Síða 1 af 1
Homeplug, eða lan um raflagnir.
Sent: Mið 17. Maí 2006 20:19
af Fumbler
Þekkið þið svona tæki eitthvað
Homeplug adapters,
http://www.devolo.com/co_EN/produkte/dlan/
Vitiði nokkuð hvort það sé einhver að selja svona hér á landi?
Ég hef heyrt af því að síminn er með einhver svona tæki í testi fyrir TVoDSL.
Up to 85 Mbps of Data Transmission
Hér er listi yfir framleiðindur á svona tækjum.
http://www.homeplug.org/en/products/products.asp
Mér fynnst þetta stór sniðugt, sparar mér þá að leggja um allt húsið, næst þegar ég flyt í nýtt hús og ef WiFi dregur ekki.
Sent: Mið 17. Maí 2006 23:29
af CraZy
vá spes.. vissi ekki að þetta væri til, sniðugt samt
Sent: Mið 17. Maí 2006 23:43
af Taxi
Ég gæti hugsanlega nýtt svona græju
Er að gefast upp á Wi-Fi og ætlaði að kaupa Access Point til að ná merkinu
sterkara en kannski er þetta málið.???
Sent: Fim 18. Maí 2006 00:13
af gumol
Held að flutningshraðinn og truflanir sem geta orðið frá öðrum rafmagnstækjum geri það að verkum að þeta er ekkert sniðugt.
Sent: Fim 18. Maí 2006 00:15
af Pandemic
Draga bara í húsið tekur einn dag og borgar sig.
Sent: Fim 18. Maí 2006 00:17
af natti
Sá svona zyxel tæki um daginn keypt hérlendis.
Voru að ná frá 20-80mb.
Virkaði s.s. alveg.
Ég man ekki hvar zyxel apparatið var keypt, en það var í einhverri tölvubúð hérna á höfuðborgarsvæðinu.
Hringdu bara og finndu það út. Og póstaðu svo hér
Sent: Fim 18. Maí 2006 00:19
af gumol
Gæti kanski skipt máli hvort rafmagnslagnirnar í húsinu eru gamlar/nýjar?
Annars er þetta ekkert nýtt, búið að vera til sölu fyrir almenning í nokkur ár.
Sent: Fim 18. Maí 2006 01:26
af Blackened
Já.. ég man eftir þessu síðan fyrir nokkrum árum síðan..
Er ekki viss um að þetta sé sniðugt.. meina.. ég sem rafvirki hef litla trú á því allavega.. miðað við ástand raflagna í mörgum húsum allavega
En ég leysti þetta bara ágætlega.. ég bý í einbýlishúsi með lofti.. svo að ég lagði bara Cat5 snúrur uppúr öllum herbergjum uppá loft.. og í switch þar
Seeem að skilar ágætis hraða.. og ég sé engar snúrur.. er bara með tengla í veggjunum..
Sent: Fim 18. Maí 2006 11:30
af Taxi
Blackened skrifaði:Já.. ég man eftir þessu síðan fyrir nokkrum árum síðan..
Er ekki viss um að þetta sé sniðugt.. meina.. ég sem rafvirki hef litla trú á því allavega.. miðað við ástand raflagna í mörgum húsum allavega
En ég leysti þetta bara ágætlega.. ég bý í einbýlishúsi með lofti.. svo að ég lagði bara Cat5 snúrur uppúr öllum herbergjum uppá loft.. og í switch þar
Seeem að skilar ágætis hraða.. og ég sé engar snúrur.. er bara með tengla í veggjunum..
Hvað mundi rafvirkinn taka fyrir að draga í nýjar raflagnir í 100 fm íbúð
með bestu fáanlegum efnum og vinnu.???
Svona c.a. verð,ég veit að það getur munað miklu eftir aðstæðum.
Sent: Fim 18. Maí 2006 12:14
af Blackened
Taxi skrifaði:Blackened skrifaði:Já.. ég man eftir þessu síðan fyrir nokkrum árum síðan..
Er ekki viss um að þetta sé sniðugt.. meina.. ég sem rafvirki hef litla trú á því allavega.. miðað við ástand raflagna í mörgum húsum allavega
En ég leysti þetta bara ágætlega.. ég bý í einbýlishúsi með lofti.. svo að ég lagði bara Cat5 snúrur uppúr öllum herbergjum uppá loft.. og í switch þar
Seeem að skilar ágætis hraða.. og ég sé engar snúrur.. er bara með tengla í veggjunum..
Hvað mundi rafvirkinn taka fyrir að draga í nýjar raflagnir í 100 fm íbúð
með bestu fáanlegum efnum og vinnu.???
Svona c.a. verð,ég veit að það getur munað miklu eftir aðstæðum.
Jahh.. það er voða erfitt að segja... og þarsem að rafvirkjar eru örlítið dýrari í rvk heldur en á akureyri þá myndi ég skjóta á eitthvað í kringum 100þúsund.. það fer voðalega eftir því hvað þarf að gera og hvað það þarf að breyta miklu.. (ef þetta er gamalt hús)..
Það er rándýrt að fá rafvirkja í heimsókn allavega
Sent: Fim 18. Maí 2006 12:19
af ponzer
Þetta er nú ekkert nýtt, er búinn að sjá svona erlendis í nokkur ár.
Hef samt ekki hugmynd hvort það sé eitthvað vit í þessu
Sent: Fim 18. Maí 2006 13:08
af viggib
Þetta er til á computer.is held að það sé svipað þessu dæmi
http://www.computer.is/vorur/4419
Sent: Fim 18. Maí 2006 13:42
af ponzer
Þetta er pínu gay system, þetta er svipað og 'Raflína' sem OR var að bjóða uppá fyrir stuttu sem var btw drasl
Sent: Fim 18. Maí 2006 14:30
af Yank
ponzer skrifaði:Þetta er pínu gay system, þetta er svipað og 'Raflína' sem OR var að bjóða uppá fyrir stuttu sem var btw drasl
Er það pottþétt?. Hefði haldið að það væri mikil munur á slíkri tengingu og nokkra metra tengingu innann húss.
Sent: Fim 18. Maí 2006 17:03
af Fumbler
ponzer skrifaði:Þetta er pínu gay system, þetta er svipað og 'Raflína' sem OR var að bjóða uppá fyrir stuttu sem var btw drasl
Ég held ekki að það sé hægt að bera þetta við raflínu sem OR var með, það er eins og bera sama örbylgju tengingu og ADSL, vegna þess að í báðum tilfellum tenginu cat5 snúru í tölvuna, síðan var það back endin hjá OR sem var ekki að virka.
Það sem ég las um dlan tækin frá devolo.com, þá eru litlar sem engar truflanir. Sá grein um svona tæki hjá
tomshareware
Sent: Mið 28. Jún 2006 16:39
af Xyron
Zyxel búnaður kostar 16.000 hjá hátækni og virkar mjög vel.. er að vinna við að setja upp TVoDSL hjá símanum og hefur zyxelinn verið að virka mjög vel.. mjög þæginlegt ef það er eitthvað vessen með innanhúslagnir
Re: Homeplug, eða lan um raflagnir.
Sent: Mán 03. Júl 2006 20:12
af Xyron
Fumbler skrifaði:Þekkið þið svona tæki eitthvað
Homeplug adapters,
http://www.devolo.com/co_EN/produkte/dlan/Vitiði nokkuð hvort það sé einhver að selja svona hér á landi?
Ég hef heyrt af því að síminn er með einhver svona tæki í testi fyrir TVoDSL.
Up to 85 Mbps of Data Transmission
Hér er listi yfir framleiðindur á svona tækjum.
http://www.homeplug.org/en/products/products.aspMér fynnst þetta stór sniðugt, sparar mér þá að leggja um allt húsið, næst þegar ég flyt í nýtt hús og ef WiFi dregur ekki.
Hef sett upp 2 svona eins og þú ert með á myndini.. var alveg að virka mjög vel , prófaði að setja öll helstu heimiltæki í gang og það hélt alveg inni.. þessi sem þú ert með á myndinni er að fara á 7900 hjá símanum í TVoDSL
Þeir sem voru að prófa þetta segja að þetta virki í svona ca. 80-90 % tilvika.. getur vel verið að ef þú ert með lélega þétta, lekaliða og eða öryggi fyrir rafmagnið, að þá sé þetta ekki að ganga upp
Sent: Mán 17. Júl 2006 10:10
af arro
Virkar þetta ekki bara þgar báðar innstungur eru á sömu grein ??? Get ekki séð að þetta virki annars eða hvað ?
Sent: Mán 17. Júl 2006 19:56
af Xyron
bara innan sama lekaliða that´s all