Síða 1 af 1

Fileserver á milli húsa!

Sent: Sun 30. Júl 2006 20:46
af Mazi!
Sælir vaktar.

Ég hef svolítið verið að spá í að gera fileserver sem virkar þannig að hann er heima hjá vini mínum og við setjum fullt af drasli á hann og þannig. en ég þarf að geta opnað hann þá heima hjá mér líka :(
ef þið skiljið hvað ég á við en annas þá er brynjardreamer með mér í þessu þannig að hann á 50% í þessum þræði :)

Sent: Sun 30. Júl 2006 23:20
af Andri Fannar
FTP?

Sent: Sun 30. Júl 2006 23:29
af BrynjarDreaMeR
hvernig set eg upp ftp ? geturu kennt mér ?

Sent: Mán 31. Júl 2006 15:16
af Pandemic
Setja upp Windows og hafa bara filesharing í gangi? Mappa síðan bara möppuna-HDD í my computer.

Sent: Mán 31. Júl 2006 16:07
af Stutturdreki
Pandemic skrifaði:Setja upp Windows og hafa bara filesharing í gangi? Mappa síðan bara möppuna-HDD í my computer.
Þá þurfa þeir að vera á sama neti.

Bara annar eða báðir að setja upp Filezilla FTP Server, stofna hvorn annan sem notanda og opna fyrir portforward á port 21 í routerunum ykkar.. og svo helst fá sér fasta IP nema þið viljið hringja fyrst til að spyrja um ip áður en þið tengjist.. eða nota DynaDns eða sambærilegt.

Ef þið væruð fleirri gæti borgað sig að setja upp Torrent en engin ávinningur í því í svona 1on1 download/upload.

Sent: Lau 05. Ágú 2006 18:37
af Mazi!
Stutturdreki skrifaði:

ok takk en þurfum við ekki að láta opna port á rádernum? og kostar föst IP ekki eitthvað?

Sent: Lau 05. Ágú 2006 18:48
af arnarj
Mazi! skrifaði:ok takk en þurfum við ekki að láta opna port á rádernum? og kostar föst IP ekki eitthvað?

Ekki bjartasta peran í herberginu.

Stutturdreki skrifaði: stofna hvorn annan sem notanda og opna fyrir portforward á port 21 í routerunum ykkar..

Sent: Sun 06. Ágú 2006 11:28
af Mazi!
arnarj skrifaði:
Mazi! skrifaði:ok takk en þurfum við ekki að láta opna port á rádernum? og kostar föst IP ekki eitthvað?

Ekki bjartasta peran í herberginu.

Stutturdreki skrifaði: stofna hvorn annan sem notanda og opna fyrir portforward á port 21 í routerunum ykkar..

hehe :oops: er ekki neinn snilli í þessu

Sent: Mán 07. Ágú 2006 20:49
af W.Dafoe
Skoðaðu Hamachi http://www.hamachi.cc/

Sent: Lau 12. Ágú 2006 12:56
af Mazi!
W.Dafoe skrifaði:Skoðaðu Hamachi http://www.hamachi.cc/

ok ég og brynjar erum búnir að setja þetta upp og svona er þetta hjá okkur er þetta lveg rétt hjá okkur? annas föttum við ekki alveg hvernig við opnum fileserver í gegnum þetta?

Mynd

Sent: Lau 12. Ágú 2006 21:26
af biggi1
ég var nú bara að sækja þetta eitursvala forrit rétt áðan, en eftir smá skoðun þá verðuru að hægri klikka á möppuna sem þú villt deila, sharing and security og haka við share this folder to the network..

svo fer hinn aðilinn í forritið og hægri klikkar á þig og klikkar á browse.

eða ég held það að minnsta kosti :)

Sent: Sun 17. Sep 2006 13:49
af dorg
biggi1 skrifaði:ég var nú bara að sækja þetta eitursvala forrit rétt áðan, en eftir smá skoðun þá verðuru að hægri klikka á möppuna sem þú villt deila, sharing and security og haka við share this folder to the network..

svo fer hinn aðilinn í forritið og hægri klikkar á þig og klikkar á browse.

eða ég held það að minnsta kosti :)

Það eina sem þarf að gera til að filesharing virki milli tveggja windows tölva er að
Setja upp port forwarding í router gagnvart port 139 á vélinni skilgreina svo eitthvað share
Ágætt að nota windows firewall til að stýra hvaða IP geta tengst.

Segir svo félaganum á hvaða ip tölu þú kemur gagnvart netinu (myip.is)
og segir honum svo bara að mappa network drive \\iptala\sharenafn
Þá fær hann beiðnum um að gefa upp notendanafn og lykilorð sem hann þarf líka
að hafa á vélinni með réttindi til að lesa shareið.