows á mörgum sviðum.


Ég er ósammála því að Linux krefjist meiri kunnáttu. Ég ætla meira að segja að ganga svo langt að segja að fyrir einstakling sem hefur hvorki notað windows eða linux að hann sé fljótari að læra á linux (þ.e.a.s. eina af notendavænu dreifingunum).
Aftur á móti gæti vanur windows notandi lent í vandræðum vegna þess að linux er að mörgu leiti öðruvísi. Ef þú reynir að nota linux eins og windows þá eiga margir kostir Linux eftir að fara framhjá þér.



Skjámynd

Höfundur
Beetle
Ofur-Nörd
Póstar: 214
Skráði sig: Mið 16. Ágú 2006 17:52
Reputation: 0
Staðsetning: 104 Rvík.
Staða: Ótengdur

Win vs. Lin

Pósturaf Beetle » Mið 30. Ágú 2006 01:50

Ok nokkurn veginn einsog ég bjóst við að heyra...... Hef einmitt aukavél til að setja Linux upp með, ég er grúskari í mér og veit nokk að ég mun hafa gaman af þessu :) Læt vita hv. gengur...... Thanks




JReykdal
FanBoy
Póstar: 714
Skráði sig: Lau 04. Des 2004 18:59
Reputation: 175
Staða: Ótengdur

Pósturaf JReykdal » Mið 30. Ágú 2006 09:57

Mundu bara að skemmta þér vel :)


Vinsamlegast athugið: Skoðanir mínar sem birtast hér eru mínar og mínar einar en ekki

vinnuveitenda minna,vina og vandamanna, gæludýra og húsgagna nema annað sé tekið fram.

Skjámynd

tms
Gúrú
Póstar: 529
Skráði sig: Mán 04. Ágú 2003 00:56
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Win vs. Lin

Pósturaf tms » Mið 30. Ágú 2006 12:10

Beetle skrifaði:Ok nokkurn veginn einsog ég bjóst við að heyra...... Hef einmitt aukavél til að setja Linux upp með, ég er grúskari í mér og veit nokk að ég mun hafa gaman af þessu :) Læt vita hv. gengur...... Thanks

OK gott mál, mundu bara að fara frá windows er eins og að hætta að reykja. :wink: Maður endist lengur og lengur, but you never really quit.




pjesi
has spoken...
Póstar: 179
Skráði sig: Þri 16. Mar 2004 23:56
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Win vs. Lin

Pósturaf pjesi » Lau 02. Sep 2006 21:42

tms skrifaði:OK gott mál, mundu bara að fara frá windows er eins og að hætta að reykja. :wink: Maður endist lengur og lengur, but you never really quit.


Það er meira svona eins og once you try black you aint going back.


asdf


Vilezhout
spjallið.is
Póstar: 401
Skráði sig: Þri 04. Nóv 2003 02:30
Reputation: 0
Staðsetning: Nethimnaríki
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Vilezhout » Sun 03. Sep 2006 00:01

gumol skrifaði:
Ef þú ert að leita að einhverju til að setja upp einusinni, fá allt til að virka og hugsa ekki meira um það þá er Linux ekki fyrir þig. Ef þú hefur gaman af því að prófa þig áfram til að fá eitthvað til að virka og læra í leiðinni helling um stýrikerfið sem þú ert að nota þá er Linux fyrir þig.

(Ok, þetta er kanski ekki svona algilt, en ágætis viðmiðun. Eins og Dagur sagði þá verðuru bara að prófa)


Það er nú frekar kannski bara happa glappa, t.d. þegar að ég setti upp Ubuntu á p3 fartölvuna mína p3 vél að þá var hún einfaldlega tilbúin í alla notkun og það eina sem að ég þurfti að eyða einhverjum tíma í til að fá til að virka var þráðlausa pmcia netkortið sem að hafði aldrei virkað almennilega í winxp enn virðist virka fyrst núna almennilega.

Enn svo þegar að ég ákvað að smella 64bita ubuntu inná borðvélina þurfti ég að setja nánast allt upp sjálfur enn átti þó ekki í neinum vandræðum með það vegna þess að hve greinargóðar leiðbeiningar voru inná ubuntuwikinu og inná ubuntuguide.org


This monkey's gone to heaven


DoRi-
</Snillingur>
Póstar: 1023
Skráði sig: Mið 20. Okt 2004 19:18
Reputation: 0
Staðsetning: 127.0.0.1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf DoRi- » Sun 03. Sep 2006 11:36

ég er í miklum umhugsunum að hætta að mestu leiti með Windows, sérstaklega þar sem að ég er algjörlega hættur að lenda í vandræðum með ntfs