Síða 1 af 1

NFS vandamál (eða bara leikja vandamál almennt?)

Sent: Fös 11. Nóv 2005 12:39
af Danni Colt
Jæja, vandamálið mitt í dag er að ég get ekki spilað NFS:U2 né NFS:MW demoið. Þetta skiptir mig miklu máli þannig ég vill helst engin svör einsog "ekki spila þessa leiki".

Allavega, NFS:U2 crashar annaðhvort alltaf á sama tíma (rétt eftir byrjun á replay í einu race-i) eða bara einhverntímann í free roam.

NFS:MW demóið hefur reyndar bara crashað einusinni og það var í endanum á einu race-i alveg af ástæðu lausu.

Ég er búinn að prófa allt, update-a skjákorts drivera, update-a hljóðkortsdrivera, taka driverana alveg út og setja inn þá elstu sem fylgdu með hlutunum, en ekkert virkar! Ég man ekki hvenar ég gat spilað leikinn síðast, það er frekar langt síðan allavega. Eina nýlega breytingin er að ég keypti betra hljóðkort, Soundblaster Audigy 2ZS Platinum með fjarstýringu og fínu tengjaborði sem fer í geisladrifspláss á tölvukassanum. Ekki getur hljóðkortið virkilega haft það mikil áhrif á tölvuna að ég get bara ekki spilað neina leiki sem notast við hljóð? NFS leikirnir eru hinsvegar þeir einu sem ég er búinn að prófa síðan þetta vandamál kom upp. Prófaði reyndar 3dmark 05 benchmarkið áðan og það var alveg vandræðalaust.

Eina vísbendingin sem ég hef á að þetta er skjákortið er að fyrst kom alltaf Microsoft Online Crash Analysis sem sagði mér að það væri ATi Display Driver sem olli crashinu, en núna kemur það ekki lengur.

Tölvan er byggð upp af eftirfarandi hlutum:
Abit AV8 Móðurborð
AMD 64bit 3500+ 2,2ghz örgjörfi
1gb ddr ram
ATi Readon XT800X Platinum Edition AGP skjákort
Soundblaster Audigy 2 ZS Platinum hljóðkort
Og svo eithvað fleyra sem skiptir varla máli í þessu tilefni...

Eruð þið með einhver ráð varðandi hvað er hægt að prófa áður en ég formatta? Vegna þess að ef ég formatta þá þarf ég að fara að snúa öllu húsinu á hvolf við að leita af XP cd-key-inum mínum ásamt xp disknum og disknum með móðurborðsdriverum.

Fyrifram þökk og keðja, Danni.

Sent: Fös 11. Nóv 2005 12:49
af Mumminn
ég hef stundum lennt í þessu með N4SPD U2 en það hættil alltí einu þegar ég formattaði.
en er MW ekki GEGGJAÐUR ?? :twisted:
kominn með 50% af honum og get ekki beðið \:D/

Sent: Fös 11. Nóv 2005 13:03
af Blackened
Hvar eruði að dl þessu?! :)
Me wants answers :|

Sent: Fös 11. Nóv 2005 18:05
af viddi
Blackened skrifaði:Hvar eruði að dl þessu?! :)
Me wants answers :|


me 2

Sent: Fös 11. Nóv 2005 19:09
af hilmar_jonsson
Ég lenti bara í vandræðum með að ATI x300 SE gat ekki spilað hann nema í upplausn 800*600 með gæðin í lægsta.

Sent: Fös 11. Nóv 2005 19:14
af Snorrmund
hmm need for speed.com án bila og finniði forumin og þar ætti að standa "OMGWZER TEH DEMO IS OUT!?!" eða eitthvað álíka.

Sent: Fös 11. Nóv 2005 22:27
af Danni Colt
Ég náði bara í demoið af GameSpot.com. Er með GameSpot Complete og frítt utanlands download :D

En ég virðist hafa reddað þessu með leikina, prófaði bara af brjálæði og pirringi að loka einu forriti sem tengdist Creative og var alltaf í Tray og leikirnir hafa ekkert crashað síðan. Tölvan crashaði að vísu einusinni útaf screensaver en ég tók hann bara af og spáði ekki meir í því :D

Sent: Lau 12. Nóv 2005 00:48
af SolidFeather

Sent: Lau 12. Nóv 2005 01:11
af Manager1
Sótti það á Istorrent..

Lýst vel á þetta, bíð spenntur eftir leiknum :)

Sent: Lau 12. Nóv 2005 02:13
af ICM
Þetta er engin PGR3 en hann er miklu betri en 2 síðustu NFS leikirnir. Hélt að NFS væri orðin algjörlega dauð sería eftir þetta Underground helvíti.

Sent: Lau 12. Nóv 2005 14:26
af CraZy
var að prófa hann þvílík snilld :D verst að eg get ekki skrúfað gæðin upp sökum laggs =/ *sparkar í tölvu*

Sent: Mán 14. Nóv 2005 19:25
af Gestir
Flottasti bílaleikurinn í dag... klárlega ...


bíð spenntur til 17. Nóv....

Sent: Mán 14. Nóv 2005 20:15
af DoRi-
17nóv = útgáfu dagur mw?

Sent: Mán 14. Nóv 2005 20:38
af Manager1
Tja.. flestar vefsíður segja 15 nóv en þetta er í annað skiptið í dag sem ég sé einhvern skrifa á spjallborði að útgáfudagurinn sé 17...

Allaveganna, það er annaðhvort 15 nóv eða 17 nóv :)

Ath! Þetta er útgáfudagurinn í USA, 25 nóv er útgáfudagurinn fyrir Evrópu ef ég man rétt.

Sent: Mán 14. Nóv 2005 20:41
af ICM
ÓmarSmith skrifaði:Flottasti bílaleikurinn í dag... klárlega ...


bíð spenntur til 17. Nóv....

Fram á 22 Nóvember já :lol:

Sent: Mán 14. Nóv 2005 20:45
af Blackened
þegar maður fer útúr demoinu þá stendur 17. November

Sent: Þri 15. Nóv 2005 14:28
af Mumminn
hann kemur 17.nóv í Norður-Ameríku og síðan 22 eða 24 í Evrópu.

Sent: Þri 15. Nóv 2005 14:54
af Gestir
IceCaveman skrifaði:
ÓmarSmith skrifaði:Flottasti bílaleikurinn í dag... klárlega ...


bíð spenntur til 17. Nóv....

Fram á 22 Nóvember já :lol:




Pfff... Finnst þér líklegt að ég kaupi hann hérna í BT eða ;)

need i say more ? :8)

T.....O........RR.......E.....N........T

Sent: Þri 15. Nóv 2005 14:56
af ICM
Nei ég átti við Project Gotham Racing 3 á Xbox 360, og Xbox 360 fer í sölu í USA 22 Nóv...