Síða 1 af 1
Að tengja 2 vélar saman sem eru tengdar við 1 router
Sent: Mán 20. Mar 2006 05:08
af beatmaster
Getur einhver sagt mér eða bent mér á leiðbeiningar hvernig 2 tölvur sem eru báðar nettengdar við sama speedtouch 585i routerinn geta tengst saman þannig að þær geti náð í hluti úr sitthvorri vélinni, þannig að tölva1 geti skoðað c,d,e,f... drifin í tölvu2 og öfugt
Báðar vélar eru með XP pro SP2
Sent: Mán 20. Mar 2006 08:44
af Skoop
start-run-skrifa ....
\\ip.adressa.vélar\drif.velar$
dæmi :
\\192.168.1.1\c$
passaðu bara að hafa drifið sem þú ætlar að fara á sherað.
svo eru reyndar sumir beinar með eldveggjum fyrir innra netið, efast samt stórlega um að það sé tilfellið með þennann beini sem þú ert með.
Prufaðu allavega fyrst hvort þetta virkar .
Sent: Mán 20. Mar 2006 12:53
af beatmaster
neibb, virkaði ekki, get ég ekki búið til eitthvað svona heima network og það þyrfti eiginlega að vera imbahelt því ef ég næ þessu góðu er 1 strákur sem ég þekki aðeins og er ekkert rosalega séfróður um tölvur sem vill hafa svona heima hjá sér og spurði mig hvort ég gæti reddað því
Sent: Mán 20. Mar 2006 14:57
af zedro
Hægrismellir á það drif/möppu sem þú ætlar að sharea og velur
Sharing and security... -> Setur haka í Share this folder on the network -> [OK]
Ferð í hina vélina og velur My network places og nú ættiru að geta séð möppuna/drifið sem þú varst að sharea.
Sent: Mán 20. Mar 2006 16:40
af Skoop
geturðu „pingað" vélarnar frá hvor annarri ?
start-run-cmd
ping 192.168.x.x / 10.10.x.x
Sent: Mán 20. Mar 2006 17:07
af KristinnHrafn
Settu tölvurnar í sama workgroup. Hægri smellir á My Computer og undir computer name hefuru sama workgroup á báðar tölvur. Hægri smellir á þá möppu sem þú vilt og ferð í sharing og sharear. Til að tengjast hinni annarri tölvu á sama neti, geturu farið í My Network Places farið í workgroup og sérð þar allar tölvurnar.
Sent: Mán 20. Mar 2006 19:51
af Rusty
\\nafn-á-tölvu í internet explorer.
Þarft að hafa hægrismellt á möppur sem þú vilt sharea, og velja Sharing and Security, og shera þeim.
Ef það virkar ekki, alltaf sniðugt að prófa að skrifa My Network Places , og athuga hvort einhverjar möppur koma upp í "Local Network"
Sent: Mán 20. Mar 2006 22:24
af beatmaster
Ég þakka fyrir hjálpina, hef ekki tíma til að prufa allt eins og er, virðist vera búinn að ná þessu en lenti í BSOD í dag þegar að ég var að fikta (er með gallaðan HDD) en læt ykkur vita hvort þetta gangi ekki upp eftir prófanir