Reyni að fylgjast með þessu náið og passa að fara ekki yfir. Þannig fór að bera á villumeldingum og misvísandi upplýsingum í gær yfir erlent niðurhal. Sjáið mynd, ýmist er sagt 0 GB í apríl eða annað.
Ákvað að hafa samband við þjónustuver í tölvupósti. Þeir svara samdægur, fæ tölvupóst frá 'tæknideild' yfir hvernig á að breyta úr GB í MB - svo sem rétt þar sem ég vissi ekki betur og hélt ég væri farinn yfir gagnamagn þar sem stóð í MB á einum stað í yfirliti og var kringum 40.xxx MB < 40 GB
Þeir endurtóku ennfremur það sem ég vissi nú þegar - að ef farið er umfram láta þeir ekki vita og gjaldtaka er sjálfvirk eins og maður fær að vita þegar áskrift er pöntuð - eða orðrétt úr tölvupósti:
En það var einmitt þess vegna sem maður hefur áhyggjur og ákveður frekar að spyrja þá að þessu öllu saman-og eru þeir þá HISSA!Einnig látum við vv. ekki vita áður en hann er gjaldfærður fyrir 10GB aukalega, þetta er partur af ADSL þjónustu (og skilmálum hennar) sem viðskiptavinur samþykkti þegar hann kom í þjónustu til okkar.
En þeir létu samt alveg vera að svara öðrum spurningum-svo sem afhverju verið var að sýna '0' GB í niðurhal eða villumeldingar á öðrum stað. Er það viðskiptavina að giska á hvað er rétt og rangt á vefsíðum þeirra! Svaraði þessum tölvupósti frá tæknideild og bað um svör við hinum spurningum en veit ekkert hvort þau koma.
Þá væri líka gott að vita hvort maður fer yfir 40 GB i erlendu niðurhali og sjálfvirk gjaldtaka fer fram-svo sem í enda mánaðar-eða síðustu klukkutíma- þannig maður geti þá eftir allt nýtt sér ÖLL þessi aukalegu 10 GB-eða láta þeir vita einhvers staðar tímanlega af því? Veit það einhver?