Síða 1 af 1

Split tunneling VPN + Torrent vesen

Sent: Fös 13. Feb 2026 14:19
af cocacola123
Þetta er allt hypothetical. Ég hef aldrei stolið né deilt efni.

Halló,

Hefur einhver hypothetical reynslu á að nota split tunnel VPN eingöngu á forrit eins og qBittorrent?
Endar það alltaf á minni hraða upp og niður og útilokar þetta upload á vinsælum íslenskum síðum?

Re: Split tunneling VPN + Torrent vesen

Sent: Lau 14. Feb 2026 13:34
af gabriel2407
Stel sjálfur ekki né deili efni.

qBittorrent er notað fyrir miklu meira en að hlaða niður efni án leyfi, og eftirfarandi útskýring er bara almenn útskýring en ekki ætluð til að gera eitthvað sem á ekki að gera :)

Án VPN er augljóslega hraðasti kosturinn, en þú ert kanski að misskilja VPN og split tunnel VPN, þegar að það er notað VPN fyrir alla tölvuna þá er allt að keyrast í gegnum VPN-ið, þá myndast hálfgerð stífla því VPN-ið þarf að "dulkóða" allt og það hefur mikil áhrif á nethraða (Upp og niður).

Þess vegna nota margir Proxies frekar ef það þarf ekki að "dulkóða" það sem er gert á netinu, þá er mun betri hraði, frítt í eiginlega öllum tilfellum og þægilegra í notkun. En auðvitað mæli ég alltaf með því að nota VPN frekar.

Með því að nota split tunnel VPN þá ertu aðeins að keyra qBittorrent í gegnum það og þá ætti í flest öllum tilfellum ekki að vera nein stífla, verður aðeins minni hraði miðað við ef þú notar það með engu VPN, alls ekkert til að kvarta um myndi ég segja, en töluvert meiri hraði heldur en VPN sem öll tölvan keyrir í gegnum.

Ekki viss hvað þú meinar með að útiloka upload, ef þú meinar að þetta haldi áfram að uploada/seeda eftirá þá já. Öll fyrirtæki sem bjóða upp á net hafa ákveðin filter/bann lista yfir ýmsu efni á netinu sem þú færð ekki aðgang að, VPN yfir höfuð kemst framhjá því og felur það, en auðvitað mæli ég ekki með að komast framhjá þessum filterum sem eru til staðar :)

Re: Split tunneling VPN + Torrent vesen

Sent: Sun 15. Feb 2026 15:37
af kizi86
með vpn, og upload á íslenskum síðum, ef ert að spá í með erlent niðurhal/upphal dæmið, þá bara velja vpn sem er með íslenskan server?

Re: Split tunneling VPN + Torrent vesen

Sent: Sun 15. Feb 2026 16:17
af Viggi
kizi86 skrifaði:með vpn, og upload á íslenskum síðum, ef ert að spá í með erlent niðurhal/upphal dæmið, þá bara velja vpn sem er með íslenskan server?


Þessi er með íslenskan server. Verið lengi hjá þessum og mjög sáttur

https://torguard.net/

Re: Split tunneling VPN + Torrent vesen

Sent: Sun 15. Feb 2026 16:45
af lyfsedill
Er ekki til eitthvað um algerlega fría VPN þjónustu til að geta notað til að horfa á t.d rúv erlendis og downloada af t.d piratebay?

Re: Split tunneling VPN + Torrent vesen

Sent: Sun 15. Feb 2026 17:45
af larsb91
lyfsedill skrifaði:Er ekki til eitthvað um algerlega fría VPN þjónustu til að geta notað til að horfa á t.d rúv erlendis og downloada af t.d piratebay?


Þú vilt helst ekki vera að nota frían VPN en margir VPN þjónustur eru með þjóna hérlendis sem myndi gera þér kleift að horfa á RÚV erlendis frá.

Persónulega nota ég ódýran VPS server og setti wireguard inn á hana.

Re: Split tunneling VPN + Torrent vesen

Sent: Sun 15. Feb 2026 18:09
af lyfsedill
larsb91 skrifaði:
lyfsedill skrifaði:Er ekki til eitthvað um algerlega fría VPN þjónustu til að geta notað til að horfa á t.d rúv erlendis og downloada af t.d piratebay?


Þú vilt helst ekki vera að nota frían VPN en margir VPN þjónustur eru með þjóna hérlendis sem myndi gera þér kleift að horfa á RÚV erlendis frá.

Persónulega nota ég ódýran VPS server og setti wireguard inn á hana.


Takk en ég er nefnilega svo rosalega óreyndur í þessu vpn og veit ekkert t.d hvernig maður notar það.

Er um einhver kennslumyndbönd að ræða hvernig maður notar VPN ? (sorry ef ég er heimskur)

Af hverju vil ég ekki nota frían t.d fyrir dl af piratebay (er nefnilega hræddur þegar ég opna piratebay kemur alltaf texti um VPN) ?

kær kv