Síða 1 af 1

Nýr fídus á Kisildalur.is

Sent: Fim 16. Mar 2006 01:26
af Cubasis
Sælir Vaktarar

Útaf því að mér leiddist í gær, þá ákvað ég uppá spaugið að henda saman eitt stykki nýjum fídus á kisildalur.is, og eruð þið fyrst til að frétta af þessu (wæsinn veit ekki einusinni af þessu).

Nú þegar þið hafið sett saman körfu, þá getið þið breytt körfuna í ágætlega nettan kóða sem inniheldur allar vörurnar! Þennan kóða getið þið síðan dreift eða geymt, sent eða hent, hvað sem þið viljið.

Síðan er hægt að smella á tengil þarna hægra megin sem heitir "Opna Körfukóða" (jepp, hrikalegt nafn), setja inn kóðan, og voila! Þá birtist karfan þín aftur.

Eftirfarandi er kóðinn sem táknar til dæmis draumatölvuna mína (*wink wink* wice!)

E4EAE CCECA EQQPQ IBUEB ACARB AKIQR QIIEE B8CBH BAUN

Síðan er bara að vona að wæsinn finni ekki þennan þráð, því ég á að vera að vinna að allt öðru þessa stundina.

~Eiríkur

p.s.
Þetta er fyrsta útgáfa, á tilraunastigi, þannig að farið létt á því :)

Sent: Fim 16. Mar 2006 09:25
af gnarr
nice! :D geðveik hugmynd hjá þér!

Nú verður miklu auðveldara að setja saman tölvur fyrir aðra :) maður þurfti alltaf að taka screenshot af körfunni og sýna það. en þetta gerir það óþarft.

E8EAO CB9BA EQQPU IB8EB ECAUR ALIQL AID0E B8CBH BAUIQ OAIDL Q

ACE!

Sent: Fim 16. Mar 2006 09:37
af Viktor
Flott framtak ;)

Sent: Fim 16. Mar 2006 14:06
af Veit Ekki
Nokkuð flott. :)

Sent: Fös 17. Mar 2006 16:03
af Cubasis
Lagaði villu með íslenska stafi þar sem þeir birtust vitlaust ef maður loadaði þeim með kóða.

Þá birtist karfa Gnarr's núna rétt.

Takk fyrir gott response.

~Eiríkur

Sent: Sun 19. Mar 2006 22:46
af Taxi
Vildi að ég hefði séð þennan þráð fyrr,það hefði auðveldað mér kaupin í Kísildal á föstudag eða pöntunina öllu heldur.
þá hefði ég getað sett saman pöntun,búið til kóða og opnað körfuna þegar ég kom í Kísildal og allt klárt.

Einnig væri gott að geta sett vöru í körfuna þó að hún sé uppseld.

Ég gat t.d ekki sett saman réttu körfuna út af því að varan er uppseld
(það er ekki skrítið miðað við verð og gæði vörunnar í kísildal að hlutirnir seljist upp hratt) annað er ekki hægt að bæta á vefsíðu Kísildals eftir þessa frábæru viðbót. Nice work Eiríkur.

Sent: Sun 19. Mar 2006 23:34
af HemmiR
am þetta er bísna nett svona hef ég ekki séð áður :Þ

Sent: Fös 24. Mar 2006 16:52
af ponzer
Töff :8)