Síða 1 af 1
Hljóð á Ubuntu?
Sent: Sun 05. Mar 2006 22:29
af KristinnHrafn
Ég var að setja upp Ubuntu 5.10 á tölvuna mína. Hvernig fæ ég hljóðið til að virka?
Sent: Sun 05. Mar 2006 22:33
af JReykdal
kveikir á hátölurunum (drumtiss)
Sent: Sun 05. Mar 2006 22:36
af gumol
Ætti að virka out of the box.
Sent: Sun 05. Mar 2006 22:41
af KristinnHrafn
Gæti ég þurft að setja upp einhverja hljóðkorts drivera?
Sent: Mán 06. Mar 2006 02:06
af Blackened
Ég lenti í þessu í dag.. var með LiveCD með ubuntu á..
og ótrúlegt en satt.. þá virkaði að ýta bara nógu oft á Play
þá byrjaði tónlistin að spilast á endanum..
...Og síðan gafst ég upp og fór aftur í Windows
Sent: Mán 06. Mar 2006 09:51
af Dagur
þetta gæti hjálpað:
http://easylinux.info/wiki/Ubuntu#How_t ... y_in_GNOME
(bookmarkaðu þessa síðu, það er fullt af fróðleik þarna).
Sent: Mán 06. Mar 2006 16:01
af KristinnHrafn
Mjög áhugaverð síða. Prófaði að gera þetta í sambandi við hljóðið en fæ enn ekkert hljóð.
Sent: Mán 06. Mar 2006 17:11
af beatmaster
Kanski
þetta hjálpi eitthvað
Sent: Mán 06. Mar 2006 17:28
af Dagur
Hefur þú kíkt á "System -> Preferences -> Sound"? Er nafnið á hljóðkortinu þínu neðst?
Sent: Mán 06. Mar 2006 17:44
af Birkir
beatmaster skrifaði:Kanski
þetta hjálpi eitthvað
Haha, Microsoft eru væntanlega ekki með FAQ fyrir Linux.
Sent: Þri 07. Mar 2006 12:17
af Andri Fannar
Birkir skrifaði:beatmaster skrifaði:Kanski
þetta hjálpi eitthvað
Haha, Microsoft eru væntanlega ekki með FAQ fyrir Linux.
Pff, og það að fá hjálp á support síðunni hjá M$ er eins og að vinna í lottó
Sent: Þri 07. Mar 2006 12:50
af Rusty
Já, eins og þessir wizards hjá þeim. T.d. ef maður fær ekki netið til að virka þá stingur windows upp á því að keyra wizard, þar sem maður velur "I cannot connect to the internet". And guess what.. microsoft segir manni "There is a problem with the internet. Please visit Microsoft.com for further information."
now that's just gay..
Sent: Þri 07. Mar 2006 14:55
af Voffinn
Rusty skrifaði:Já, eins og þessir wizards hjá þeim. T.d. ef maður fær ekki netið til að virka þá stingur windows upp á því að keyra wizard, þar sem maður velur "I cannot connect to the internet". And guess what.. microsoft segir manni "There is a problem with the internet. Please visit Microsoft.com for further information."
now that's just gay..
Já eða senda þig að sækja einhverja directx drivera af netinu þegar þú ert að setja upp driver fyrir netkortið.
En annars er mjög erfitt að hjálpa þér að koma hljóðinu í gang án þess að þú segir okkur hvernig hljóðkort þú ert, það er yfirleitt ágætis byrjun. Sendu okkur líka outputið úr dmesg, en í guðanna bænum, ekki peista því inní póst. Þá sendi ég
gumol á þig!
Núna á einhver eftir að skera á línuna mína í kvöld...
Sent: Þri 07. Mar 2006 15:35
af KristinnHrafn
Ég er með svona Dell Dimension 5000 tölvu með einhverju innbyggðu Intel hljóðkorti held ég.
Sent: Þri 07. Mar 2006 17:05
af JReykdal
undarlegt....þessir intel gaurar eru nú oftast mjög svo einfaldir.
Er eitthvað sem gæti verið "öðruvísi"? Digital tengi í hátalara etc.?
Sent: Mið 08. Mar 2006 00:02
af gumol
Voffinn skrifaði:Núna á einhver eftir að skera á línuna mína í kvöld...
Kallaru hálsinn línu?
Sent: Mið 08. Mar 2006 17:23
af Voffinn
Ég hef nú séð þig fara með hníf, þú ert álíka hættulegur með hann og ef hundurinn minn myndi ráðast á mig með skeið.