Vinnan búin að loka á netið hjá mér?


Höfundur
stankonia
Fiktari
Póstar: 59
Skráði sig: Fim 29. Jan 2009 23:59
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Vinnan búin að loka á netið hjá mér?

Pósturaf stankonia » Fös 25. Jan 2013 00:15

hæhæ

Smá vesen á mér. Er á næturvöktum og hef alltaf tengt fartölvuna mína í gegnum vinnunetið með netsnúru en allt í einu kemst ég ekki inn. Prófaði fartölvu vinnufélaga míns og það virkaði.

Nú kann ég lítið á þetta, en getur verið að það sé búið að loka á aðgang að netinu bara á minni tölvu? ég prófaði að strauja tölvuna en það gerði ekkert gagn. Einhverjar hugmyndir?



Skjámynd

beggi90
Gúrú
Póstar: 529
Skráði sig: Mið 15. Okt 2008 21:02
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: Vinnan búin að loka á netið hjá mér?

Pósturaf beggi90 » Fös 25. Jan 2013 00:34

Búinn að setja upp driver eftir að þú straujaðir hana.
Virkar tölvan þín m. kapli annarsstaðar?




Höfundur
stankonia
Fiktari
Póstar: 59
Skráði sig: Fim 29. Jan 2009 23:59
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Vinnan búin að loka á netið hjá mér?

Pósturaf stankonia » Fös 25. Jan 2013 00:40

Er reyndar ekki búinn að prófa tengja hana með kapli heima en sýnist allir driverar virka. Finnst bara eitthvað svo ólíklegt að landspítalinn sé að loka á tölvuna. En þetta virkaði ekki fyrir né eftir straujun.

getur fikt í ip-adressum og slíku breytt einhverju?



Skjámynd

tdog
Vaktari
Póstar: 2012
Skráði sig: Mán 06. Des 2010 17:32
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Vinnan búin að loka á netið hjá mér?

Pósturaf tdog » Fös 25. Jan 2013 00:43

haha, kannski getur rapport svarað þér :)




Höfundur
stankonia
Fiktari
Póstar: 59
Skráði sig: Fim 29. Jan 2009 23:59
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Vinnan búin að loka á netið hjá mér?

Pósturaf stankonia » Fös 25. Jan 2013 00:50

haha þetta er kannski ekki staðurinn til að vera að fá aðstoð við svona hluti á opnum vef? :) fannst þetta bara svo saklaust eitthvað :)



Skjámynd

Olafst
Ofur-Nörd
Póstar: 285
Skráði sig: Mán 15. Mar 2010 12:29
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Vinnan búin að loka á netið hjá mér?

Pósturaf Olafst » Fös 25. Jan 2013 00:56

stankonia skrifaði:getur fikt í ip-adressum og slíku breytt einhverju?


Já, það getur gert það.

Hvort þú sleppir því að slá inn ip-tölu eða ekki fer algjörlega eftir því hvernig uppsetningin er á netkerfinu.
Prófaðu fyrst að hafa enga ip-tölu á netkortinu og sjá hvort það virki. Þá ætti vélin að fá sjálfkrafa tölu frá DHCP þjóni á netkerfinu.

Ef það virkar ekki, þá þarftu að komast að því hvaða ip-tölu pool er notað fyrir vélarnar og skrá inn samskonar tölu ásamt default gateway. Ath. að það getur búið til árekstra á netkerfinu og því varhugavert.




Höfundur
stankonia
Fiktari
Póstar: 59
Skráði sig: Fim 29. Jan 2009 23:59
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Vinnan búin að loka á netið hjá mér?

Pósturaf stankonia » Fös 25. Jan 2013 01:08

Já ok ætla prófa að taka út ip töluna en þori ekki að gera neitt meir. Veit ekki hvort það skiptir máli en ég fæ 100 Mbps í hraða en fær ekki internet access á IPv4 og 6.




Bioeight
Gúrú
Póstar: 526
Skráði sig: Þri 31. Mar 2009 22:41
Reputation: 6
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Vinnan búin að loka á netið hjá mér?

Pósturaf Bioeight » Fös 25. Jan 2013 01:38

Setja þetta upp rétt, allt ætti að vera auto í dag, nema þú hafir upplýsingar um annað. Hvernig er þetta stillt hjá vinnufélaganum?

Eins og beggi90 skrifar, vertu viss um að fartölvan virkar annarstaðar, setja upp drivera!

Var sama snúra notuð til að tengja tölvu vinnufélagans? Ef nei, prófa aðra snúru.

Ef það er búið að loka á þig þá geturðu mögulega breytt MAC address og hostname til að komast hjá því. Hinsvegar þar sem þú ert að starfa á spítala finnst mér varhugavert að mæla með því og mæli með því frekar að þú útilokir alla aðra hluti fyrst. Sömuleiðis finnst mér það ólíklegt, nema auðvitað þú hafir verið að gera eitthvað af þér.


Corsair Carbide 400Q| MSI Nvidia 2080| AMD R9 5900X| Gigabyte X470 Aorus Gaming 5| EVGA SuperNOVA 750 G3

Skjámynd

gardar
Besserwisser
Póstar: 3111
Skráði sig: Mán 11. Ágú 2008 02:49
Reputation: 12
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Vinnan búin að loka á netið hjá mér?

Pósturaf gardar » Fös 25. Jan 2013 01:57

Landspítalinn segirðu, þeir hafa líklegast tekið eftir nýrri umferð um gagnatengil sem ekki hefur farið um umferð áður og lokað á hann.
Það var amk raunin þegar ég vann þarna fyrir nokkrum árum :)

Kemstu ekki á lsh-gestir þráðlausa netið?



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7585
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1193
Staða: Ótengdur

Re: Vinnan búin að loka á netið hjá mér?

Pósturaf rapport » Fös 25. Jan 2013 02:00

stankonia skrifaði:Er reyndar ekki búinn að prófa tengja hana með kapli heima en sýnist allir driverar virka. Finnst bara eitthvað svo ólíklegt að landspítalinn sé að loka á tölvuna. En þetta virkaði ekki fyrir né eftir straujun.

getur fikt í ip-adressum og slíku breytt einhverju?


Það er bannað að tengja sínar eigin vélar við net spítalans og nú er búið að banna MAC addressuna þína.

Notaðu getsanetið, þráðlaust og heitir LSH-Gestir, gæti ekki verið auðveldara, átt að geta fengið notendanafn og lykilorð í 1000 á kvöldin eða 1550
fyrir kl.17

Lestu þér svo til um hvaða reglur gilda í tölvuumhverfinu áður en þér dettur svona vitleysa í hug aftur...




Höfundur
stankonia
Fiktari
Póstar: 59
Skráði sig: Fim 29. Jan 2009 23:59
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Vinnan búin að loka á netið hjá mér?

Pósturaf stankonia » Fös 25. Jan 2013 02:11

Geri mér alveg grein fyrir að þetta sé bannað, en þetta er svona dæmi þar sem allir gera þetta og því reynir maður sjálfur að halda því áfram. En ég er þá hættur að fikta í þessu og er farinn að hugsa minn gang.

takk annars fyrir svörin.




AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6354
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 161
Staða: Ótengdur

Re: Vinnan búin að loka á netið hjá mér?

Pósturaf AntiTrust » Fös 25. Jan 2013 02:17

Til hvers að vera að beintengja vélina þegar það er opið WiFi net í boði?




Höfundur
stankonia
Fiktari
Póstar: 59
Skráði sig: Fim 29. Jan 2009 23:59
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Vinnan búin að loka á netið hjá mér?

Pósturaf stankonia » Fös 25. Jan 2013 02:21

það er ekki wifi í boði allstaðar á lsh. en það má loka þessum þráð mín vegna.



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7585
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1193
Staða: Ótengdur

Re: Vinnan búin að loka á netið hjá mér?

Pósturaf rapport » Fös 25. Jan 2013 02:32

AntiTrust skrifaði:Til hvers að vera að beintengja vélina þegar það er opið WiFi net í boði?


Ef þú færð ekki aðgang að tölvu í vinnunni, ættir þú þá ekki að vera gera eitthvað annað?




Höfundur
stankonia
Fiktari
Póstar: 59
Skráði sig: Fim 29. Jan 2009 23:59
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Vinnan búin að loka á netið hjá mér?

Pósturaf stankonia » Fös 25. Jan 2013 02:43

það er auðvitað allt fullt af tölvum hér, gallinn er að þetta eru allt sýndarvélar sem gerir það að verkum að þær eru allar ferlega hægar og varla hægt að horfa á video í þeim. ég notaði mína tölvu nær eingöngu til að horfa á NBA á nóttunni meðan það er rólegt.




AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6354
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 161
Staða: Ótengdur

Re: Vinnan búin að loka á netið hjá mér?

Pósturaf AntiTrust » Fös 25. Jan 2013 02:45

Rapport - Ætlaru að segja mér að LSH séu það töff að þið séuð að nota VDI?



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7585
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1193
Staða: Ótengdur

Re: Vinnan búin að loka á netið hjá mér?

Pósturaf rapport » Fös 25. Jan 2013 11:29

AntiTrust skrifaði:Rapport - Ætlaru að segja mér að LSH séu það töff að þið séuð að nota VDI?


Við erum með um 600 sýndarvélar, 600 fartölvur, 2.200 borðtölvur og 7.000 notendur.

Spítalinn er með alveg afskaplega fámenna tölvudeild sem er að afkasta alveg fáránlega miklu m.v. tölvudeildir á öðrum sambærilegum stofnunum erlendis.

Við erum um 70 en sambærileg deild erlendis væri um 250 manns.

Samt erum við að gera margt betur en kollegar okkar á Norðurlöndunum.


@stankonia
Tölvurnar eiga ekki að vera afþreying fyrir starfsfólkið, þetta eru vinnutæki og sýndarvélarnar eru hraðvirkari í ræsingu og vinnslu í kerfum spítalans en almennar borðtölvur. Að fá e-h stream til að virka smooth er EKKI forgangsmál.



Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3835
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 157
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Vinnan búin að loka á netið hjá mér?

Pósturaf Daz » Fös 25. Jan 2013 11:43

rapport skrifaði:@stankonia
Tölvurnar eiga ekki að vera afþreying fyrir starfsfólkið, þetta eru vinnutæki og sýndarvélarnar eru hraðvirkari í ræsingu og vinnslu í kerfum spítalans en almennar borðtölvur. Að fá e-h stream til að virka smooth er EKKI forgangsmál.


Ég held að hann hafi nú ekkert verið að kvarta yfir því, bara útskýra af hverju hann vildi tengja sína eigin vél.




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4196
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1342
Staða: Ótengdur

Re: Vinnan búin að loka á netið hjá mér?

Pósturaf Klemmi » Fös 25. Jan 2013 12:32

rapport skrifaði:Ef þú færð ekki aðgang að tölvu í vinnunni, ættir þú þá ekki að vera gera eitthvað annað?


Engin móðgun meint rapport, en mér finnst þetta nú vera full yfirvaldsleg og hræsnaraleg svör. Ef manneskjan er á næturvakt og það er rólegt, þá finnst mér ekkert að því að hún "drepi tímann" með smá vefrápi, gefið að það sé ekkert sem þurfi að gera.

Get ekki betur séð en að þú sért helling hér á Vaktinni á vinnutíma.

Annars er ég vissulega sammála þér að það er ekki hægt að gera þá kröfu að vinnan útvegi net til afþreyingar, væri því eðlilegast að hún notaði gestanetið eða útvegaði sér sjálf neti í gegnum 3G.



Skjámynd

MatroX
Bannaður
Póstar: 3540
Skráði sig: Mið 17. Feb 2010 12:58
Reputation: 49
Staða: Ótengdur

Re: Vinnan búin að loka á netið hjá mér?

Pósturaf MatroX » Fös 25. Jan 2013 12:51

rapport skrifaði:
AntiTrust skrifaði:Til hvers að vera að beintengja vélina þegar það er opið WiFi net í boði?


Ef þú færð ekki aðgang að tölvu í vinnunni, ættir þú þá ekki að vera gera eitthvað annað?

átt þú ekki að vera gera eitthvað annað en að hanga á vaktinni? nei segi svona ég er alveg sammála klemma þetta er allt gróft hjá þér.


Intel i7 13700k | Artic Freezer II 240 | Gigabyte ud4 | Ripjaws 4x8gb 3200mhz | Palit RTX 3080 GAME ROCK | Corsair 350d | 1x 1tb CARDEA ZERO | 2tb SSD| Antec HCP 1200w | 1x 27" PHILIPS 274E5QHS | 1x ASUS 27" 4k ultrawide | Corsair M95 Mús | Corsair K95 RGB MX Red Lyklaborð |

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7585
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1193
Staða: Ótengdur

Re: Vinnan búin að loka á netið hjá mér?

Pósturaf rapport » Fös 25. Jan 2013 13:59

MatroX skrifaði:
rapport skrifaði:
AntiTrust skrifaði:Til hvers að vera að beintengja vélina þegar það er opið WiFi net í boði?


Ef þú færð ekki aðgang að tölvu í vinnunni, ættir þú þá ekki að vera gera eitthvað annað?

átt þú ekki að vera gera eitthvað annað en að hanga á vaktinni? nei segi svona ég er alveg sammála klemma þetta er allt gróft hjá þér.


Líklega rétt, þetta var aðeins of gróft en það var sannleikskorn í þessu.