Vandi með Windows Setup :l

Skjámynd

Höfundur
Drizzt
Nörd
Póstar: 101
Skráði sig: Sun 27. Júl 2003 22:24
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavik
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Vandi með Windows Setup :l

Pósturaf Drizzt » Fim 16. Des 2004 11:02

Nú er ég eiginlega búinn að mála mig útí horn..

Ég ákvað að gerast afskaplega duglegur og formatta fyrir stuttu. Og í windows uppsetningunni er eins og á tveim stöðum þá einfaldlega detti geisladrifið út. Þetta er alltaf á sömu tveim stöðunum, þá poppar upp eitthvað í líkingu við "Windows Setup needs some files on the windows xp pro cd.. blabla" og hvergi get ég fundið drifið í gegnum þennann glugga. Ég get klárað að setja stýrikerfið upp en það vantar stóra hluti af því.

Ég er búinn að reyna þetta með fjórum winxp diskum, og tveim geisladrifum en allt kemur fyrir ekki.

Ideas? :?



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6466
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 300
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Fim 16. Des 2004 11:04

afritaðu allt af XP pro disknum inná harðadiskinn, taktu giesladiskinn úr og gerðu full install af harðadisknum.


"Give what you can, take what you need."