Síða 1 af 1
Compiz og XGL
Sent: Mið 15. Feb 2006 11:15
af Dagur
fyrir þá sem hafið ekki heyrt um þetta nú þegar þá mæli ég með því að þið kíkjið á þetta
http://www.linuxedge.org/?q=node/58
sérstaklega á myndbandið í fréttinni:
http://www.freedesktop.org/~davidr/xgl-demo1.xvid.avi
Þessir effectar eru greinilega fengnir "að láni" frá OSX og Vista, en mér er sama, þetta er snilld.
Sent: Mið 15. Feb 2006 12:04
af tms
Frábært vídjó
Einhverjar hugmyndir um hvernær þetta dettur inn í mainstream distróin?
Ætli það gerist með sama tíma og Gnome 2.14 ?
Og hver er munurinn á compiz og metacity?
Sent: Mið 15. Feb 2006 12:39
af Dagur
Þetta verður líklega fyrst í næstu útgáfu af Suse (þetta var þróað af Novell) og svo fá hin þetta, eitt af öðru.
Þetta verður líklega ekki í næstu útgáfu af Ubuntu en það er hægt að
setja þetta upp sjálfur.
Ég veit í raun og veru ekki nógu mikið til að svara hinu.
Sent: Mið 15. Feb 2006 23:37
af Rusty
60 mb
Man samt eftir að hafa lesið um þetta á huga. Finnst enn skrítið að búa til glugga úr polygons..
Sent: Fim 16. Feb 2006 10:28
af tms
Rusty skrifaði:Finnst enn skrítið að búa til glugga úr polygons..
Veit ekki mikið um þetta en það er ekkert gefið að þetta sé 3d heimur þó það sé OpenGL accelrated. Kassinn sem maður snýr til að skipta um worspace bendir til þess að þetta sé ekki 3dheimur eins og í leikjum, lítur meira út fyrir að vera 8 punktar (hornin) og myndin stretchuð á milli punktanna, ef þetta væri alvuru 3d mundi það sem er lengra í burtu frá "auganu", eins og hornin á kassanum, vera minni en miðjan.
Mér finnst sérstaklega sneddý hvernig forrit sem hætta að responda verða "desaturated" og hvernig gluggar snappa að öðrum hlutum
Sent: Fim 16. Feb 2006 16:23
af gumol
Hlaup, held að þessar hlaup- hreyfingar á gluggunum séu það leiðinlegar til lengdar að maður verði fljótur að slökkva. En þetta umhverfi er alveg svakalega flott.
Sent: Fim 16. Feb 2006 16:29
af Rusty
gumol skrifaði:Hlaup, held að þessar hlaup- hreyfingar á gluggunum séu það leiðinlegar til lengdar að maður verði fljótur að slökkva. En þetta umhverfi er alveg svakalega flott.
Ætli þetta sé bara ekki svona eye candy sem framleiðendur nota til að leiða mann að þessu, en gera svo ráð fyrir því að maður slökkvi á þessu..
Sent: Þri 14. Mar 2006 16:12
af tms
Þessar hlauphreyfingar eru ekkert að pirra mann svo lengi sem maður stillur þá að vera ekki lengi að wobbla, bara þægilegt
Eina sem ég slekk á er "blobb" hreyfingin á menu gluggum því það er pirrandi að reyna að lesa texta sem heryfist, frekar hafa það feida inn eða eitthvað.
Svo slekk ég líka á qube effectinu, hef ekkert með það að gera þegar maður hefur svona góðann task-switcher og F12
EDIT:
http://linux.slashdot.org/article.pl?sid=06/03/10/0532227 Xgl livecd
Sent: Þri 14. Mar 2006 19:42
af Voffinn
Þetta er brilljant, þetta var samt ekkert að dansa með intel skjákortinu mínu...
Sent: Þri 14. Mar 2006 19:44
af gumol
Dansar þetta ef að skjákortin eru framleidd annarsstaðar?
Mig langar ekki í wm sem dansar...
Sent: Þri 14. Mar 2006 19:45
af Voffinn
Þetta á víst að dansa mjög vel með ati og nvidia, þarft ekkert svaka skjákort í þetta, en intel extreme er víst ekkert svo extreme.