Síða 1 af 2

Gefins ubuntu linux diskar.

Sent: Mán 05. Jún 2006 20:29
af kraft
Ég er með hérna Ubuntu linux diska gefins ef einhver vill. Ég fékk sent frekar MIKIÐ magn frá þeim að utan. Ég er með 10x 32 bita diska og 5x 64 bita diska. Ef einhver hefur áhuga verið í sambandi. Það eru bæði install cd & live cd og er þetta version 5.10

Mynd

Sent: Mán 05. Jún 2006 22:16
af Rusty
ég skal alveg þyggja þá.

Sent: Mán 05. Jún 2006 23:31
af Vilezhout
Það tekur umþaðbil kortér eða svo sennilega að uppfæra í 6.** sem að er nýjasta útgáfan eða dapper drake

mæli sterklega með því

Sent: Mán 05. Jún 2006 23:31
af Mazi!
ég þygg einn 32bit disk Kraft :D

ubunto linux

Sent: Þri 06. Jún 2006 05:35
af kraft
Sæll Mazi.

Sendu mér bara í PM hvort þú vilt sækja diskinn til mín í Njarðvíkina eða hvort ég á að senda þér hann í pósti :)

kveðja

kraft

Sent: Þri 06. Jún 2006 10:19
af Dagur

Sent: Þri 06. Jún 2006 14:21
af kraft
Ég er búinn að panta diska.

Sent: Þri 06. Jún 2006 14:57
af HemmiR
biddu þegar maður pantar svona diska þarf maður þá ekki að borga sendingar kostnaðinn?

Sent: Þri 06. Jún 2006 15:00
af Dagur
HemmiR skrifaði:biddu þegar maður pantar svona diska þarf maður þá ekki að borga sendingar kostnaðinn?


neibb.

Þegar ég pantaði 5.10 diskana mína þá stoppuðu þeir í tollinum þannig að ég þurfti að sanna fyrir þeim að þeir væru ókeypis. Þeir sögðu bara ok og ég fékk þetta sent heim til mín.

Sent: Þri 06. Jún 2006 15:09
af HemmiR
ok magnað þá panta ég þetta bara :)

Sent: Þri 06. Jún 2006 15:30
af kraft
jæja þá á ég 9x 32 bita diska eftir og 4x 64 bita diska eftir, ef einhver hefur áhuga, fór út á pósthús áðan :)

Sent: Þri 06. Jún 2006 19:10
af gumol
Downloadið þessu bara, ekki eyða peningunum þeirra.

Er að nota þetta með XGL og Compiz. Mjög nice :D (þótt það sé frekar óstöðugt ennþá)

Sent: Þri 06. Jún 2006 19:44
af Rusty
Ég á þessa diska skrifaða. Finnst bara leet að eiga þá svona.

ubuntu

Sent: Mið 07. Jún 2006 09:26
af kraft
maður er alltaf á torrentinu, hefur ekki tíma að downloada þessu hehehe :) En eins og ég segi það er hægt að panta af ubuntu.com , downloada þessu eða fá diska hjá mér á meðan ég á diska eftir. Ykkar er valið :) :D

Sent: Mið 07. Jún 2006 13:19
af Dagur
btw, það er til video af uppsetningunni á dapper (og fleira) á http://osvids.com/

Sent: Mið 07. Jún 2006 14:50
af biggi1
hvernig er þetta með ubuntu.. hver er svona "sterkasta" hliðin eins og mac er með graffíska og hljóðvinnslu og windows er með leiki.?

og er þetta að styðja einhver forrit?

Sent: Mið 07. Jún 2006 15:19
af Dagur
Þú meinar þá hvað hefur það fram yfir windows og OSX?

Það er í raun og veru svo margt. Það er

1. Ókeypis (+ ókeypis support)
2. Mjög notendavænt
3. Stöðugt
4. Öruggt
5. Býður upp á hundruð forrita og pakka sem hægt er að setja upp með nokkrum músasmellum.
6. Hefur stóran notendahóp bakvið sig (auðvelt að finna svör við vandamálum á google).
7. Algjörlega laust við DRM


Þetta eru aðalatriðin en ég gæti haldið áfram.


Hvaða forrit styður þetta? Það fer eftir því hvað þú ætlar að gera, þessi listi var nóg fyrir mig þegar ég skipti yfir í Ubuntu

Sent: Mið 07. Jún 2006 16:08
af Rusty
Plús þetta er ótrúlega einfalt. Ekkert vesen þegar það kemur að uppsetningu algengustu forritana. Þau eru öll innan í update managernum í stýrikerfinu.

Eina sem böggar mig er hvað það er eitthvað mikið vesen að fá dual-head til að virka.

Sent: Mið 07. Jún 2006 18:44
af Voffinn
Rusty skrifaði:Plús þetta er ótrúlega einfalt. Ekkert vesen þegar það kemur að uppsetningu algengustu forritana. Þau eru öll innan í update managernum í stýrikerfinu.

Eina sem böggar mig er hvað það er eitthvað mikið vesen að fá dual-head til að virka.


Það er nú ljúft að fá það til að virka ef þú ert með nvidia kort.

Sent: Mið 07. Jún 2006 19:25
af biggi1
heirðu já, eitt að lokum.. hvernig ber maður ubuntu fram? til þess að hljóma ekki eins og einhver hálviti :)

Sent: Mið 07. Jún 2006 19:27
af JReykdal
Ú-bún-tú

Sent: Mið 07. Jún 2006 21:59
af Dagur

Sent: Mið 07. Jún 2006 22:05
af Rusty
ég segi alltaf ubbunntú.

Sent: Fim 08. Jún 2006 01:12
af biggi1


sorry svona offtopic.. en ég er búinn að reyna þetta en ég fæ aldrei email til baka um hvernig egi að klára sign up-ið ... :?

Sent: Fim 08. Jún 2006 01:35
af gnarr
ég segi "jú-bún-tú"