Eitt áhugavert sem ég fann þegar ég var að skoða listann af íslenskum AS númerum í dag: Míla fékk úthlutað frá RIPE AS203566 fyrir rétt rúmum 6 mánuðum núna.
Etv. er þetta þeirra tilraun til þess að aðskilja AS númer Mílu eða Símanns frá AS6677 sem að báðir aðilar deila eins og er.
Ég vildi að ég hafði tekið eftir þessu þegar að númerinu var úthlutað, eiginlega eru þetta gamlar fréttir núna, en þó hef ég á tilfinningunni að fáir hafi komið auga á úthlutunina.
Ég deili þessu hér með þeirri von að einhverjum finnist þetta líka áhugavert og/eða hafi frekari upplýsingar.
~ kjartan
Míla fékk úthlutað öðru AS númeri
-
- Stjórnandi
- Póstar: 6352
- Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
- Reputation: 160
- Staða: Ótengdur
Re: Míla fékk úthlutað öðru AS númeri
Má ekki leiða lyktum að því að þetta tengist sölunni á Mílu til Ardian France SA undir lok síðasta árs?
-
- Fiktari
- Póstar: 91
- Skráði sig: Fim 31. Jan 2008 15:47
- Reputation: 52
- Staðsetning: Reykjavík
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Míla fékk úthlutað öðru AS númeri
Síminn selur internettengingar - og væntanlega þarf að færa IP netin fyrir viðskiptavini yfir í þetta AS númer. Basically verður Míla transit aðili fyrir Símann. Þeir gætu meirasegja verslað internet frá einhverjum öðrum en Mílu
Míla heldur gamla AS6677 fyrir backbone - enda nær ómögulegt fyrir þá að skipta um AS.
Míla heldur gamla AS6677 fyrir backbone - enda nær ómögulegt fyrir þá að skipta um AS.
---
-
Höfundur - Græningi
- Póstar: 38
- Skráði sig: Þri 03. Maí 2022 01:56
- Reputation: 12
- Staðsetning: Litli Stokkhólmur
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Míla fékk úthlutað öðru AS númeri
mort skrifaði:Síminn selur internettengingar - og væntanlega þarf að færa IP netin fyrir viðskiptavini yfir í þetta AS númer. Basically verður Míla transit aðili fyrir Símann. Þeir gætu meirasegja verslað internet frá einhverjum öðrum en Mílu
Míla heldur gamla AS6677 fyrir backbone - enda nær ómögulegt fyrir þá að skipta um AS.
Já nákvæmlega. Ég reyndar hef mínar efasemdir um að þetta sé AS nr. fyrir Símann nú þegar ég les yfir þennan þráð aftur því að þetta nýja nr. er merkt Mílu frekar en Símanum. Síminn setur etv. upp nýja RIPE aðild fyrir sjálfa sig þegar þeir fara að færa sig, eða að minsta kosti fá ASN "sponsored" undir sínu nafni frekar en einhvers annars.