Síða 1 af 1

Cs source, vantar smá greiða/hjálp....

Sent: Fim 05. Jan 2006 19:42
af Pepsi
Sælir, ég er með smá problem hérna og vantar smá greiða eða hjálp.

Það er tiltekinn breskur server sem ég spila alltaf á og aldrei verið neitt vesen með ping á servernum, þar til nú og ég bara kemst ekki inn aftur.....
Ég er tengdur hjá Ogvodafone og var að spá hvort að það væri ekki einhver cs spilari sem notast við Ogvodafone væri til í að prófa að pinga þennan tiltekna server eða segja mér hvað latency er á honum.......

server ip .....212.187.246.114:27015


Þetta mál er vægast sagt skrítið þar sem Ogvodafone segja að ekkert sé að tengingunni og hraðinn á tengingunni er óaðfinnanlegur. 2 af félögum mínum tengdir hjá simnet eiga ekki við þennan vanda að stríða á þessum server.

ég er með þónokkuð marga erlenda servera í favorite og enginn af þeim hefur breyst, bara þessi eini server, og enginn sem ég veit um hefur fundið fyrir einhverri breytingu.

Hef verið í sambandi við admina á þessum server og þeir meira að segja verið að skoða hlutina með mér og enginn skilur neitt.

Þess vegna bið ég, grátbið ég einhvern sem er hjá Ogvodafone að athuga hvort að latency á þessum tiltekna server sé eðlilegt eða um eða yfir 150.


Með fyrirfram þökkum Pepsi

Sent: Fim 05. Jan 2006 19:59
af gnarr
101ms hér

Sent: Fim 05. Jan 2006 20:10
af Pepsi
101 þarna já, hver andskotinn getur þá verið að hérna hjá mér
jæja þetta er bara svona þetta blessaða líf

Sent: Fim 05. Jan 2006 21:03
af ErectuZ
Hvernig lýsir þetta vandamál sér hjá þér? Ég sjálfur er í vandamálum með CSS því ég get ekki joinað neina servera nema þeir séu í favourites, og þá ekki ef ég hef reynt að joina aðra, eða adda einhverjum í favourites hjá mér. Kemur upp info windowinn og latency skýst upp í 2000ms og ég kemst ekki inn. Og það á öllum serverum :cry:

Sent: Fim 05. Jan 2006 21:56
af Pepsi
málið er þannig að það eru ákveðnir serverar á ákveðnum svæðum þarna í bretlandi sem eru í fokki vegna einhvers vandræðagangs hjá ogvodafone....
Segjast vera að gera við þetta en maður fyllist einhvernvegin efasemdum þar sem þetta er ekkert að trufla marga notendur... Nema mig kannski

Sent: Fim 05. Jan 2006 22:08
af Dust
120 hérna, hef oft verið að spila á þessum server sjálfur og aldrei verið svona hátt hjá mér :?

Sent: Fim 05. Jan 2006 22:20
af Pepsi
nei einmitt, þeir hjá vodafone pinguðu serverinn á 100mb línu og fengu 132ms average, sem er MJÖG hátt á 100mb tengingu?

Sent: Fös 06. Jan 2006 09:27
af gnarr
nú? afhverju segiru það? Ef serverinn er á lélegri tengingu og margir að tengjast honum, þá er hann með hátt ping, óháð tenginunum hjá þeim sem eru að tengjast.

Sent: Fös 06. Jan 2006 12:26
af Vilezhout
50ms samkvæmt ASE á Simnet adsl tengingu.

Sent: Fös 06. Jan 2006 15:49
af Pepsi
Það er einhver vandræðagangur hjá ogvodafone síðustu daga í bretlandi, á víst eitthvað að vera að reyna að laga þetta.