Boota tölvu með tveimur stýrikerfum


Höfundur
ArniHrafn
Nýliði
Póstar: 21
Skráði sig: Lau 07. Jún 2008 23:42
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Boota tölvu með tveimur stýrikerfum

Pósturaf ArniHrafn » Mið 24. Jún 2009 14:55

sælir vaktarar :8)

Ég er með eitt vandamál sem að ég vonast til að þið getið greitt úr. Þannig er mál með vexti að ég er með 2 stýrikerfi á vélinni minni, annars vegar Windows Xp og hinsvegar Windows 98 (var að prófa það).
Mig langaði núna að Re-boota tölvunni vegna þess að það er komið ár síðan ég gerði það seinast og ég vill hreinsa allt útaf henni og hafa hana eins og nýja :D
Gamli var byrjaður að boota af xp disk sem ég var með (diskurinn af stýrikerfinu sem ég er að nota) og ég ýtti á "R" þegar það átti við.

Þá kom bara svartur skjár eftir smá tíma þar sem stóð að ég þyrfti að velja stýrikerfið sem ég vildi reboota.

1. C:\WINDOWS
2. C:\WINDOWS.0


þetta voru möguleikarnir sem ég hafði og ég átti að velja tölustafinn á stýrikerfinu sem ég vildi hreinsa svo ég valdi "1"
þá var beðið um að skrifa administrator password.
Er það passwordið sem ég skrifa þegar ég ræsi tölvuna?
því að ekkert af því sem ég prófaði virkaði og ég þurfti að endurræsa tölvuna eftir 3 tilraunir.


Ég vill samt boota henni þannig að hún verði bara keyrð á einu stýrikerfi (þ.e XP) og að 98 detti út.
veit einhver hvað ég á að gera?


takk félagar




Ruslakall
Nýliði
Póstar: 7
Skráði sig: Fös 07. Des 2007 20:46
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Boota tölvu með tveimur stýrikerfum

Pósturaf Ruslakall » Mið 24. Jún 2009 15:11

Mig langaði núna að Re-boota tölvunni vegna þess að það er komið ár síðan ég gerði það seinast og ég vill hreinsa allt útaf henni og hafa hana eins og nýja


Þú ætlar semsagt að formata diskinn? Eru windowsarnir á sitthvorum disknum eða á sama disk?
Ef þú ætlar að formata og setja uppá nýtt windows xp þá er nóg fyrir þig að ræsa tölvuna af windows xp disknum og velja new installation eða eitthvað álíka þá færðu möguleika á að formata diskinn.




Höfundur
ArniHrafn
Nýliði
Póstar: 21
Skráði sig: Lau 07. Jún 2008 23:42
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Boota tölvu með tveimur stýrikerfum

Pósturaf ArniHrafn » Mið 24. Jún 2009 15:40

já ég ætlaði að formata diskinn allveg 100% þannig að það væri bara 1 stýrikerfi á vélinni :D

en þetta kemur alltaf upp þegar ég er að formata og ég veit ekkert hvað ég á að skrifa þarna:
Mynd




SteiniP
Bara að hanga
Póstar: 1573
Skráði sig: Mán 16. Jún 2008 21:54
Reputation: 1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Boota tölvu með tveimur stýrikerfum

Pósturaf SteiniP » Mið 24. Jún 2009 16:18

Ekki ýta á R þegar þú ert beðinn um það.
Bootaðu bara með Windows disknum og bíddu þangað til blái loading skjárinn er búinn og fylgdu svo skrefunum, veldu format þegar við á og passaðu að formatta réttan disk.




Höfundur
ArniHrafn
Nýliði
Póstar: 21
Skráði sig: Lau 07. Jún 2008 23:42
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Boota tölvu með tveimur stýrikerfum

Pósturaf ArniHrafn » Fim 25. Jún 2009 00:48

ef að ég ýti á enter þegar "Press any key to boot from cd ..." kemur og bíð í klukkutíma þá er seinasti skjárinn alltaf eins og þar hef ég 3 möguleika

1. ýta á enter til að setja upp xp
2. ýta á "r" til að repaira
3. ýta á f8 til að hætta


hvað á ég að ýta á þarna ?! :o




SteiniP
Bara að hanga
Póstar: 1573
Skráði sig: Mán 16. Jún 2008 21:54
Reputation: 1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Boota tölvu með tveimur stýrikerfum

Pósturaf SteiniP » Fim 25. Jún 2009 00:56

ýttu á enter




Höfundur
ArniHrafn
Nýliði
Póstar: 21
Skráði sig: Lau 07. Jún 2008 23:42
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Boota tölvu með tveimur stýrikerfum

Pósturaf ArniHrafn » Fös 26. Jún 2009 00:07

tölvan formattast þá ekki, heldur setur upp xp aftur en hreinsar ekki út af disknum :(



Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2855
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 217
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Re: Boota tölvu með tveimur stýrikerfum

Pósturaf CendenZ » Fös 26. Jún 2009 00:31

egad #-o



Skjámynd

Gunnar
Vaktari
Póstar: 2347
Skráði sig: Fös 08. Ágú 2008 00:11
Reputation: 59
Staðsetning: 105 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Boota tölvu með tveimur stýrikerfum

Pósturaf Gunnar » Fös 26. Jún 2009 00:48

þegar þú ert buinn að ýta á enter á að koma upp valmöguleiki um að þú getir eytt öllu af harðadisknum.