Tölvunarfræði eða Rafmagns og Tölvuverkfræði?


Höfundur
69snaer
Fiktari
Póstar: 98
Skráði sig: Mán 30. Mar 2009 12:04
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Tölvunarfræði eða Rafmagns og Tölvuverkfræði?

Pósturaf 69snaer » Fim 19. Apr 2012 20:35

Sælir vaktarar

Nú er ég að higgja á nám í haust og stendur valið milli Tölvunarfræði og Rafmagns- og tölvuverkfræði.

Einhver sem hefur reynslu af öðru hvoru? Öll ummæli vel þegin



Skjámynd

Domnix
Nörd
Póstar: 111
Skráði sig: Mán 05. Mar 2012 23:51
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Tölvunarfræði eða Rafmagns og Tölvuverkfræði?

Pósturaf Domnix » Fim 19. Apr 2012 21:29

er á fyrsta ári í rafmagns og tölvuverkfræði og það er alveg það sem ég vildi gera. Fyrsta árið hjá þessum brautum er nánast eins, fyrir utan að rafmagnsverkfræði(þ.e. rafmagns og tölvuverkfræði er alltaf kallað bara rafmagnsverkfræði) tekur meiri eðlisfræði og sérgreinar tengdar rafrásum. Það skiptir litlu fyrstu önnina hvort þú skráir þig í og ekkert mál að skipta svo snemma. Tölvunarfræðin er einmitt meiri forritun og meira "digital" á meðan rafmagnsverkfræðin er "analog", lærir hluti eins og merkjafræði og greiningu rása og þannig :)



Skjámynd

Eiiki
/dev/null
Póstar: 1408
Skráði sig: Þri 09. Nóv 2010 14:23
Reputation: 2
Staðsetning: 1101101
Staða: Ótengdur

Re: Tölvunarfræði eða Rafmagns og Tölvuverkfræði?

Pósturaf Eiiki » Fim 19. Apr 2012 21:45

Það sem Domnix segir..
Stærðfræðin er meiri þ.e. laggt meira upp úr henni í verkfræðinni heldur en í tölvunarfræðinni.
Getur skoðað áfangana fyrir verkfræðina hér og fyrir tölvunarfræðina hér.


Asrock Z68 Pro3-M | i7 2600k | Intel 520 Series 120 GB | GTX 560-Ti | 8GB 1866Mhz | Home made Mahogany case |Custom Water Cooling
Build log: http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=1&t=47846

Skjámynd

intenz
Besserwisser
Póstar: 3337
Skráði sig: Mið 08. Okt 2008 22:07
Reputation: 35
Staðsetning: /dev/null
Staða: Ótengdur

Re: Tölvunarfræði eða Rafmagns og Tölvuverkfræði?

Pósturaf intenz » Fim 19. Apr 2012 23:06

Mæli með Tölvunarfræði í HR, er á öðru ári. Mun meira "hands on" nám og minni stærðfræði heldur en í HÍ.


i7 920 @ 2.8 GHz | Gigabyte EX58-UD3R | CSX 3x2 GB DDR3 @ 1600 MHz | Gigabyte ATi Radeon HD 5850 | Sileo 500 | RealPower 600W | Corsair Force 3 120 GB | 27" FullHD | W7 x64


Höfundur
69snaer
Fiktari
Póstar: 98
Skráði sig: Mán 30. Mar 2009 12:04
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Tölvunarfræði eða Rafmagns og Tölvuverkfræði?

Pósturaf 69snaer » Fös 20. Apr 2012 18:18

Ok takk fyrir innleggin. Væri vel til í tölvunarfræðina í HR, en penginga lega séð á ég lítin möguleika á því. Er búin með kennarann en launin í þeirri starfstétt eru algjört prumb og ætla ég því að róa á önnur mið. Stærðfræðin hefur aldrei verið vanda mál þannig að það skiptir engu máli. Held samt að tölvunarfræðin eigi meira við mig. Hef líka heyrt að maður vaði í atvinnutilboðum við lok náms.

Nú er bara að velja!!!



Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3835
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 157
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Tölvunarfræði eða Rafmagns og Tölvuverkfræði?

Pósturaf Daz » Fös 20. Apr 2012 19:21

intenz skrifaði:Mæli með Tölvunarfræði í HR, er á öðru ári. Mun meira "hands on" nám og minni stærðfræði heldur en í HÍ.


Ef magnið af stærðfræði er að hafa áhrif á hvort námið þú velur, þá myndi ég nú segja að þú sért á rangri leið. Annars var nú ekki það mikil stærðfræði í mínu tölvunarfræðinámi, mér þætti ótrúlegt að það hefði breyst mikið. Mig rámar í að það hafi verið 5 eða 6 stærðfræði kúrsar í heildina, meira og minna allt rökfræðitengt hvort eð er.




Cascade
FanBoy
Póstar: 759
Skráði sig: Lau 04. Des 2004 00:02
Reputation: 42
Staða: Ótengdur

Re: Tölvunarfræði eða Rafmagns og Tölvuverkfræði?

Pósturaf Cascade » Fös 20. Apr 2012 19:34

Eg klaradi BS i HI i rafmagnsverkfraedi og thad var alveg fint
Mér finnst alveg smá munur á þessum fögum, bæði í námi og svo eftir nám svo þar held ég að áhugi þinn verði að ráða

Ég klára MSc í sumar og það er alveg fullt af atvinnumöguleikum fyrir rafmagnsverkfræðinga og lítur út fyrir að það sé ekkert að fara breytast