Síða 1 af 1
Microsoft hætt við að rukka fyrir Express útgáfur!
Sent: Þri 09. Maí 2006 10:32
af Stutturdreki
http://msdn.microsoft.com/vstudio/express/default.aspx
Microsoft hafa ákveðið að gefa allar Express útgáfur af Visual Studio 2005 og SQL Server 2005. Þessi tól áttu upphaflega að vera ókeypis í eitt ár frá útgáfu.
Hvet alla sem hafa áhuga á forritun eða eru að fikta í forritun að ná sér í þessi tól og prófa, þetta eru örugglega öflugustu forritunar umhverfi sem hægt er að fá ókeypis.
Sent: Þri 09. Maí 2006 15:16
af tms
http://www.eclipse.org/
VisualStudio gerir þig heimskan, veistu það ekki?
Open-source 4tw.
Sent: Þri 09. Maí 2006 17:42
af Rusty
Er VisualStudio eitthvað sniðugt? Hljómar eitthvað svo "Frontpage'ið í forritunarheiminum"
Sent: Þri 09. Maí 2006 18:01
af Vilezhout
ef mér skjátlast ekki þá var ég víst að nota visual studio i einhverjum gagnslausum forritunartíma
ógeðslegt
Sent: Mið 10. Maí 2006 11:07
af Stutturdreki
Nei, vissi það ekki, hélt að þrjóska og þröngsýni gerði mann heimskan.
Orðið
heimskur er komið úr forn íslensku yfir fólk sem hefur aldrei farið að heiman og veit þar af leiðandi voðalega lítið um það sem er að gerast í heiminum.
Slíkt má ótrúlega oft heimfæra á svona prinsip OpenSource fólk sem vill ekki nota neitt annað því það er framleitt af Íllum anti-OpenSource stórfyrirtækjum..
Hef persónulega ekkert á móti OpenSource og Java er bara snilld, vann við Javaforritun í um tvö ár. Hef hinsveger unnið við (
aðallega) C# forritun síðustu þrjú árinn og eftir þá reynslu er ég á þeirri skoðun að Visual Studio sé öflugasta þróunarumhverfi sem er til í heiminum í dag, að nota það ekki af því að það er ekki OpenSource er heimska.. en náttúrulega þarf að velja sér verkfæri sem henta best hverju verkefni.
Rusty skrifaði:Er VisualStudio eitthvað sniðugt? Hljómar eitthvað svo "Frontpage'ið í forritunarheiminum"
Heh, já. Viðmótið er alls ekki ólíkt Frontpage, svona drag 'n drop. Þú þarft hinsvegar nánast ekkert að nota það frekar en þú villt og getur jafnvel komist algerlega hjá því. Og þá kemur styrkur Visual Studio fyrst í ljós því það er mjög þægilegt að skrifa og debugga kóða í því.. enda sérstaklega hannað til þess. Stór framför í Visual Studio 2005 er að allur 'Computer Generated Code' sem verður til við þetta drag 'n drop er settur í sérskrá sem er síðan merge-uð saman við kóðan þinn við þýðingu.. þá þarf maður aldrei að horfa á þennann hrylling sem verður til við það.
Vilezhout skrifaði:ef mér skjátlast ekki þá var ég víst að nota visual studio i einhverjum gagnslausum forritunartíma
ógeðslegt
Stutturdreki skrifaði:Hvet alla sem hafa áhuga á forritun eða eru að fikta í forritun ..
Ef þér finnst forritun "gangslaus" og "ógeðsleg" hvað ertu þá að tjá þig?
Sent: Mið 10. Maí 2006 23:43
af zedro
Það er ekki allt frá micro$oft hræðilegt.
Gott svar stutti
Sent: Mið 10. Maí 2006 23:55
af ICM
uh þessi "heimska" er ástæðan fyrir að Windows fær bestu forritin. Þessi heimska gerir forriturum mögulegt að eyða tímanum í gagnlega hluti eins og hvað forritið á að gera en ekki hvernig það gerir það.
Sent: Fim 11. Maí 2006 00:58
af Snorrmund
StutturDreki eða annar sem hefur vit á þessu.. er Visual Studio Express ekki flott byrjendaforrit í forritun? hefur alltaf langað að kunna eitthvað á þetta...
Sent: Fim 11. Maí 2006 10:19
af Stutturdreki
Snorrmund skrifaði:StutturDreki eða annar sem hefur vit á þessu.. er Visual Studio Express ekki flott byrjendaforrit í forritun? hefur alltaf langað að kunna eitthvað á þetta...
Fyrir byrjendur í forritun myndi ég mæla með Java, C# og kannski Python.
Ef þú velur C# þá er Visual Studio C# Express besta umhverfið sem þú getur fengið. Jafnvel ýtir Visual Studio undir það að byrja í C# vegna þess að það gerir lífið auðveldara, þú getur td. skrifað kóða, og svo debugað þig í gegnum hann og séð nákvæmlega hvað er að gerast hverju sinni.
C# nýtist svo líka ef þig langar að fikta í asp.net vefforritun.
Sent: Fim 11. Maí 2006 16:10
af Rusty
Python fyrir byrjendur? Er python liek ekki bara fyrir töfralækna og samurai ninjur?
Sent: Fim 11. Maí 2006 17:22
af tms
ICM skrifaði:uh þessi "heimska" er ástæðan fyrir að Windows fær bestu forritin. Þessi heimska gerir forriturum mögulegt að eyða tímanum í gagnlega hluti eins og hvað forritið á að gera en ekki hvernig það gerir það.
Stutturdreki skrifaði:Orðið heimskur er komið úr forn íslensku yfir fólk sem hefur aldrei farið að heiman og veit þar af leiðandi voðalega lítið um það sem er að gerast í heiminum.
Slíkt má ótrúlega oft heimfæra á svona prinsip OpenSource fólk sem vill ekki nota neitt annað því það er framleitt af Íllum anti-OpenSource stórfyrirtækjum..
.... djók.
Sent: Fim 11. Maí 2006 17:45
af Rusty
Stutturdreki skrifaði:Orðið heimskur er komið úr forn íslensku yfir fólk sem hefur aldrei farið að heiman og veit þar af leiðandi voðalega lítið um það sem er að gerast í heiminum.
Slíkt má ótrúlega oft heimfæra á svona prinsip OpenSource fólk sem vill ekki nota neitt annað því það er framleitt af Íllum anti-OpenSource stórfyrirtækjum..
Eða sparsömum/anti-piracy fólki.
Sent: Fim 11. Maí 2006 18:49
af gumol
Besta forritunarmál sem ég hef rekist á er php
Sent: Fim 11. Maí 2006 19:18
af Rusty
yeah, en hvernig notar maður það eiginlega í forrit? Ég veit að það er hægt, bara aldrei pælt hvernig.
Sent: Fim 11. Maí 2006 20:33
af Stutturdreki
Rusty skrifaði:Python fyrir byrjendur? Er python liek ekki bara fyrir töfralækna og samurai ninjur?
Well.. reyndar þarf ég að viðurkenna að ég kann ekkert á Python sjálfur
Minnti bara að ég hafi heyrt að það sé drullu öflugt og nokkuð notendavænt.
gumol skrifaði:Besta forritunarmál sem ég hef rekist á er php
Enda er PHP bara parser sem tekur Pearl og býr til vefsíður úr því.. og Pearl er ótrúlegt snilld
Gallinn við PHP er að það er bara hægt að nota það til að gera vefsíður.. og svo er ég ekki alveg viss hvort það sé hægt að kalla það forritunarmál.. td. þarf ekki að compila það.. PHP er meira svona script.
Sent: Fim 11. Maí 2006 22:51
af hagur
Ég var mikill PHP-ari fyrir 2-3 árum. Hef reyndar ekkert skoðað PHP 5 að ráði. Hef líka töluverða reynslu af Delphi og gamla ASP/VBScript.
Ég vinn við forritun í C# núna og það er alveg LANG-LANG þægilegasta og öflugasta forritunarmál sem ég hef komist í kynni við. Bæði er umhverfið (Visual Studio 2003/2005) alveg geysilega þægilegt, sem og frameworkið sjálft, þ.e innbyggðu klasasöfnin. Þar er nánast allt til alls.
Svo er C# algjörlega object-oriented og auðvitað compiled sem gerir það að verkum að performance er mjög gott.
Núna snerti ég ekki PHP með 3 metra priki ... nema nauðsyn krefji.
Sent: Fös 12. Maí 2006 00:09
af Voffinn
Stutturdreki skrifaði:Rusty skrifaði:Python fyrir byrjendur? Er python liek ekki bara fyrir töfralækna og samurai ninjur?
Well.. reyndar þarf ég að viðurkenna að ég kann ekkert á Python sjálfur
Minnti bara að ég hafi heyrt að það sé drullu öflugt og nokkuð notendavænt.
gumol skrifaði:Besta forritunarmál sem ég hef rekist á er php
Enda er PHP bara parser sem tekur Pearl og býr til vefsíður úr því.. og Pearl er ótrúlegt snilld
Gallinn við PHP er að það er bara hægt að nota það til að gera vefsíður.. og svo er ég ekki alveg viss hvort það sé hægt að kalla það forritunarmál.. td. þarf ekki að compila það.. PHP er meira svona script.
Perl, ekki Pearl.
Þú getur alveg búið til forrit úr php og keyrt þau, en þú compilear þau ekki þannig og þetta er eiginlega bara einsog að búa til scriptu.
Sent: Fös 12. Maí 2006 12:59
af Rusty
Stutturdreki skrifaði:Enda er PHP bara parser sem tekur Pearl og býr til vefsíður úr því.. og Pearl er ótrúlegt snilld
Gallinn við PHP er að það er bara hægt að nota það til að gera vefsíður.. og svo er ég ekki alveg viss hvort það sé hægt að kalla það forritunarmál.. td. þarf ekki að compila það.. PHP er meira svona script.
Liez!
hagur skrifaði:Ég var mikill PHP-ari fyrir 2-3 árum. Hef reyndar ekkert skoðað PHP 5 að ráði.
Finnur þó fáa servera sem skipt hafa yfir..
Sent: Fös 12. Maí 2006 13:35
af Stutturdreki
Rusty skrifaði:Stutturdreki skrifaði:Enda er PHP bara parser sem tekur Pearl og býr til vefsíður úr því.. og Pearl er ótrúlegt snilld
Gallinn við PHP er að það er bara hægt að nota það til að gera vefsíður.. og svo er ég ekki alveg viss hvort það sé hægt að kalla það forritunarmál.. td. þarf ekki að compila það.. PHP er meira svona script.
Liez!
Eh? Að PHP sé byggt á Perl (
svo ég skrifi það nú rétt) eða að PHP sé í raun script-mál en ekki forritunarmál?
Sent: Fös 12. Maí 2006 19:55
af Vilezhout
stutturdreki hvenær tók ég fram að mér þætti forritun gagnslaus ?
ég sagði að tíminn væri gagnslaus ekki forritun
Sent: Mán 15. Maí 2006 16:28
af Stutturdreki
Sé það núna, stór munur á að forritun sé gagnslaus og að forritunartímar séu gagnslausir.. silly me.
Sent: Mán 15. Maí 2006 17:04
af Phixious
Stutturdreki skrifaði:Sé það núna, stór munur á að forritun sé gagnslaus og að forritunartímar séu gagnslausir.. silly me.
Ég skildi þetta þannig að þessir tilteknu tímar hafi verið gagnslausir þar sem hann lærði lítið af þeim...
Sent: Sun 28. Maí 2006 17:11
af pjesi
Þessi þráður er fullur af röngum upplýsingum og ætti enginn að trúa orði sem stendur í honum.
Sent: Sun 28. Maí 2006 17:17
af Rusty
with all means, do correct it.
Sent: Sun 28. Maí 2006 17:59
af Rusty
Stutturdreki skrifaði:Eh? Að PHP sé byggt á Perl (svo ég skrifi það nú rétt) eða að PHP sé í raun script-mál en ekki forritunarmál?
að það sé aðeins hægt að nota PHP í vefsíður.