Tengja tölvur saman


Höfundur
isr
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 381
Skráði sig: Sun 18. Apr 2004 12:31
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Tengja tölvur saman

Pósturaf isr » Mið 08. Mar 2006 18:35

Ég er með tvær Fartölvur og eina borðtölvu,hvernig get ég tengd þær saman og get ég sent úr fartölvu í prentara þráðlaust? er með speed touch 580 router. Fartölvurnar eru nettengdar önnur með innbyggt netkort og hin korti sem er stungið í og borðtölvan tengd beint í router..




Rusty
Tölvutryllir
Póstar: 651
Skráði sig: Lau 31. Des 2005 16:42
Reputation: 0
Staðsetning: Eyjar
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Rusty » Mið 08. Mar 2006 20:19

Ferð í Control Panel > Printers and Faxes > Hægri smellir á prentarann > Sharing... > Hakar við Share this printer > Smellir á Ok.

Farðu svo í til baka í Control Panel, opnaðu "System", veldu Computer Name, og mundu "Full Computer Name".


Farðu nú í fartölvuna, og opnaðu Internet Explorer (nei ekki firefox) Í addressuna skaltu skrifa \\nafn-á-tölvunni (sem þú fannst í computer name) og prentarinn ætti að poppa upp (nema það sé beðið um lykilorð, sem í því tilfelli, skráðu notendanafnið og lykilorðið sem gengur að borðtölvunni). Hægri klikkaðu á prentarann og velur Connect.

Núna ef allt fór eftir óskum, og þegar þú ætlar þér að prenta eitthvað (File > Print eða Ctrl+P) ættirðu að geta valið prentarann, og prentað út úr honum.