Hýsingaraðilar á .is erlendis!


Höfundur
Maggi Sig.
Græningi
Póstar: 30
Skráði sig: Lau 01. Jan 2005 17:31
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Hýsingaraðilar á .is erlendis!

Pósturaf Maggi Sig. » Mið 03. Mar 2010 20:15

Hverjir eru að taka að sér að hýsa .is erlendis, gera það vel og auðveldlega. Ég á domain sem mig langar að hýsa erlendis. :wink:

Þið getið kannski mælt með einhverjum! :8)

kv. Maggi


Maggi Sig.


Höfundur
Maggi Sig.
Græningi
Póstar: 30
Skráði sig: Lau 01. Jan 2005 17:31
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hýsingaraðilar á .is erlendis!

Pósturaf Maggi Sig. » Mið 03. Mar 2010 22:56

Ég fann aðila erlendis sem getur hýst .is en IsNic gerir þessar kröfur:

Uppsetningakröfur léna

Uppsetning léns undir rótarléni ".is" verður að uppfylla eftirfarandi:

1. A.m.k. tveir virkir nafnaþjónar tilgreindir fyrir lén. Báðir svari rétt og eins fyrir umbeðið lén.
2. Leyfa þarf TCP og UDP aðgang að porti 53 á nafnaþjónum.
3. SOA færslur rétt upp settar:
1. Samsvörun verður að vera milli uppgefins aðalnafnaþjóns og tilsvarandi sviðs í SOA færslu.
2. Netfang þess sem ber ábyrgð á DNS þarf að vera í lagi og virkt.
3. Tímar (hressingar-, endurtekningar- og úreldingartímar) vitrænir (Sjá: RFC1912).
4. Sjálfgefinn selgeymslutími (TTL, Time-To-Live) fyrir NS færslur ekki minni en einn sólarhringur.
5. Nafnaþjónar þurfa að vera skráðir hjá ISNIC.
6. NS færslur réttar. Samsvörun sé milli uppgefinna nafnaþjóna og NS færsla í zone. Nafnaþjónar séu rétt skráðir í DNS (A og PTR færslur í samsvörun).


Nú er ég enginn rosalegur snillingur í þessum vefmálum en getur ég er búinn að fara í Live Chat við þá hjá, http://www.hostmonster.com/ þeir segjast geta hýst .is, og að beina bara nafnaþjónunum ns1.hostmonster.com and ns2.hostmonster.com á Isnic.

Er einhver sem veit hvort að þessi síða, http://www.hostmonster.com standist kröfur Isnic?


kv. Maggi


Maggi Sig.


starionturbo
Gúrú
Póstar: 542
Skráði sig: Mán 24. Des 2007 11:23
Reputation: 8
Staðsetning: localhost
Staða: Ótengdur

Re: Hýsingaraðilar á .is erlendis!

Pósturaf starionturbo » Fim 04. Mar 2010 00:18

Þetta er einfalt, hýstu DNS á íslandi en Þjóninn erlendis.

Það er hægt og ég geri það með ákveðna þjóna hjá mér.

1984.is býður uppá fría DNS þjónustu. Getur haft samband við mig ef þig vantar hjálp.
Síðast breytt af starionturbo á Mán 21. Feb 2022 21:58, breytt samtals 1 sinni.


Foobar